Kjarninn setur á laggirnar nýjan skoðanavettvang

Settur hefur verið á fót nýr skoð­ana­vett­vangur sem nefn­ist Leslist­inn. Til­gang­ur­inn er að búa til umræðu­vett­vang þar sem ólíkar skoð­anir fái að njóta sín.

Kjarninn hefur sett í loftið nýjan skoð­ana­vett­vang sem nefn­ist Leslist­inn. Hug­myndin er að búa til umræðu­vett­vang – þar sem ægir saman fólk úr ýmsum áttum – með ólíka nálgun, mis­mun­andi skoð­anir, sér­fræði­þekk­ingu og áhuga­mál.

Von Kjarnans er að á þessum vett­vangi mynd­ist far­vegur fyrir umræðu sem er dýpri og með hærri gæða­stuðli en ann­ars staðar.

Þannig geti þátt­tak­endur á vett­vangnum – og aðrir sem vilja svara þeim með því að senda inn svar­greinar – gert það með því að takast á með upp­byggi­legri rök­ræðu.

Þannig tak­ist jafn­framt líka að rjúfa berg­máls­helli sam­fé­lags­miðla með því að halda á lofti fleiri skoð­unum og vinklum en aðeins þeim sem algoryt­hmar sam­fé­lags­miðla halda umræð­unni í.

[adspot]Efnistök eru algjör­lega frjáls en þó leit­aði Kjarninn til höf­unda Leslist­ans vegna þeirrar þekk­ingar sem þeir búa yfir á ákveðnum sviðum og von­ast er eftir að aðrir geti notið góðs af henni.

Nú eru þrjá­tíu manns komnir á list­ann og er mark­miðið að bæta veru­lega í á næstu vikum og mán­uðum.

Öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í að skrifa á Leslist­ann er frjálst að hafa sam­band við ritstjorn@kjarninn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár