Bjarni: Þeir sem ekki sjá skort á svigrúmi eru ekki raunveruleikatengdir

Þing­flokks­for­maður Pírata segir að aug­ljós­lega sé ekki í for­gangs­röðun hjá rík­is­stjórn­inni að greiða þeim stéttum sem sinna ómissandi þjón­ustu í sam­fé­lag­inu mann­sæm­andi laun. Fjár­mála­ráð­herra segir það þvælu.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun hvort hann væri að hóta þeim stéttum sem nú standa í kjara­bar­áttu að ef þær féllu ekki frá kröfum sínum myndi hann segja upp lífs­kjara­samn­ing­unum. „Ætla stjórn­völd ekki að standa við lífs­kjara­samn­ing­ana í þeirri fjár­mála­á­ætlun sem von er á fljót­lega?“ spurði hún.

Hún vís­aði í orð ráð­herra í kvöld­fréttum á RÚV í vik­unni þar sem hann sagði að for­send­urnar fyrir lífs­kjara­samn­ingnum stæðu óskap­lega tæpt. Hann sagði að það væri ákveðið krafta­verk að samn­ing­arnir héldu enn og að enn væri tekið mið af þeim við gerð nýrra kjara­samn­inga.

Bjarni kom í pontu og spurði hvar Halldóra hefði verið og hvort menn átt­uðu sig ekki á því hvað væri að ger­ast á Íslandi. „Við erum að tapa á þessu ári, umfram það sem við héldum að yrði halli árs­ins, 250 millj­örðum eða álíka, tvö­faldri fjár­hæð sem við ætl­uðum til árs­ins 2033 að setja í höf­uð­borgar­pakka. Þar þótti mönnum nóg að gert,“ sagði hann.

Erum í varnarbaráttu

Bjarni sagð­ist ekki vita hvað hann gæti gert fólki til hjálpar sem skildi ekki hvað hefði breyst. „Það sem ég sagði um lífs­kjara­samn­ing­ana, sem hæst­virtur þing­maður heldur að rík­is­stjórnin hafi skrifað undir og sé aðili að en er ekki, er að lífs­kjara­samn­ing­arnir voru gerðir með stuðn­ingi stjórn­valda milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Það er ekki á verk­sviði stjórn­valda að segja þeim upp eins og hæst­virtur þing­maður spurði mig um.“

Þessir samn­ingar hefðu verið gerðir á þeim for­sendum sem fólk hefði haft á þeim tíma um fram­vindu efna­hags­mála. „Það sem ég hef sagt um þetta mál er að við höfum, þrátt fyrir að þær for­sendur hafi breyst í grund­vall­ar­at­riðum fram á þennan dag, enn verið að gera samn­inga sem taka mið af þessu. Samn­ingar sem ekki hafa tek­ist hafa haft það merki á sér, sem sagt við­ræð­urnar um þá samn­inga, að þar er farið fram á meira en lífs­kjara­samn­ing­arnir rúm­uðu. Það er óraun­hæft. Þeir sem ekki sjá það eru ekki að fylgj­ast með. Þeir sem ekki sjá að ekki er svig­rúm til að ganga lengra en lífs­kjara­samn­ing­arnir í nýjum kjara­samn­ingum eru ein­fald­lega ekki raun­veru­leika­tengdir,“ sagði Bjarni.

Hann bætti því við að við værum í varn­ar­bar­áttu. „Við erum að reyna að verja það sem var gert í lífs­kjara­samn­ing­unum og það stendur tæpt. Það stendur tæpt þegar 50.000 manns eru komin á atvinnu­leys­is­skrá í milli­tíð­inni.“

Snýst um forgangsröðun

Halldóra sagði í fram­hald­inu að hún átt­aði sig á ástand­inu, þetta sner­ist ein­fald­lega um for­gangs­röðun. „Þetta snýst bara um hug­mynda­fræði, þetta snýst um hvernig þú for­gangs­raðar verk­efnum sem á að setja fjár­magn í. Og það á aug­ljós­lega ekki að for­gangs­raða því að greiða hér mann­sæm­andi laun fyrir þær stéttir sem við höfum séð und­an­farið að sam­fé­lagið bók­staf­lega hrynur án þeirra. Það hrynur án þeirra.“

Hún sagð­ist enn fremur vera að benda á að svig­rúmið hefði verið gríð­ar­legt. „Jú, þetta er varn­ar­bar­átta en við erum að reyna að verja grunn­stoðir sam­fé­lags­ins og það eru þessir hópar sem sinna þessum störfum. Grunn­stoðir sam­fé­lags­ins, við viljum verja þær. Og snýr að því að greiða hér almenni­leg laun,“ sagði hún.

Elur á óánægju, streitu og veikindum að meta fólk ekki að verðleikum

Halldóra spurði því hvernig stæði á því að svig­rúmið væri enda­laust þegar kæmi að björg­un­ar­að­gerðum fyrir fyr­ir­tæki í þeirri varn­ar­bar­áttu en þegar kæmi að varn­ar­bar­áttu fyrir grunn­stoðir sam­fé­lags­ins og fyrir fólk sem ynni ómissandi þjón­ustu í sam­fé­lag­inu þá væri svig­rúmið ekki neitt.

„Þetta elur á óánægju, streitu og veik­indum að meta fólk ekki að verð­leikum. Þetta grefur undan grunn­stoðum sam­fé­lags­ins og ég spyr hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra: Hvað kostar það inn í fram­tíð­ina?“ spurði hún.

„Þetta er bara algjör þvæla“

Bjarni svar­aði öðru sinni og spurði á móti í hvað Halldóra héldi að þessir 250, kannski 300 millj­arðar í halla á rík­is­sjóði á þessu ári, færu í nema að borga opin­berum starfs­mönnum laun, að styðja við almanna­trygg­inga­kerfið, félags­legu kerfin og standa með húsa­leigu­bótum.

Hann hvatti Halldóru til að kynna sér það hvernig útgjöld rík­is­ins skipt­ust. „Við erum einmitt að for­gangs­raða í það að verja opin­bera þjón­ustu, sam­neysl­una, á þessum gríð­ar­lega erf­iðu tímum og við tökum lán fyrir þessu öllu saman. Við tökum lán fyrir því að verja opin­beru þjón­ust­una. Þá kemur hv. þing­maður og segir að vegna þess að við viljum ekki gera kjara­samn­inga sem eru umfram for­sendur lífs­kjara­samn­inga við ein­hverjar til­teknar stéttir þá séum við ekki að for­gangs­raða rétt. Þetta er bara algjör þvæla,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár