Obama ætlar að tilnefna næsta hæstaréttardómara í stað Scalia

Antonin Scalia lést um helg­ina. Við and­lát hans losnar sæti í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna. Gíf­ur­legu máli mun skipta hvort repúblikani eða demókrati muni skipa eft­ir­mann hans.

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti sagði í gær­kvöldi að hann ætli sér að til­nefna dóm­ara við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna til að taka sæti Antonin Scalia, sem lést á laug­ar­dag 79 ára aldri. Hann svar­aði því ákalli úr her­búðum repúblik­ana um að það yrði eft­ir­látið næsta for­seta Banda­ríkj­anna, sem tekur við emb­ætti eftir eitt ár, að skipa næsta dóm­ara við rétt­inn.

Um risa­stóra, og afdrifa­ríka, ákvörðun verður að ræða. Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna er gíf­ur­lega valda­mik­ill og hefur mikil áhrif á þær línur sem dregnar eru í banda­rísku sam­fé­lagi. Í rétt­inum sitja níu dóm­arar sem skip­aðir eru til lífs­tíðar, eða þangað til að þeir ákveða sjálfir að hætta. Tíma­móta­dómar rétt­ar­ins falla oft þannig að fimm dóm­arar eru þeim fylgj­andi en fjórir and­snúnir.

Í ljósi þess að gjá er á milli frjáls­lyndra við­horfa demókrata og íhaldsam­ari við­horfa repúblik­ana þá skiptir miklu máli hvor flokk­ur­inn er við völd þegar skipa þarf nýjan dóm­ara. Og hvort sá dóm­ari túlki stjórn­ar­skrá og lög lands­ins á íhalds­saman og bók­staf­legan hátt eða hvort hann sé fram­sýnni og líti á stjórn­ar­skránna sem dýnamíska og und­ir­orpna túlk­unum sem taki mið af sam­tím­anum hverju sinni.

Obama hefur þegar skipað tvo hæstar­rétt­ar­dóm­ara síðan að hann tók við emb­ætti. Það kom mjög í ljós í fyrra, þegar Hæsti­rétt­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu með fimm atkvæðum gegn fjórum, að sam­kyn­heigðir Banda­ríkja­menn ættu rétt á því að gift­ast, hversu miklu máli það skiptir hvort skip­aðir séu frjáls­lyndir eða íhaldsamir dóm­arar í rétt­inn. Báðir dóm­ar­arnir sem Obama hefur skipað, þær Sonia Sotom­a­yor og Elena Kagan, voru á meðal þeirra fimm sem greiddu atkvæði með hjóna­bandi sam­kyn­hneigðra.

Scalia var bæði hataður og virtur

Scalia var einn þeirra fjög­urra sem var á móti þeirri ákvörðun. Hann var skip­aður dóm­ari við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna af Ronald Reagan árið 1986. Þegar hann lést hafði Scalia setið lengst allra dóm­ara í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna. Hann var fyrsti ítalski-Banda­ríkja­mað­ur­inn sem tók sæti í rétt­inum og vakti fljót­lega athygli fyrir skoð­anir sínar og ekki síður vilja sinn til þess að takast á um þær út á við. Scalia, sem var flug­beittur og eld­klár, er tal­inn hafa veitt þeim sem hafa íhaldsam­ari stjórn­mála­skoð­anir og túlka stjórn­ar­skrá lands­ins á þrengri hátt en margir aðrir mikið sjálfs­traust með fram­göngu sinni. Áhrif hans teygja sig því langt út fyrir setu hans í Hæsta­rétti.

Scalia var bók­stafs­trú­ar­maður á stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna. Þ.e. hann trúði því að hún ætti að standa eins og hún væri skrifuð en ekki túlkuð í sam­ræmi við sam­tím­ann hverju sinni. Hann var and­stæð­ingur fóst­ur­eyð­inga, stóð gegn auknum rétt­indum sam­kyn­hneigðra sem hann taldi ekki sam­rým­ast stjórn­ar­skrá og var fylgj­andi dauða­refs­ingu. Þá stóð hann líka vörð um rétt Banda­ríkja­manna til að bera vopn.

Vegna harðrar afstöðu í þessum miklu deilu­málum, sem snúa mörg hver að grund­vall­ar­mann­rétt­indum, var Scalia bein­línis hat­aður af mörgum frjáls­lyndum Banda­ríkja­mönnum. En hann var einnig mjög virtur í mörgum kreðsum, bæði á meðal kollega sinna í lög­manna­stétt, í fræða­sam­fé­lag­inu og á meðal frjáls­lynd­ari sam­starfs­manna innan Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna sem höfðu fram­sækn­ari sýn á hvernig ætti að túlka lög og stjórn­ar­skrá lands­ins en Scalia. Elena Kagan, sem Obama skip­aði sem Hæsta­rétt­ar­dóm­ara árið 2010 og þykir afar frjáls­lynd, og Scalia urðu til að mynda miklir vinir. Þau fóru meira að segja á veiðar saman, en Kagan hafði aldrei áður veitt með skot­vopnum áður en hún kynnt­ist Scalia.

Rétturinn til að eiga byssur tryggður

Frægasti dóm­ur­inn sem Scalia skrif­aði, og var felldur með sam­þykki fimm hæsta­rétt­ar­dóm­ara gegn and­stöðu fjög­urra, var í mál­inu District of Columbia gegn Heller og féll árið 2008. Þar komst rétt­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu í fyrsta sinn að annar við­auka stjórn­ar­skráar Banda­ríkj­anna veiti lands­mönnum rétt til að eiga byssur án þess að sú eign sé tengd her­þjón­ustu af ein­hverjum toga.

Síðasti dóm­ur­inn sem féll með Scalia inn­an­borðs sem vakti mikla athygli féll í síð­ustu viku, þegar hömlur sem settar eru á í stefnu Obama í loft­lags­málum var úrskurðuð í and­stöðu við stjórn­ar­skrá.

Mun hafa áhrif á forsetakosningarnar

Þótt Obama hafi sagt að hann ætli sér að til­nefna næsta dóm­ara við rétt­inn, og með því tryggja frjáls­lynd­ari armi hans stöðugan meiri­hluta í Hæsta­rétti, þá er alls ekk­ert víst að það tak­ist hjá honum. Öld­ung­ar­deild Banda­ríkja­þings þarf nefni­lega að sam­þykkja þann dóm­ara sem er til­nefndur áður en hann getur tekið sæti í Hæsta­rétti. Þar eru repúblikanar með meiri­hluta og erfitt verður fyrir Obama að koma til­nefn­ingu sinni í gegnum hana. Raunar gerð­ist það síð­ast árið 1895 að for­seti demókrata til­nefndi dóm­ara við Hæsta­rétt á sama tíma og repúblikanar voru með meiri­hluta í öld­ung­ar­deild­inni. Það er því ljóst að mikil bar­átta er framundan að koma til­nefn­ing­unni í gegn. Sér­stak­lega þar sem repúblikanar hafa þegar skorað á for­set­ann að eft­ir­láta eft­ir­manni sínum ákvörð­un­ina.

Andlát Scalia mun einnig hafa mikil áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Repúblikana­megin mun Ted Cruz, sem er mjög hægri­s­inn­aður, lík­ast til hagn­ast mest á stöð­unni sem upp er komin. Frétta­skýrendur í Banda­ríkj­unum segja að hann muni nú leggja mikla áherslu á að hann muni skipa mjög íhaldsaman aðila í rétt­inn til að standa vörð um ýmis grund­vall­ar­gildi sem hann, og fylg­is­menn hans, telja að séu horn­steinn banda­rísks sam­fé­lags.

Ótrúlegt en satt þá er einnig talið að Hillary Clinton gæti grætt á mál­inu. Hún hefur verið að tapa mörgum ungum konum úr stuðn­ings­liði sínu yfir til Bernie Sanders vegna þess að henni hefur ekki tek­ist að sann­færa þær um að bar­áttan fyrir auknum rétti kvenna standi enn sem sem hæst. Í ljósi þess að breyt­ingar á sam­setn­ingu Hæsta­réttar geti breytt túlk­unum hans á ýmsum grund­vall­ar­mann­rétt­indum þá ætti skipan nýs dóm­ara við rétt­inn að færa Clinton byr í seglin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár