Mynd: Hari

Ólíkar leiðir stjórnarandstöðuflokka út úr kreppunni

Hvað eiga til­lögur um að gera Akureyri að borg, um að byggja mis­læg gatna­mót á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í stað borg­ar­línu og um aukna fjár­fest­ingu í lýð­heilsu þjóð­ar­innar sam­eig­in­legt?

Rík­is­stjórnin hefur kynnt fjöl­margar leiðir til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í sam­an­tekt Kjarnans frá því fyrir um mán­uði síðan kom fram að flestar þeirra hafi geigað. Helst hafi hluta­bóta­leiðin skilað til­ætl­uðum árangri.

Til við­bótar við þær aðgerðir sem voru þar til umfjöll­unar kynnti rík­is­stjórnin aðgerð­ar­pakka sem hún metur á 25 millj­arða króna í byrjun síð­ustu viku. Hann taldi átta aðgerðir. Helstar voru þær að að trygg­inga­gjald verður lækkað tíma­bundið í eitt ár, til loka árs 2021, um 0,25 pró­sent og er kostn­aður rík­is­sjóðs við þetta metin á fjóra millj­arða króna. Full end­ur­greiðsla á virð­is­auka­skatti undir hatti úrræð­is­ins „Allir vinna“ verður fram­lengt út árið 2021 og er kostn­aður við þá aðgerð metin á átta millj­arða króna. Þá ætla stjórn­völd að beina frek­ari beinum styrkjum til fyr­ir­tækja sem „orðið fyrir tekju­hruni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins“. Gert er ráð fyrir að styrkirnir geti numið um sex millj­örðum króna.

Stjórn­ar­and­stöð­unni hefur ekki verið kölluð til þegar efna­hags­að­gerðir hafa verið ákveðnar. Á síð­ustu vikum hafa þrír flokkar innan hennar hins vegar lagt fram sínar eigin aðgerð­ar­á­ætl­anir sem þeir telja að gagn­ist betur við að takast á við þær aðstæður sem eru uppi. Þeir eru Sam­fylk­ingin, sem kynnti sinn pakka í morgun, Viðreisn, sem gerði það í byrjun sept­em­ber, og Mið­flokk­ur­inn, sem setti fyrst fram til­lögur í apríl en ítrek­aði þær svo á flokks­ráðs­fundi í lok síð­asta mán­aðar. Hér að neðan er farið yfir þessar til­lögur.

Samfylkingin

Sam­fylk­ingin kynnti aðgerð­ar­á­ætlun sína til að fjölga störfum, stíga fastar til jarðar í loft­lags­málum og renna fjöl­breytt­ari stoðum undir verð­mæta­sköpun á Íslandi í morgun. Um er að ræða ítar­leg­asta pakka sem stjórn­ar­and­stöðu­flokkur hefur sett saman, en hann telur 24 blað­síður.

Heild­ar­kostn­aður við áætl­un­ina er um 80 millj­arðar króna á árinu 2021, eða um 2,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Þegar skatt­tekjur sem muni að mati flokks­ins falla til vegna aðgerð­anna, og lægri útgjöld til atvinnu­leys­is­trygg­inga eru talin til þá reikn­ast Sam­fylk­ing­unni til að nettó­kostn­aður rík­is­sjóðs verði um 50 millj­arðar króna til við­bótar við þann fjár­laga­halla sem þegar er fyr­ir­séður. Því yrði hann um 314 millj­arðar króna í stað 264 millj­arða króna ef að Sam­fylk­ingin fengi að ráða. Flokk­ur­inn segir að það sé þjóð­hags­lega ábyrgð að fjár­magna þennan halla með lán­tökum, ekki skatta­hækk­unum.

Tryggingagjaldslaust ár

Á meðal aðgerða sem taldar eru til í pakk­anum er að lækka trygg­inga­gjald tíma­bundið með þeim hætti að árið 2021 verði trygg­inga­gjalds­laust ár hjá ein­yrkjum og smá­fyr­ir­tækjum ásamt því að skila „snar­pri lækkun til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja.“ Ekki er til­greint hvar mörkin á milli þess­ara fyr­ir­tækja­hópa eigi að liggja. Áætlaðar tekjur rík­is­sjóðs vegna trygg­inga­gjalds, sem greiðir meðal ann­ars fyrir atvinnu­leys­is­bætur, eru 94,5 millj­arðar króna á næsta ári.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, kynnir tillögurnar í morgun.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kynnir til­lög­urnar í morgun.

Sam­fylk­ingin vill fjölga opin­berum störfum með því að ráð­ast í átak gegn „und­ir­mönnum í almanna­þjón­ustu“. Í því felst að fjölga störfum í mennta­kerf­inu, heil­brigð­is­kerf­inu, lög­gæslu og vel­ferð­ar­þjón­ustu í nánu sam­starfi við sveit­ar­fé­lög. Áætlaður kostn­aður við þetta er 15 millj­arðar króna á næsta ári.

Hvata til fyrirtækja til að ráða atvinnulaust fólk

Þá vill flokk­ur­inn skapa hvata fyrir fyr­ir­tæki til að ráða fólk af atvinnu­leys­is­skrá í stað þess að borga eig­endum þeirra styrki til að segja upp fólki, líkt og sitj­andi rík­is­stjórn gerði í sumar. „Skil­virkasta leiðin til þess er að gera Vinnu­mála­stofnun heim­ilt að greiða atvinnu­rek­anda ráðn­ing­ar­styrk sem nemur allt að 75 pró­sentum af grunnatvinnu­leys­is­bótum í sex mán­uði þegar ráð­inn er atvinnu­leit­andi sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti þrjá mán­uði. Hafi atvinnu­leit­andi verið á atvinnu­leys­is­skrá í meira en sex mán­uði verði Vinnu­mála­stofnun heim­ilt að veita styrk sem nemur 100 pró­sentum af grunnatvinnu­leys­is­bótum í allt að níu mán­uði,“ segir í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni.

Sam­fylk­ingin vill lækka jað­ar­skatta á líf­eyr­is­þega og barna­fólk og hækka grunn atvinnu­leys­is­bætur úr 289 þús­und krónum í 318 þús­und krónur og hækka elli­líf­eyri og örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri í sam­ræmi við launa­þróun til við­bótar við hækkun frí­tekju­marks vegna atvinnu­tekna. Auk þess vill flokk­ur­inn að end­ur­skoðun almanna­trygg­inga lúti sömu lög­málum og þróun þing­fara­kaups, og haldi þar með í raun­veru­lega launa­þróun í land­inu í stað áætl­unar um hana.

Sam­fylk­ingin vill tvö­földun stuðn­ings við sveit­ar­fé­lög sem kallar á fimm millj­arða við­bót­ar­fram­lag frá rík­inu árið 2021 og að fram­lög í tækni­þró­un­ar­sjóð verði aukin um fimm millj­arða króna.

Vilja gera Akureyri að borg

Hún vill líka að aðgerð­ar­á­ætlun í loft­lags­málum verði end­ur­skoðuð með það að mark­miði að stefnt verði að 55 pró­senta sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fyrir árið 2030 og að því verði lýst yfir að það verði óheim­ilt að nýskrá bensín- og dísil­bíla á Íslandi frá og með árinu 2025 og tryggja að hleðslu­stöðvar verði aðgengi­legar við allar bens­ín­stöðvar fyrir árið 2023. Þá vill flokk­ur­inn flýta fram­kvæmdum við Borg­ar­línu, hækka end­ur­greiðslur til fram­leið­enda kvik­mynda og sjón­varps­efnis úr 25 pró­sentum í 35 pró­sent af fram­leiðslu­kostn­aði sem fellur til á Íslandi, auka fram­lög til launa­sjóðs lista­manna um 1,2 millj­arða króna og bæta menn­ing­ar­stofn­unum upp hluta tekju­taps vegna sam­komu­banns.

Sam­fylk­ingin vill líka skil­greina Akureyri sem borg og end­ur­semja í kjöl­farið við sveit­ar­fé­lagið um rétt­indi þess og skyldur.

Viðreisn

Viðreisn kynnti sín við­brögð við efna­hags­sam­drætt­inum sem nú stendur yfir á blaða­manna­fundi 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þau eru ekki nærri jafn ítar­leg og það sem Sam­fylk­ingin kynnti í morgun en sam­hljómur er með flokk­unum í mörgum áherslum.

Sá pakki sem Viðreisn kynnti sner­ist um að hrinda alls sjö aðgerðum í fram­kvæmd. Áætlaður kostn­aður við aðgerð­irnar, sem áttu að skila sér til baka í auknum hag­vexti, var 123 millj­arðar króna.

Til­lög­urnar sjö fólu í sér að opin­berum fram­kvæmdum yrði flýtt og þær auknar, að auknir hvatar yrðu inn­leiddir í loft­lags­málum, að brugð­ist yrði við auknu atvinnu­leysi með tíma­bundnum úrræðum fyrir fólk í atvinnu­leit, að fjár­fest yrði í lýð­heilsu þjóð­ar­innar, að álögum yrði létt á fyr­ir­tæki, að störf yrðu varin og nýsköpun efld.

80 milljarðar í flýtingu framkvæmda

Stærsti, og dýr­asti, hluti til­lögu­pakk­ans sneri að því að flýta fram­kvæmdum hins opin­bera, en Viðreisn vildi verja 80 millj­örðum króna í það á næsta ári. Borg­ar­lína og aðrar sam­göngu­fram­kvæmdir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru sér­stak­lega nefndar í því sam­hengi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Jón Steindór Valdimarsson sýna á spilin í byrjun september.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Jón Steindór Valdi­mars­son sýna á spilin í byrjun sept­em­ber.

Varðandi loft­lags­málin þá lagði Viðreisn til að hraða þyrfti orku­skiptum og draga úr meng­andi losun með jákvæðum fjár­hags­legum hvötum. Kostn­aður vegna þessa er áætl­aður fimm millj­arðar króna.

Flokk­ur­inn vildi að fólki sem er á atvinnu­leys­is­bótum yrði veitt meira svig­rúm til tekju­öfl­unar á meðan að sú staða væri og lögðu einnig til að tekju­tengdar bætur yrðu fram­lengdar tíma­bundið. Kostn­aður vegna þessa er áætl­aður tíu millj­arðar króna.

Tryggingagjaldslækkun

Fjár­fest­ing í lýð­heilsu þjóð­ar­innar átti meðal ann­ars að fela í sér að frum­varp sem full­trúar úr öllum flokkum á þingi lögðu fram, og felldi kostnað við sál­fræði­með­ferð undir sjúkra­trygg­ingar, yrði fjár­magnað. Ekki er gert ráð fyrir því í nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi. Þá vill Viðreisn að við­bót­ar­fjár­magn sé tryggt inn í félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna. Þetta á sam­tals að kosta rík­is­sjóð fjóra millj­arða króna.

Viðreisn vildi lækka álögur á fyr­ir­tæki með því að lækka trygg­inga­gjaldið. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þessa myndi verða 20 millj­arðar króna sam­kvæmt útreikn­ingum flokks­ins. Því mynda tvær aðgerðir: flýt­ing fjár­fest­inga og lækkun trygg­inga­gjalds, uppi­stöðu aðgerð­ar­pakka Við­reisnar. Saman mynda þær 81 pró­sent af ætl­uðum heild­ar­kostn­aði pakk­ans.

Flokk­ur­inn vill að tíma­bundnir beinir styrkir til atvinnu­rek­enda sem búa við veru­legan tekju­missi verði teknir upp og að fjár­fest­ing í nýsköpun verði aukin um fjóra millj­arða króna.

Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn lagði fram til­lögur í apríl undir yfir­skrift­inni: „Mið­flokk­ur­inn vill neyð­ar­að­gerðir strax“. Hann hélt svo flokks­ráðs­fund 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem sá til­lögu­pakki, sem er ætlað að koma til móts við þann bráða­vanda sem steðjar að heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins vegna veiru­far­ald­urs­ins, var ítrek­aður. Ítrekað var í álykt­unum Mið­flokks­ins á flokks­ráðs­fund­inum að hann teldi efna­hags­að­gerðir stjórn­valda „langt frá því að vera ásætt­an­legar.“

Markmið aðgerð­anna sem flokk­ur­inn vill ráð­ast í eiga að vera þau að verja kjör, auka ráð­stöf­un­ar­tekjur, verja störf, auð­velda atvinnu­líf­inu sókn á erf­iðum tímum, gera ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum kleift að leggj­ast í dvala, efla inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu, skýra eign­ar­hald rík­is­ins yfir auð­lindum þjóð­ar­innar og tryggja áfram­hald­andi nýt­ingu á þeim. Þá lagði Mið­flokk­ur­inn mikla áherslu á að nota tæki­færið í yfir­stand­andi kreppu til að ein­falda rík­is­rekur og hag­ræða innan hans. Um leið væri hægt að veita meiru fé til upp­bygg­ingar á innviðum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þegar hann hélt ræðu á flokksráðsfundi Miðflokksins 26. september.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þegar hann hélt ræðu á flokks­ráðs­fundi Mið­flokks­ins 26. sept­em­ber.

Tillögur Mið­flokks­ins voru ekki kostn­að­ar­metnar líkt og hjá Sam­fylk­ingu og Viðreisn, en slá má því föstu að þær séu mun kostn­að­ar­sam­ari fyrir rík­is­sjóð. Þær eru líka af allt öðrum toga en til­lögur hinna tveggja stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og fyr­ir­liggj­andi að þessir þrír flokkar eiga lítið sem ekk­ert sam­eig­in­legt þegar kemur að póli­tískum áherslum.

Lækka staðgreiðslu skatta í 24 prósent

Á meðal þess sem flokk­ur­inn vill gera er að lækka stað­greiðslu skatta, tekju­skatt og útsvar í 24 pró­sent til loka næsta árs. Stað­greiðsla skatta á launa­­tekjur í fyrra var á á bil­inu 35,04 til 46,24 pró­­sent að útsvari með­­­töldu. Því myndu skattar þeirra sem hæstu launin hafa, og greiða þar af leið­andi hæstu skatt­pró­sent­una, næstum helm­ing­ast.

Mið­flokk­ur­inn vill líka fella niður greiðslu vaxta og verð­bóta á fast­eigna­lánum atvinnu­lausra í allt að 18 mán­uði, en ekki er sér­stak­lega til­greint í til­lög­unum hver eigi að bera kostn­að­inn af því. Helstu fast­eigna­lán­veit­endur eru bankar og líf­eyr­is­sjóðir, ekki rík­is­sjóður. Þá vill flokk­ur­inn banna vísi­tölu­hækk­anir tíma­bundið og afnema með öllu skerð­ingar á greiðslum til eldri borg­ara og líf­eyr­is­þega.

Fella niður tryggingagjald og fasteignagjöldum frestað

Aðgerða­pakki Mið­flokks­ins fyrir atvinnu­lífið eru ekki síður stór­tækur, og kostn­að­ar­samur. Þar er lagt til að trygg­inga­gjald verði fellt niður í eitt ár, að vaxta­þak, sem verði ákvarðað með hlið­sjón af stýri­vöxtum Seðla­bank­ans (þeir eru eitt pró­sent) verði lög­fest á fryst lán fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyrir veru­legu tekju­falli og það það gildi í tvö ár.

Þá vill flokk­ur­inn að rekstr­ar­styrkir verði greiddir til fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyrir veru­legu tekju­falli, að greiðslum fast­eigna­gjalda (sem sveit­ar­fé­lög inn­heimta) verði frestað til sept­em­ber 2022, að sér­stök lán á mjög lágum vöxtum verði veitt litlum fyr­ir­tækjum og fyr­ir­tækjum á lands­byggð­inni, og að launa­tengd gjöld verði lækkuð.

Banna innflutning á frosnu kjöti og byggja mislæg gatnamót

Mið­flokk­ur­inn vill auka stuðn­ing við land­búnað og stöðva þegar í stað inn­flutn­ing á ófrosnu kjöti og eggjum. Þá kallar flokk­ur­inn eftir því að raf­orku­verði verði jafnað að fullu á milli dreif­býlis- og þétt­býlis.

Neyð­ar­að­gerðir Mið­flokks­ins í auð­linda­málum snýr fyrst og síð­ast að orku­málum. Þar vill flokk­ur­inn hafna frek­ari inn­leið­ingu á orku­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins, aft­ur­kalla sam­þykkt þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða og koma í veg fyrir fram­sal rík­is­valds til erlendra stofn­ana.

Þegar kemur að óskum Mið­flokks­ins um að ein­falda rík­is­rekst­ur­inn er ekki lögð fram eig­in­leg útfærsla á því verk­efni, heldur sagt að vilji sé til að „farið verði í rót­tæka vinnu við að draga úr íþyngj­andi reglu­verki og draga saman báknið.“

Þetta muni skila því að meira fé verði til staðar til að byggja upp inn­viði. Þeir inn­viðir sem flokk­ur­inn vill leggja áherslu á eru allt kunn bar­áttu­mál hans, sem voru komin til skjal­anna fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn. Má þar nefna að Mið­flokk­ur­inn vill að nýtt þjóð­ar­sjúkra­hús verði byggt á Keldum, að stór­út­gjöldum til borg­ar­línu verði hafnað en áhersla lögð á greiðar stofn­brautir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með mis­lægum gatna­mótum, bættri ljósa­stýr­ingu og lagn­ingu Sunda­brautar.

Þá vill flokks­ráð Mið­flokks­ins að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýr­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár