Tveir af hverjum þremur Framsóknarmönnum vilja færri en 150 flóttamenn til Íslands

Ungt fólk vill taka á móti fleiri flótta­mönnum frá Sýrlandi en eldra fólk, stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­innar eru meira á móti mót­töku fleiri en 50 flótta­mönnum en þeir sem styðja hana ekki, íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vilja taka á móti fleiri flótta­mönnum en þeir sem búa á lands­byggð­inni og launa­lægstu Íslend­ing­arnir eru þeir sem eru and­snún­astir því að fleiri flótta­menn komi til Íslands. Rúmur helm­ingur stuðn­ings­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins vill taka við engum eða færri en 50 flótta­mönnum og tveir af hverjum þremur þeirra vilja taka við færri en 150 slíkum. Annar hver kjós­andi Bjartrar fram­tíðar vill hins vegar taka við fleiri en þús­und.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun MMR á því hversu mörgum flótta­mönnum frá Sýrlandi Íslend­ingar telji að við eigum að taka á móti á næstu tólf mán­uðum.

Líkt og greint var frá fyrr í dag voru 88,5 pró­sent Íslend­inga þeirrar skoð­unar að Ísland ætti að taka á móti ein­hverjum fjölda flótta­manna frá Sýrlandi. Það þýðir að 11,5 pró­sent lands­manna eru þeirrar skoð­unar að Ísland eigi ekki að taka við neinum. Í könn­un­inni voru svar­mögu­leikar gefnir upp á ákveðnu fjölda­bili. Neðsta bilið var "engum" en það efsta "meira en 2000". Um fimmti hver svar­andi (19,1 pró­sent) sagð­ist vera þeirrar skoð­unar að Ísland eigi að taka við "allt að 50". Flestir svar­endur nefndu þann mögu­leika. Til sama­burðar svör­uðu næst­flestir því til að þeir vildu taka á móti "meira en 2000" eða 14,8 pró­sent.

Karlar neikvæðari en konur


MMR kann­aði einnig hvernig stuðn­ingur við aukna flótta­manna­mót­töku frá Sýrlandi skipt­ist á milli ald­urs­hópa, kyns, lands­svæða, tekju­hópa og stjórn­mála­skoð­ana.

Samkvæmt nið­ur­stöðum fyr­ir­tæk­is­ins eru karlar nei­kvæð­ari gagn­vart því að taka við fleiri flótta­mönnum en konur. Þriðji hver karl­maður vill taka á móti 50 eða færri á meðan að 28 pró­sent kvenna eru á þeirri skoðun. Þá vilja 23 pró­sent kvenna taka á móti fleirum en eitt þús­und flótta­mönnum en 20 pró­sent karla.

Þegar skoð­aður er mun­ur­inn á vilja mis­mun­andi ald­urs­hópa til að taka við fleiri sýr­lenskum flótta­mönnum kemur í ljós að hann er mik­ill. Því eldra sem fólk er því færri flótta­mönnum vill það taka við. Það segir þó ekki alla sög­una því að hlut­fall þeirra sem vilja ekki taka við neinum flótta­mönnum er lægst í ald­urs­hópnum 68 ára og eldri. Flestir í þeim ald­urs­hópi vilja hins vegar taka á móti 50 flótta­mönnum eða færri , eða 35 pró­sent, og ein­ungis fimm pró­sent hans vilja taka við fleiri en eitt þús­und flótta­mönnum. Í ald­urs­hópnum 18-29 ára vilja 21 pró­sent taka við 50 flótta­mönnum eða færra en 35 pró­sent fleiri en eitt þús­und.

aldur

|

Create infographics

Tekjulægsti hópurinn mest á móti og vill taka á móti flestum

Íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru mun viljugri til að taka á móti flótta­mönnum en þeir sem búa á lands­byggð­inni. Alls segj­ast 27 pró­sent þeirra vilja taka á móti engum eða allt að 50 flótta­mönnum á meðan að það hlut­fall er 36 pró­sent hjá lands­byggð­inni. Þá vilja 24 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa taka við eitt þús­und eða fleiri flótta­mönnum næsta árið á meðan að það hlut­fall er 16 pró­sent hjá lands­byggð­ar­fólki.

Það kemur kannski lítið á óvart að tekju­lægsti hóp­ur­inn, þeir sem eru með undir 250 þús­und krónur í tekjur á mán­uði, eru and­snún­astir því að taka á móti fleiri en 50 flótta­mönnum. Alls segj­ast 40 pró­sent þeirra ekki vilja taka við fleiri en 50 og 27 pró­sent hóps­ins vilja ekki taka við neinum. Það vekur hins vegar athygli að sami tekju­hópur er viljugri en aðrir til að taka við eitt þús­und flótta­mönnum eða fleiri, en 31 pró­sent hans segj­ast vera þeirrar skoð­unar. Samkvæmt könn­un­inni eru tækju­lægri (þeir sem eru með 600 þús­und á mán­uði og undir) viljugri til að taka á móti þús­und flótta­mönnum eða fleiri en þeir tekju­hærri (með meira en 600 þúsun krónur á mán­uði).

Tveir af hverjum þremur Framsóknarmönnum vilja undir 150 flóttamenn

Stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­innar eru miklu lík­legri til að vera fylgj­andi miklum tak­mörk­unum á mót­t­töku flótta­manna en þeir sem styðja hana ekki. Þannig segj­ast 42 pró­sent stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar vilja annað hvort enga (15 pró­sent) eða færri en 50 flótta­menn (27 pró­sent) hingað til lands. Einungis tíu pró­sent þeirra vilja taka á móti fleiri en eitt þús­und flótta­mönnum á meðan að 28 pró­sent þeirra sem styðja ekki rík­is­stjórn­ina vilja það. Af þeim hópi vilja raunar 21 pró­sent taka á móti fleirum en 2000.

Stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins eru lang­nei­kvæð­astir í garð mót­t­töku flótta­manna. Alls vilja 18 pró­sent þeirra ekki taka við neinum, 27 pró­sent þeirra vilja ekki taka við fleiri en 50 og 14 pró­sent þeirra vilja ekki taka við fleiri en 150. Því vilja tveir af hverjum þremur stuðn­ings­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins ekki taka við fleiri en 150 flótta­mönnum frá Sýrlandi.


Þeir sem segj­ast styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru einnig nokkuð nei­kvæðir í garð þess að taka við miklum fjölda flótta­manna frá Sýrlandi. Alls segj­ast 59 pró­sent þeirra vilja taka við færri en 150 flótta­mönnum.

Stuðn­ings­menn Bjartrar fram­tíðar eru þeir sem vilja taka við sem flestum flótta­mönnum. Alls vilja 36 pró­sent þeirra taka við meira en 2000 flótta­mönnum og 17 pró­sent þeirra vilja taka við á milli eitt og tvö þús­und. Þó er vert að hafa í huga að Björt fram­tíð mælist lang­minnst þeirra stjórn­mála­afla sem eiga full­trúa á þingi með um fjögur pró­sent fylgi um þessar mundir. Því eru stuðn­ings­menn flokks­ins mun færri en ann­arra flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár