Sautján fleiri aðstoðarmenn á Alþingi

Þing­flokks­for­menn funda um fjölgun aðstoð­ar­manna á Alþingi í dag, ákveðið hefur verið að fjölga þeim um sautján en óvíst er með hvaða hætti það verður gert. Áætlaður kostn­aður við fjölgun aðstoð­ar­manna er um rúmar 120 millj­ónir.

Þing­flokks­for­menn munu funda um fjölgun aðstoð­ar­manna þing­flokk­ana í dag en stefnt er að fjölga þeim um sautján. Sama­staða er á meðal flokka á þingi um það að fjölga aðstoð­ar­mönnum en ekki hefur náðst sam­komu­lag um hvernig aðstoð­ar­mönn­unum verður deilt niður á þing­flokk­ana. Stefnt er að því að ljúka mál­inu áður en umræður um fjár­lög fara á fullt á ný. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

Formenn þing­flokka hafa und­an­farið rætt hvernig skuli standa að úthlutun þeirra aðstoð­ar­manna sem til stendur að bæta við. Samkvæmt núver­andi til­lögur gera ráð fyrir að aðstoð­ar­menn­irnir deilist niður á þing­flokk­ana í sam­ræmi við þing­styrk þeirra en að auki fái hver flokkur rit­ara. Stefnt er að því að aðstoð­ar­mönnum fjölgi í þrepum þannig að hluti bæt­ist við nú um ára­mótin og síðan á ný þegar árin 2020 og 2021 ganga í garð.

Kostnaðurinn 120 milljónir

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2019 er gert ráð fyrir að fjár­heim­ildir til Alþingis verði auknar um rúmar 120 millj­ónir til að auka aðstoð við þing­flokka og þing­menn. Þing­flokkar geta áfram ráðið sér aðstoð­ar­menn á eigin kostnað. For­sætis­nefnd sam­þykkti fyr­ir­hug­aða fjölgun í sumar en með henni er stefnt að því að efla Alþingi.

Núver­andi reglur um aðstoð­ar­menn þing­flokk­ana er að for­menn stjórn­mála­flokka, sem eiga sæti á Alþingi og eru ekki jafn­framt ráð­herrar, eiga rétt á að ráða sér aðstoð­ar­mann í fullt starf. Ásamt for­mönnum stjórn­mála­flokka eiga alþing­is­menn, sem kjörnir eru í Norð­vestur-, Norð­austur- og Suð­ur­kjör­dæmum, sem eru ekki jafn­framt ráð­herrar eða for­menn stjórn­mála­flokka, eiga rétt á að ráða sér aðstoð­ar­mann í þriðj­ungs-starfs­hlut­falli.

Aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar hafa aldrei verið fleiri

[links] Í sumar kom fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, um aðstoð­ar­menn ráð­herra og annað aðstoð­ar­fólk, að alls hefðu 24 aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar verið ráðnir á grund­velli laga um Stjórn­ar­ráð Íslands og nú séu starf­andi alls 22 aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar en hámarkið er 25.

Þetta er hæsti fjöldi aðstoð­ar­manna en þeim hefur verið fjölgað smá saman síðan við sam­þykkt nýrra laga um Stjórn­ar­ráð Íslands árið 2011 voru heim­ildir til ráðn­ingar aðstoð­ar­manna ráð­herra og rík­is­stjórnar auknar frá því sem áður hafði verið. Með þeim breyt­ingum sem þá voru gerðar fékk hver ráð­herra í rík­is­stjórn heim­ild til að ráða tvo aðstoð­ar­menn án aug­lýs­ingar. Að auki var mælt fyrir um sér­staka heim­ild til handa rík­is­stjórn til að taka ákvörðun um ráðn­ingu þriggja til við­bótar.

Áætlaður heild­ar­kostn­aður vegna aðstoð­ar­manna ráð­herra og rík­is­stjórnar miðað við 22 aðstoð­ar­menn er 427 millj­ónir króna fyrir árið 2018. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2019 hækkar launa­liður rík­is­stjórn­ar­innar um tæpar 175 millj­ónir króna þar sem aðstoð­ar­mönnum ráð­herra hefur fjölgað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár