Dómskerfið misst 7% traust

Traust á Alþingi hefur auk­ist á árinu, nú segj­ast 29 pró­sent treysta Alþingi en þingið hafði 22 pró­senta traust fyrir ári. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Sjö pró­sentum færri treysa dóms­kerf­inu nú en fyrir ári síðan. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Nú segj­ast 36 pró­sent treysta dóms­kerf­inu en á sama tíma í fyrra voru það 43 pró­sent.

Traust á Alþingi hefur auk­ist á árinu, nú segj­ast 29 pró­sent treysta Alþingi en þingið hafði 22 pró­senta traust fyrir ári.

Þjóð­kirkjan og lög­reglan hafa glatað mestu trausti eða 8 pró­sentu­stigum. Lög­reglan er þó enn með mikið traust, en nú segj­ast 77 pró­sent treysta lög­regl­unni en áður voru það 85 pró­sent. Þjóð­kirkjan hins vegar mælist ekki með nema 30 pró­senta traust, úr 38 pró­sentum.

Lang­flestir bera traust til Land­helg­is­gæsl­unnar eða 91 pró­sent og þar á eftir kemur emb­ætti for­seta Íslands með 80 pró­senta traust.

Traust til heil­brigð­is­kerf­is­ins mælist hærra en í fyrra og það sama má segja um þær fimm stofn­anir sem mæl­ast með minnst traust, sem eru umboðs­maður skuld­ara, Alþingi, Fjár­mála­eft­ir­litið, borg­ar­stjórn og banka­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár