Bjarni: „Að fást við svona heimsfaraldur er eins og að klífa fjall“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra svarar því ekki hvort stjórn­völd hafi end­ur­metið vænt­ingar um fjölda ferða­manna sem koma til lands­ins í ár, í ljósi atburða síð­ustu daga.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði því ekki efn­is­lega hvort rík­is­stjórnin sé farin að end­ur­skoða áætl­anir sínar um komu ferða­manna hingað til lands í ár í ljósi þess hvernig hlutir hafa atvikast síð­ustu dag, þegar hann var spurður um það í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í dag.

Opin­berar áætl­anir rík­is­stjórn­ar­innar gera ráð fyrir að hingað til lands komi 720 þús­und ferða­menn í ár. Bjarni líkti þess í stað heims­far­aldr­inum við það að klífa fjall og að nú sæist glitta í tind­inn. „Það á að fylla okkur bjart­sýni. Við eigum ekki að tala eins og að eins og við séum að fara aft­urá­bak.“

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, spurði Bjarna hvort að fyr­ir­liggj­andi aðstæður; að veiran væri komin aftur á kreik með til­heyr­andi tak­mörk­unum á fólk og fyr­ir­tæki hér­lendis sem erlendis, að verð­bólga væri enn að vaxa (hún er nú 4,3 pró­sent) og að atvinnu­leysi væri gríð­ar­lega mikið (það er nú 12,5 pró­sent) köll­uðu ekki á að það þyrfti að fara að búa sig undir „hina verstu sviðs­mynd“.

[adspot]Jón Steindór skil­greindi þá sviðs­mynd þannig að ferða­manna­sum­arið myndi ekki koma og að það yrði heldur ekk­ert ferða­manna­haust.

Í fyr­ir­liggj­andi fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2022-2026 er meðal ann­ars byggt á því að meg­in­þorri lands­manna og íbúa helstu við­skipta­landa verði bólu­settur um mið­bik þessa árs. Á þeim grunni gerir þjóð­hags­spá Hag­stof­unnar ráð fyrir fjölgun ferða­manna sem drífi áfram efna­hags­batann, en gert er ráð fyrir að ferða­menn sem heim­sæki Ísland verði 720 þús­und í ár og fjölgi um 80 pró­sent á næsta ári, 2022, og verði þá 1,3 millj­ónir alls. Á metár­inu 2018 voru ferða­menn sem heim­sóttu Ísland 2,3 millj­ónir og árið 2019 voru þeir rétt tæp­lega tvær millj­ónir.

[links]Bjarni sagð­ist ekki getað svarað spurn­ingu Jóns Stein­dórs öðru­vísi en svo að stjórn­völd væru að miða sínar áætl­anir við bestu upp­lýs­ingar á hverjum tíma. „Að fást við svona heims­far­aldur er eins og að klífa fjall. Þetta er mjög hátt fjall. Við vissum varla hversu hátt það var þegar við lögðum af stað. Og í slíkum leið­angri þá þarf maður stundum að taka hlé og fara í búðir. Nú erum við farin að sjá tind­inn, loks­ins.“

Þar vís­aði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til þeirra straum­hvarfa sem væru að verða víða vegna bólu­setn­ingar. Í Bret­landi hefði til að mynda tek­ist að bólu­setja eina milljón manns á einum sól­ar­hring og um mitt ár 2021 standi til að meg­in­þorri full­orð­inna Íslend­inga verði bólu­settir. „Við erum að fara inn í árs­fjórð­ung sem er eins og loka­at­lagan að toppi fjalls­ins.“ Bjarni telur að allt annar veru­leiki muni taka við á seinni hluta yfir­stand­andi árs og það eigi að kalla fram bjart­sýni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár