Evrópsk knattspyrnusambönd styðja Blatter ekki áfram sem forseta FIFA

Michel Platini, for­seti knatt­spyrnu­sam­bands Evrópu, UEFA, segir að mik­ill meiri­hluti evr­ópskra knatt­spyrnu­sam­banda muni ekki styðja Sepp Blatter, núver­andi for­seta Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins, FIFA, í for­seta­kjör­inu sem á að fara fram á morgun. Þess í stað muni sam­böndin styðja jórdanska prins­inn Ali sem for­seta.

Öll 54 knatt­spyrnu­sam­böndin í Evrópu, þar á meðal full­trúar KSÍ, fund­uðu í Zurich í Sviss í dag til að ræða spill­ing­ar­málin sem komin eru upp á yfir­borðið. Í gær voru níu hátt­settir menn innan FIFA hand­teknir og ákærðir í Banda­ríkj­unum fyrir mútu­þægni, pen­inga­þvætti og fleira. Á morgun á að hefj­ast aðal­fundur sam­bands­ins þar sem Blatter er í fram­boði til áfram­hald­andi setu sem for­seti, gegn Ali.

Platini ræddi við fjöl­miðla rétt í þessu. Hann sagði að nú væri nóg komið. „Fólk vill ekki Sepp Blatter lengur og ég vil hann ekki lengur heldur. Ég hef alltaf sagt að við viljum að FIFA sé sterkt en FIFA er ekki sterkt lengur. Ég er enn að reyna að sann­færa nokkur evr­ópsk knatt­spyrnu­sam­bönd sem eru ekki alveg sann­færð,“ sagði hann, en tók ekki fram hvaða knatt­spyrnu­sam­bönd það væru.

Platini sagð­ist hafa talað við Sepp Blatter um málið. „Ég sagði honum að fara, að stíga til hliðar, vegna þess að þú svertir ímynd FIFA. Það er ekki auð­velt að segja vini að hann verði að fara en það er þannig sem sagan fer. Ég segi þetta með trega, með tár í aug­unum. Það hafa verið of margir skandalar.“ Blatter hafi hins vegar sagt að það væri of seint að hætta, það væri of stutt í að þing sam­bands­ins hæf­ist.

Á fundi UEFA í dag til­kynnti David Gill, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Manchester United, að hann myndi segja af sér sem vara­for­seti FIFA ef Sepp Blatter ber sigur úr býtum í kosn­ing­unum á morgun. Hann á að verða vara­for­seti frá og með morg­un­deg­inum, en hann er í stjórn bæði Evrópska knatt­spyrnu­sam­bands­ins og þess breska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár