Mynd: Eyþór Árnason

Forsætisráðuneytið lét vinna minnisblað um bankasöluna í kjölfar viðtals við Sigríði

Þremur dögum eftir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði falið Rík­is­end­ur­skoðun að gera stjórn­sýslu­út­tekt á sölu­ferl­inu á hlutum í Íslands­banka fékk for­sæt­is­ráðu­neytið minn­is­blað um ýmis álita­mál tengd söl­unni.

Þann 8. apríl 2022 birti Kjarninn stutt við­tal við Sig­ríði Bene­dikts­dótt­ur, hag­fræð­ing við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóra fjár­­­­­mála­­­stöð­ug­­­leika­sviðs Seðla­­­banka Íslands, þar sem hún sagð­ist telja að lög um sölu­­með­­­ferð eign­­ar­hluta rík­­is­ins í fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum hefðu verið brotin við sölu á hlut rík­­is­ins í Íslands­­­banka rúmum tveimur vik­­um fyrr. Í því sölu­ferli hafði 22,5 pró­sent hlutur í bank­anum verið seldur til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­arða króna. Verðið sem hóp­ur­inn greiddi var undir mark­aðs­verði Íslands­banka á þessum tíma. Sölu­ferlið hafði verið kynnt þannig að fara ætti þessa lok­uðu leið, svo­kall­aða til­boðs­leið, til að fá inn stóra fjár­festa sem ætl­uðu sér að verða eig­endur bank­ans til lengri tíma. Þegar salan var afstaðin kom hins vegar í ljós að alls 59 fjár­festar hefðu keypt fyrir minna en 30 millj­ónir króna og 20 fyrir 30-50 millj­ónir króna. Alls 167 aðilar keyptu fyrir 300 millj­ónir króna eða minna. Innan við mán­uði eftir útboðið höfðu að minnsta kosti 34 kaup­endur þegar selt hlut­ina sem þeir keyptu.

Sigríður sagði í við­tal­inu að þegar yfir lok­aður hópur aðila væri val­inn til að kaupa magn bréfa sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við mark­aðsvirði Íslands­­­banka ef þeir hefur keypt á eft­ir­­mark­aði, þá brjóti það í bága við 3. grein og mög­u­­lega einnig 2. grein umræddra laga. „Á grund­velli þess þarf ein­hver að axla ábyrgð fyrir að hafa heim­ilað þetta og auk þess þarf að rifta þessum við­­skiptum við ein­stak­l­inga og ehf., enda eru þau ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og mið­l­­urum hefði mátt vera það ljóst sem og því stjórn­­­valdi sem heim­il­aði þetta.“

Sig­ríður var einn þriggja sem mynd­uðu rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði umfangs­­­mik­illi skýrslu í apríl 2010. Hún sat einnig um nokk­­urra ára skeið í banka­ráði Lands­­bank­ans.

Ummælin vöktu mikla athygli og Banka­sýsla rík­is­ins, sú stofnun sem hafði umsjón með sölu­með­ferð­inni, brást við með til­kynn­ingu sama dag þar sem því var hafnað að ferlið hefði verið í and­stöðu við lög.

Degi áður, 7. apríl, hafði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og sá sem ber ábyrgð á með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í banka­kerf­inu, falið Rík­is­end­ur­skoðun að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á sölu­ferl­inu. Sú vinna átti að ganga hratt fyrir sig og skýrsla með nið­ur­stöðum Rík­is­end­ur­skoð­unar að liggja fyrir í júní. Hún er enn ekki komin út þrátt fyrir að í dag sé 22. októ­ber, en rík­is­end­ur­skoð­andi hefur sagt að hún muni líta dags­ins ljós í þessum mán­uði.

Þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar taldi þessa stjórn­sýslu­út­tekt ekki vera nægj­an­lega og vildu að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara yfir söl­una.

Ótímabært að fullyrða um ólögmæti

Í ljósi þess­arar atburða­rásar lét for­sæt­is­ráðu­neytið Jóhannes Karl Sveins­son, virtan lög­mann sem hið opin­bera leitar oft til þegar við blasa erfið úrlausn­ar­efni, vinna minn­is­blað um söl­una á hlut rík­is­ins á eign­ar­hlutum í Íslands­banka. Minn­is­blaðið, sem er dag­sett 10. apríl 2022, hefur aldrei komið fyrir augu almenn­ings, en Kjarninn hefur það undir höndum. Af lestri þess má ráða að ráðu­neytið hafi óskað eftir því að Jóhannes Karl tæki það saman í ljósi þess sem Sigríður Bene­dikts­dóttir hélt fram í við­tali við Kjarnann tveimur dögum áður og þremur dögum eftir að Bjarni Bene­dikts­son hafði ákveðið í hvaða far­veg hann vildi setja könnun á sölu­ferl­inu. Við­tak­andi minn­is­blaðs­ins var Bryndís Hlöðvers­dóttir, ráðu­neyt­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Lárus Blöndal er stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins og Jón Gunnar Jónsson er forstjóri hennar. Mynd: Úr safni
Lárus Blöndal er stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins og Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri hennar. Mynd: Úr safni

Í minn­is­blað­inu segir Jóhannes Karl það algjör­lega ótíma­bært að full­yrða nokkuð um að sölu­ferlið hafi verið ólög­legt á þeim tíma sem það er unnið. „Það er hins vegar aug­ljós­lega aðkallandi verk­efni að fara betur yfir ýmis atriði og meta ferlið og þær ákvarð­anir sem voru teknar á ný útfrá því.“

Hann telur enn fremur ekki raun­hæft að reyna að rifta eða ógilda hluta við­skipt­anna, þar sem ekki hafi legið fyrir nið­ur­staða um ólög­mæti útboðs­ins. Auk þess hafi verið búið að greiða fyrir, afhenda og í ein­hverjum til­fellum selja þá hluti sem seldir voru í útboð­inu.

Ýmsar ábendingar

Minn­is­blaðið er 14 blað­síður og í því koma fram ýmsar ábend­ingar. Þar er til að mynda bent á að engin almenn aug­lýs­ing hafi verið birt sem gaf öllum hæfum fjár­festum „sæti við borðið“ heldur var nokkrum fyr­ir­tækjum falið að safna saman til­boðum og kynna söl­una eftir lokun mark­aða 22. mars. „Ekki virð­ist hafa verið gert ráð fyrir því að þeir sem gætu fallið undir að vera hæfir fjár­festar gætu skráð sig eða ættu rétt á að vera með ef ekki væri haft sam­band við þá af fyrra bragði. Þar sem ein­ungis var samið við hluta af fyr­ir­tækjum með leyfi til verð­bréfa­miðl­unar voru það því fyrst og fremst við­skipta­vinir þeirra fyr­ir­tækja sem höfðu aðgang að kaupum.“

Í erindi Banka­sýsl­unnar til Bjarna Bene­dikts­sonar að kvöldi 22. mars hafi komið fram að á milli 150 til 200 hæfir fjár­festar hefðu skráð sig fyrir hlutum í útboð­inu fyrir meira en 100 millj­örðum króna. Ráð­herr­ann féllst í kjöl­farið á að Banka­sýsl­unni yrði veitt umboð til að und­ir­rita fyrir hönd rík­is­ins sölu­samn­inga.

Í minn­is­blað­inu segir að á þeim tíma virð­ist fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ekki hafa búið yfir upp­lýs­ingum um bjóð­endur eða hvernig til stóð að beita þeim sjón­ar­miðum við úthlutun hluta­bréf­anna sem sett höfðu verið fram í eig­enda­stefnu rík­is­ins „t.d. mis­mun­andi skerð­ingu eftir því hvort um væri að ræða skamm­tíma- og lang­tíma­fjár­festa, heldur var ákvörð­unin um það falin Banka­sýsl­unni sem og umboð til að ljúka sölu­með­ferð­inni.“

Metnir hæfir að eigin ósk

Á end­anum fengu 207 fjár­festar að kaupa hlut í Íslands­banka í mars. Hluti þess hóps fellur sann­ar­lega í þann hóp að telj­ast fag­fjár­festar. Samkvæmt minn­is­blað­inu virð­ast aðrir, sam­an­safn af ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum í fjöl­breyttum rekstri, jafnt inn­lendir sem erlendir, hafa verið metnir sem hæfir fjár­festar sam­kvæmt eigin ósk, sem heim­ild er fyrir í lögum. „Ekki liggur fyrir hvaða aðferðum var beitt við að meta sölu til þeirra í ljósi þeirra sjón­ar­miða sem ráð­herra höfðu verið kynnt.“

Þá virð­ist á list­anum yfir kaup­endur hafa verið tekið á móti til­boðum frá eigna­stýr­ing­ar­deildum fjár­mála­fyr­ir­tækja án þess að nöfn þeirra sem voru í raun að kaupa hafi verið gefin upp. Í minn­is­blaði Jóhann­esar Karls segir að slíkt fyr­ir­komu­lag úti­loki í raun að hægt sé að meta áhrif af söl­unni með nákvæmni með til­liti til mark­miða sem snú­ast um annað en verð. „Bent hefur verið á að sumir þeirra sem fengu hlutum úthlutað höfðu áður keypt hluti af rík­inu og selt þá mjög fljótt. Einnig hafa birst fréttir af því að aðilar tengdir þeim fyr­ir­tækjum sem Banka­sýslan réð til verks­ins keyptu hluti.“

Vísað í fordæmi úr einkavæðingu ÍAV

Þegar kemur að þeim hluta minn­is­blaðs­ins sem fjallar um mat á lög­mæti sölu­ferlis opin­berra eigna bendir Jóhannes Karl meðal ann­ars á að Hæsti­réttur Íslands hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í dómi sínum hinn 8. maí 2008, þar sem fjallað var um einka­væð­ingu Íslenskra aðal­verk­taka (ÍAV), að reglur þágild­andi laga um verð­bréfa­við­skipti hefðu verið brotin þar sem stjórn­endur fyr­ir­tækis sem einka­vætt var tóku þátt í útboðin. Þannig hafi jafn­ræði ekki verið tryggt með til­liti til inn­herj­a­upp­lýs­inga sem þeir bjuggu yfir. „Fram­kvæmd þess útboðs var því talin ólög­mæt en við mat á afleið­ing­unum, þ.e. skaða­bóta­skyldu rík­is­ins, var meðal ann­ars litið til reglna um opin­ber inn­kaup sem eru speg­il­mynd þeirra reglna sem gilda við sölu.“

Hægt er að lesa um einka­væð­ingu ÍAV hér að neðan.

Þótt ekki væri annað séð en að farið væri eftir því formi sem lögin fyr­ir­skrifa við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka væru þó atriði sem velta mætti upp og lúta að því hvernig ferlið var í raun útskýrt fyrir þeim sem um það fjöll­uðu á vett­vangi fram­kvæmda­valds­ins og lög­gjafans og hvort fram­kvæmdin end­ur­spegl­aði þá kynn­ingu.

Var kynningin á söluferlinu í lagi?

Í minn­is­blað­inu segir að þar sé í fyrsta lagi um að ræða hvort upp­lýs­ingar í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar og síðar skýrslu ráð­herra til þing­nefnd­anna hafi verið nægj­an­lega nákvæmar til að þeir sem komu að ferl­inu hafi í raun getað áttað sig á því hvernig til stóð að selja hlut­ina, hvernig verð yrði ákvarðað og hvernig úthlutun til áskrif­enda færi fram. Til­boðs­fyr­ir­komu­lag­inu hafði ekki verið beitt áður við sölu rík­is­eigna á Íslandi áður og það var ekki fyr­ir­skrifað í lögum.

Í öðru lagi hafi ekki legið fyrir hvernig ferlið átti að geta skilað raun­hæfu mati á bjóð­endum og úthlutun til þeirra miðað við fjölda bjóð­end­anna, fjöl­breyti­leika þeirra sjón­ar­miða sem virð­ist hafa átt að taka til­lit til og þann stutta tíma sem var til stefnu. Í þriðja lagi lá ekki fyrir í þeim gögnum sem ráð­herra og þing höfðu aðgang að um nán­ari beit­ingu og vægi þeirra sjón­ar­miða sem áttu að ráða við úthlutun til bjóð­enda. Í fjórða lagi hafi nán­ari for­sendur og aðferð­ar­fræði við ákvörðun sölu­verðs­ins ekki verið gerð opin­ber, hvorki fyrir söl­una né eftir.

Í minn­is­blað­inu segir að þessar athuga­semdir snú­ist um það að nokkur grunn­at­riði í sölu­ferl­inu hafi ekki ítar­lega skýrð né hlut­lægir mæli­kvarðar settir upp fyr­ir­fram um ákvörðun verðs og nið­ur­skurð á til­boðum. „Umfjöllun á vett­vangi stjórn­valda var háð því að þetta lægi allt fyrir.“

Fyrir liggi að sölu­ferlið hafi verið lokað. Jóhannes Karl veltir því sér­stak­lega upp hvort það hafi verið rétt­læt­an­legt að tak­marka sölu­ferlið með þeim hætti að ein­ungis þeir sem haft var sam­band við, og voru við­skipta­menn sölu­fyr­ir­tækj­anna, gátu í raun gert til­boð. „Úr því að tak­marka átti aðkomu fjár­festa hefði mátt rök­styðja hvers vegna ekki var látið við það sitja að bjóða eig­in­legum fag­fjár­festum þátt­töku, eða setja þá skil­yrði sem komu í veg fyrir að annar og ill­skil­grein­an­legri hópur fjár­festa væri boðið að kaupa umfram aðra.“

Styttist í skýrslu Ríkisendurskoðunar

Rík­is­end­ur­skoðun sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og Banka­sýslu rík­is­ins drög að skýrslu sinni um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka mið­viku­dag­inn 12. októ­ber til umsagnar. Til stóð að við­kom­andi myndu ljúka við gerð slíkra umsagna fyrir miðja nýliðna viku en Banka­sýslan óskaði eftir frek­ari fresti til þess, og fékk. Nú hafa ráðu­neytið og und­ir­stofnun þess til 25. októ­ber til að skila inn umsögnum sínum.

Guðmundur Björgvin Helgason er ríkisendurskoðandi.
Guð­mundur Björgvin Helgason er rík­is­end­ur­skoð­andi.

Þegar búið er að fara yfir umsagnir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórnar hennar mun Rík­is­end­ur­skoðun afhenda stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd skýrsl­una. Í kjöl­farið verður skýrslan svo gerð opin­ber. Því má búast við að það ger­ist öðru hvor megin við næstu helgi.

Auk þess rann­sakar Fjár­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­banka Íslands (FME) ýmsa þætti söl­unn­ar, sér­­stak­­lega við­­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­­um. Ekkert hefur verið gert opin­bert um stöðu þeirrar rann­sóknar en allir fimm inn­lendu sölu­ráð­gjaf­arnir hafa fengið fyr­ir­spurnir frá Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands vegna rann­sóknar þess.

Við upp­runa­lega birt­ingu vant­aði hluta af frétta­skýr­ing­unni. Það var lagað kl. 10:20 22. októ­ber 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár