Merkel: Átökin verður að leysa á friðsælan máta

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, var í opin­berri heim­sókn í Moskvu í dag í til­efni hátíð­ar­halda vegna Sig­ur­dags­ins í gær. Merkel hafði verið boðið, ásamt leið­togum sig­ur­veg­ara seinni heim­styrj­ald­ar­innar, að vera við­stödd her­sýn­ingu rúss­neska hers­ins á Rauða torg­inu en þekkt­ist ekki boðið.

Eftir að hafa lagt blómsveig að leiði óþekkta her­manns­ins héldu þau Merkel og Vladimír Pútín, Rúss­lands­for­seti, sam­eig­in­legan blaða­manna­fund þar sem Merkel und­ir­strik­aði mik­il­vægi sam­vinnu í alþjóða­málum, sér­stak­lega í tengslum við átökin í Úkraínu. Frá þessu er greint á Deutsche Welle.

„Við höfum lært af bit­urri reynslu og erf­iðum aðstæðum,“ sagði Merkel á fund­inum og hélt áfram: „Og nú verðum við að yfir­stíga þessa hindrun [átökin í Úkraínu] á frið­sælan hátt með diplómat­ískum leiðum.“

Vopna­hléssamn­ingur var und­ir­rit­aður i Minsk í Hvíta-Rúss­landi í febr­úar en síðan hafa átökin haldið áfram. Á föstu­dag bár­ust fregnir af því að átökin í Austur-Úkraínu hafi náð nýjum hæðum eftir und­ir­ritun sam­komu­lags­ins.

Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, og Angela Merkel lögðu mikla áherslu á að leiða stríð­andi fylk­ingar að samn­inga­borð­inu í vetur til að hægt væri að binda endi á átökin í aust­ur­hluta Úkraínu. Þar berst stjórn­ar­her Úkraínu gegn upp­reisn­ar­mönnum sem vilja heldur tengj­ast Rússum í austri.

Pútín lét hafa eftir sér á blaða­manna­fund­inum í dag að hljóð­lát­ara hafi verið í Úkraínu und­an­farið og að vopna­hléið héldi áfram að vera í gildi „þrátt fyrir ýmis vand­ræði“. Merkel sagði hins vegar við blaða­menn eftir fund­inn með Pútín að enn hafi vopna­hlé ekki haf­ist. „Við höfum ekk­ert vopna­hlé ennþá“.

Við­skipta­þving­anir vest­ur­veld­anna gegn Rúss­landi og ein­stak­lingum sem tengj­ast rík­is­stjórn Rúss­lands, Krím­skaga eða Úkraínu, halda áfram að kæla sam­band stjórn­valda í Kreml við vest­ur­veldin. Þving­an­irnar hafa haft mikil áhrif á efna­hag­inn í Rúss­landi.

Merkel, sem hefur leikið hlut­verk mála­miðl­ara milli Pútíns og vest­ur­heims und­an­farna mán­uði, var í sinni fyrstu opin­beru heim­sókn í Rúss­landi síðan í febr­úar.

Eins og Kjarninn greindi frá í gær þekkt­ust leið­togar sig­ur­þjóða í seinni heim­styrj­öld­inni ekki boð Pútíns um að vera við­stödd her­sýn­ingu á Rauða torg­inu í Moskvu í gær, 9. maí, þegar haldið var upp á 70 ára afmæli stríðsloka. „Allir sem ég vildi hitta voru hér,“ sagði Pútín í sjón­varps­við­tali í gær­kvöldi. Hann þakk­aði þó banda­mönnum Sov­ét­ríkj­anna í stríð­inu fyrir „þeirra fram­lag“ til sig­urs­ins á Þýska­landi nas­ism­ans.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Rúss­neski her­inn stóð fyrir gríð­ar­stórri her­sýn­ingu á Rauða torg­inu í Moskvu í gær. Enginn leið­toga vest­ur­veld­anna sá sér fært að mæta svo Pútín sat við hlið Xi Jinping, for­seta Kína, á meðan sýn­ing­unni stóð.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár