Seðlabanki Íslands í baktjaldamakki með kröfur á Sparisjóðabankann

Seðla­banki Íslands vill ekki upp­lýsa um hvort hann sé raun­veru­legur eig­andi um 80 pró­sent sam­þykktra krafna í bú Spari­sjóða­banka Íslands sem banda­ríski stór­bank­inn Morgan Stanley keypti í jan­úar síð­ast­liðnum. Morgan Stanley vill ekki segja hver eig­andi krafn­anna sem hann keypti er og ber fyrir sig banka­leynd. Slita­stjórn Spari­sjóða­bank­ans hafa ekki borist nein fram­söl á umræddum kröfum og getur því ekki skráð við­skiptin í kröfu­hafa­skrá.

Þetta var staðan þegar fram fór kröfu­hafa­fundur hjá þrota­búi Spari­sjóða­bank­ans, sem nú heitir SPB ehf., á mið­viku­dag í síð­ustu viku.

Morgan Stanley kaupir kröfur á Sparisjóðabankann


Þann 23. jan­úar 2015 barst kröfu­höfum í þrotabú Spari­sjóða­bank­ans til­boð frá banda­ríska stór­bank­anum Morgan Stanley. Í til­boð­inu fólst að bank­inn var til­bú­inn að skipta á kröfum á Spari­sjóða­bank­ann fyrir kröfur á þrotabú Kaup­þings. Samkvæmt til­boð­inu skyldi það telj­ast sam­þykkt og bind­andi samn­ingur kom­inn á ef eig­endur krafna að lág­marki 55 millj­arða króna tækju til­boð­inu.

Morgan Stanley sendi síðan öllum kröfu­höfum Spari­sjóða­bank­ans til­kynn­ingu 30. jan­úar þar sem stað­fest var að skil­yrði til­boðs­ins hefðu verið upp­fyllt og við­skipti því orðið.

Seðlabankinn langstærsti kröfuhafinn


Spari­sjóða­bank­inn var tek­inn til slita­með­ferðar í mars 2009. Eigna­safn Seðla­banka Íslands, betur þekkt sem ESÍ, lýsti hæstu kröf­unum í búið, alls upp á 225 millj­arða króna. Kröf­urnar eru að mestu til komnar vegna end­ur­hverfra við­skipta, oft kölluð ást­ar­bréfa­við­skipti, sem Spari­sjóða­bank­inn átti við Seðla­bank­ann. Slita­stjórn SPB hafn­aði stærstum hluta krafna ESÍ og lengi hefur staðið til að það mál yrði leitt til lykta fyrir dóm­stólum, enda ekki hægt að ljúka nauða­samn­ingi bús­ins þegar stærsti hluti krafna í það er enn í ágrein­ingi. Til stóð að mál­flutn­ingur færi loks fram snemma í mars 2015. Áður en af því varð, og eftir hið skyndi­lega til­boð Morgan Stanley, lagði ESÍ hins vegar fram tvö sátta­til­boð.

Það fyrra var lagt fram 2. febr­úar síð­ast­lið­inn og fól í sér að krafa ESÍ yrði við­ur­kennd sem almenn krafa upp á 149,3 millj­arða króna og sam­hliða yrði minna máli lokið með því að ESÍ myndi end­ur­greiða þrota­búi Spari­sjóða­bank­ans 1,6 millj­arð króna. Þessu til­boði var hafnað af slita­stjórn þar sem það þótti alls ekki við­un­andi. Hún hefur talið að virði kröf­unnar ætti að vera mun lægra.

Til að setja stærð kröfu ESÍ í sam­hengi þá er nafn­virði ann­arra sam­þykktra almennra krafna í búið um 85 millj­arðar króna.

[caption id="attachment_24614" align="alignnone" width="690"] Banda­ríski stór­bank­inn Morgan Stanley leikur lyk­il­hlut­verk í fléttu með kröfur í bú Spari­sjóða­bank­ans.[/caption]

Nýtt sáttartilboð


ESÍ var ekki af baki dottið og sendi inn nýtt sátt­ar­til­boð, dag­sett 23. febr­úar 2015. Það hljóð­aði upp á að krafa félags­ins yrði metin á 132 millj­arða króna og að ESÍ myndi end­ur­greiða tvo millj­arða króna vegna minna máls­ins. Slita­stjórn Spari­sjóða­bank­ans var enn ekki sátt og taldi, sam­kvæmt bréfum til kröfu­hafa sem Kjarninn hefur undir höndum, að til­boðið væri ekki nógu hátt.

Bandaríski stórbankinn Morgan Stanley leikur lykilhlutverk í fléttu með kröfur í bú Sparisjóðabankans.
Banda­ríski stór­bank­inn Morgan Stanley leikur lyk­il­hlut­verk í fléttu með kröfur í bú Spari­sjóða­bank­ans.

Til­boð­inu var hins vegar ekki hafnað og slita­stjórn Spari­sjóða­bank­ans sam­þykkti, að beiðni for­svars­manna ESÍ, að kynna það á skipta­fundi og bera undir atkvæði kröfu­hafa. Í kjöl­farið var boðað til kröfu­hafa­fundar til að greiða atkvæði um til­boðið og fór sá fundur fram á mið­viku­dag í síð­ustu viku, 25. mars.

Er ESÍ á bakvið kaup Morgan Stanley?


Ljóst var að Morgan Stanley hefði átt að vera ráð­andi í þeirri atkvæða­greiðslu, enda hafði bank­inn keypt um 80 pró­sent allra sam­þykktra almennra krafna í bú Spari­sjóða­bank­ans með því að skipta á þeim og kröfum á Kaupþing í jan­úar.

Við und­ir­bún­ing kröfu­hafa­fund­ar­ins kom hins vegar babb í bát­inn. Engin fram­söl höfðu borist til slita­stjórnar Spari­sjóða­bank­ans sem stað­festu að Morgan Stanley væri orð­inn rétt­bor­inn eig­andi krafn­anna sem bank­inn hafði til­kynnt um að hann hefði keypt. Og slita­stjórn Spari­sjóða­bank­ans getur ekki upp­fært kröfu­hafa­skrá nema að fram­söl liggi fyrir. Atkvæða­greiðsla um sátt­ar­til­boð ESÍ myndi alltaf fara fram á grund­velli kröfu­hafa­skráar.

Í bréfi til kröfu­hafa, sem slita­stjórnin sendi 20. mars og Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram að slita­stjórnin óskaði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um við­skiptin frá Morgan Stanley og ESÍ. Ástæða þess að leitað var einnig til ESÍ var sú að flestir sem að mál­inu koma telja blasa við að ESÍ hafi staðið á bak­við við­skipti Morgan Stanley. Banda­ríski bankaris­inn hafi bara verið milli­liður fyrir þetta eigna­um­sýslu­fé­lag Seðla­bank­ans. Morg­un­blaðið hefur til að mynda fjallað ítar­lega um þennan anga máls­ins.

Slita­stjórnin fór fram á að vita hvert umfang við­skipt­anna hafi verið, hver hefði átt kröf­urnar á Kaupþing sem nota átti til að skipta á kröfum á Spari­sjóða­bank­ann og tengsl við­skipt­anna við ESÍ og það sátt­ar­til­boð sem félagið hafði lagt fram.


Vildu ekki upplýsa hver ætti kröfurnar


Morgan Stanley og ESÍ var gef­inn viku­frestur til að svara spurn­ing­unum og varpa þar með ljósi á eign­ar­hald krafn­anna. Í bréfi slita­stjórn­ar­innar til kröfu­hafa segir: „ESÍ svar­aði ekki erindi slita­stjórnar SPB og Morgan Stanley veitti engin svör við þeim spurn­ingum er voru sendar og vís­aði ein­ungis til banka­leyndar.“

sparisjoda
spari­sjoda

Þar sem engin svör bár­ust ákvað slita­stjórnin að ekk­ert yrði af fyr­ir­hug­aðri atkvæða­greiðslu um sátt­ar­til­lögu ESÍ á kröfu­hafa­fund­inum í síð­ustu viku.

En af hverju vill ESÍ, félag í eigu Seðla­banka almenn­ings, ekki upp­lýsa um umrædd við­skipti? Hvaða hag hefur félagið af því? Ein ástæða sem nefnd hefur verið er sú að ef ESÍ er raun­veru­legur eig­andi þeirra krafna sem Morgan Stanley keypti í jan­úar þá hefði félagið ekki mátt kjósa um sátt­ar­til­boð sitt á kröfu­hafa­fund­inum sökum van­hæf­is­reglu í gjald­þrota­lögum.

Máttu ekki greiða atkvæði


Þeir sem fóru með umboð kröfu­hafa á kröfu­hafa­fund­inum í síð­ustu viku lýstu yfir ein­dregnum vilja til að taka sátt­ar­til­boði ESÍ. Slita­stjórn Spari­sjóða­bank­ans er hins vegar nokkur vandi á höndum. Hennar hlut­verk er aug­ljós­lega ekki að standa gegn meiri­hluta­vilja kröfu­hafa, en hún þarf að vita hverjir raun­veru­legir eig­endur krafna eru áður en hún getur tekið ákvörðun um hvort að sá meiri­hluta­vilji sé til staðar, að teknu til­liti til van­hæf­is­reglu gjald­þrota­laga sem heim­ilar ESÍ ekki að taka afstöðu til síns eig­ins sátt­ar­til­boðs.

Þess má geta að íslenska fjár­mála­fyr­ir­tækið Arctica Finance var ráðið af Morgan Stanley til að sjá um sam­skipti við íslensku kröfu­haf­ana sem áttu kröf­unar sem bank­inn keypti í jan­úar. Á meðal þeirra sem komu að þeirri vinnu fyrir hönd Arctica Finance var Agnar Hansson, for­stöðu­maður mark­aðsvið­skipta fyr­ir­tæk­is­ins. Hann var banka­stjóri Spari­sjóða­bank­ans þegar hin kostn­að­ar­sömu end­ur­hverfu við­skipti hans við Seðla­bank­ann áttu sér stað fyrir banka­hrun.

Seðlabankinn neitar að svara spurningum


[quote font="0" align="right"]Kjarninn hefur reynt að fá svör frá Seðla­banka Íslands, sem á og starf­rækir ESÍ, vegna máls­ins frá því snemma í febr­úar. Fyrsta fyr­ir­spurn vegna þessa var send 4. febr­úar. Seðla­bank­inn hefur ekki viljað svara neinum spurn­ingum um málið.[/quote]

Kjarninn hefur reynt að fá svör frá Seðla­banka Íslands, sem á og starf­rækir ESÍ, vegna máls­ins frá því snemma í febr­úar. Fyrsta fyr­ir­spurn vegna þessa var send 4. febr­úar. Seðla­bank­inn hefur ekki viljað svara neinum spurn­ingum um málið, en meðal þess sem spurt var um var:

Er ESÍ end­an­legur eig­andi þeirra krafna á sem Morgan Stanley keypti á þrotabú SPB?

Hver var eig­andi þeirra krafna á Kaupþing sem not­aðar voru til að greiða fyrir kröfur á þrotabú SPB?

Ef ESÍ er end­an­legur kaup­andi þess­arra krafna, af hverju var félagið að kaupa þær?

Sam­ræm­ist það hlut­verki félags­ins að kaupa kröfur með þessum hætti?

Einu svörin sem feng­ist hafa frá Seðla­bank­anum eru þau að ef ein­hver við­skipti muni eiga sér stað sem vert sé að skýra frá þá komi það í ljós í fyll­ingu tím­ans.

Af hverju leynimakk?


En af hverju þetta leyni­makk? Af hverju er ekki hægt að skýra frá því hvort félag í eigu Seðla­banka almenn­ings sé að skipta á kröfum á einn fall­inn banka fyrir kröfur á annan? Ein kenn­ingin er sú að Seðla­bank­inn vilji fyrir alla muni, af ein­hverjum ástæðum, losna við að ágrein­ingur um kröfu hans í bú Spari­sjóða­bank­ans fari fyrir dóm­stóla. Þá myndi fara fram efn­is­leg með­ferð þar sem fjöl­margir þyrftu að bera vitni um inn­tak og eðli „ást­ar­bréfa­við­skipt­anna“ sem eru ástæða krafna bank­ans í bú Spari­sjóða­bank­ans.

Ef ESÍ tekst að kom­ast yfir þorra almennra krafna í bú Spari­sjóða­bank­ans, og sam­þykkja í krafti þess mikla meiri­hluta útistand­andi kröfu sína í búið, verður hægt að ljúka skiptum fljót­lega og renna eignum bús­ins undir ESÍ eða dótt­ur­fé­lag þess Hildu.

Svör fást hins vegar ekki á meðan að Seðla­banki Íslands neitar að tjá sig um hvernig hann er að stunda við­skipti með kröfur í þrotabú fall­ins banka sem Seðla­bank­inn hafði sjálfur verið í miklum við­skiptum við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár