Pútín segir BNA raska valdajafnvæginu fyrir sig eina

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, gagn­rýndi Banda­ríkin í hátíð­ar­ræðu sinni á Rauða torg­inu í dag fyrir að vera að „reyna að skapa ein­hliða heim“. Sigri í seinni heim­styrj­öld­inni er fagnað í dag í skugga átaka í Úkraínu og erf­iðra aðstæðna á alþjóða­póli­tískum vett­vangi.

Í dag eru liðin 70 ár frá því að seinni heim­styrj­öld­inni lauk með falli Þýska­lands nas­ism­ans í hendur Sov­ét­manna og að venju er Rauða torgið í Moskvu lagt undir hátíð­ar­höld á þessum Sig­ur­degi. Frá þessu er meðal ann­ars greint á The Guardian.

Þrátt fyrir boð um vera við­stödd hátíð­ar­höldin í Moskvu létu leið­togar ann­ara sig­ur­þjóða í seinni heim­styrj­öld­inni ekki sjá sig. Það eru leið­togar Banda­ríkj­anna, Bret­lands, Frakk­lands og Þýska­lands. Leið­togar Kína, Kúbu og Venus­ú­ela þekkt­ust hins vegar boð Pútíns. Angela Merkel mun þó leggja leið sína til Moskvu á morgun til að leggja blómsveig að leiði óþekkta her­manns­ins og hitta Pútín.

Í ræðu sinni í dag not­aði Pútín þekktan frasa Rússa­leið­toga um að Banda­ríkin séu að grafa undan sam­vinnu í alþjóða­málum og sagði heim­inn hafa séð „síð­ustu ára­tugi til­raunir til að skapa ein­hliða heim.“ Frasann hafa leið­togar Rússa notað þegar þeim finn­ast Banda­ríkin reyna að ein­oka heims­málin. Þetta segir Pútín vegna þess að við­skipta­þving­anir vest­ur­veld­anna hafa hoggið skarð í rúss­neskan efna­hag und­an­farið.

Pútin hefur þess vegna lagt meiri stund við að rækta sam­band Rúss­lands við Kína í austri, þar sem Xi Jinping ræður ríkjum. Jinping stóð ásamt Pútín á Rauða torg­inu í dag og fylgd­ist með gríð­ar­stórri her­sýn­ingu eins og þær sem Sov­ét­menn héldu til að und­ir­strika hern­að­ar­mátt sinn.

Í her­sýn­ing­unni í ár stærði rúss­neski her­inn sig af nýj­ustu her­tækni sinni. 16.000 her­menn í fylgd Armata-skrið­dreka og ann­ara þungra her­gagna mar­ser­uðu yfir torgið, auk þess sem vopn úr seinna stríði voru dregin fram til sam­an­burðar. Þá sýndi rúss­neski her­inn RS-24 Yars ICBM-skot­flaug­arnar í fyrsta sinn. Það vopn segja ráða­menn í Moskvu vera svar Rússa við eld­flauga­vörnum NATO vestan landamær­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár