Maður hættir ekki við hálfklárað verk

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri gefur áfram kost á sér í starfið til að freista þess að sigla borg­ar­línu, þétt­ingu byggðar og öðrum málum í höfn, en lítur í grunn­inn á póli­tík sem tíma­bundið verk­efni.

Dagur vill tryggja að borgarlína og þétting byggðar komist í höfn.
Dagur vill tryggja að borg­ar­lína og þétt­ing byggðar kom­ist í höfn. Mynd: Bára Huld Beck

Fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sem fram fara á laug­ar­dag segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar mik­il­vægt að borg­ar­búar átti sig á því að borg­ar­þró­unin sé í húfi. Þar verði ann­ars vegar um að velja þróun inn á við með þétt­ingu byggðar eða að stækka borg­ar­landið, hort áherslur í fjár­fest­ingum verði innan hverf­anna sjálfra eða upp­bygg­ingar á nýjum hverfum þar sem eng­inn býr.

Þetta kemur fram í máli Dags í kosn­inga­hlað­varpi Kjarnans, Með orðum odd­vit­anna, en þar sagð­ist hann sjálfur hafa alist upp í Árbænum þar sem engir göngu­stígar voru og ekk­ert íþrótta­mann­virki, en það hafi verið vegna þess að athyglin var öll á upp­bygg­ingu nýrra hverfa í Reykja­vík. Hann segir að með því að stoppa útþenslu borg­ar­innar geri borg­ar­yf­ir­völdum kleift að fjár­festa í núver­andi hverfum og bæta aðstæð­urnar þar.

Fossvogsdals- eða Geldinganeslaug?

Dagur segir minni­hlut­ann í borg­ar­stjórn hafi gagn­rýnt metn­að­ar­fullar áætl­anir meiri­hlut­ans um upp­bygg­ingu innan hverfa en vilji á sama tíma fara í upp­bygg­ingu á Geld­inga­nesi og spyr hvaða verk­efnum innan borg­ar­innar í þeirri mynd sem hún er í dag eigi að falla frá. Sem dæmi nefnir hann að í núver­andi mynd búi allir borg­ar­búar í göngu- eða hjóla­færi við sund­laug, nema íbúar í Fossvogi, og þess vegna sé nú haf­inn und­ir­bún­ingur um upp­bygg­ingu næstu sund­laugar þar. „Hún gæti hins vegar verið að fara í sam­keppni við upp­bygg­ingu sund­laugar í Geld­inga­nesi ef áherslan ætti að fara þangað á næsta kjör­tíma­bili,“ segir Dagur.

Þá nefnir Dagur mik­il­vægi lang­tíma­yf­ir­sýnar og þess að muna að ekki sé hægt að gera allt í einu. Hann segir að í borg­inni hafi það lengi vel verið þannig að verk­efni kæmust í fram­kvæmd eftir því hver tog­aði fastar. Lang­tímafor­gangs­röð­un­ar­á­ætl­anir séu nú til um upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virki, við­bygg­ingar og meiri­háttar end­ur­bætur á skóla­hús­næði til næstu 10 ára. Það tryggi fag­lega fram­kvæmd byggða á heild­ar­hags­munum borg­ar­búa. Sams konar áætlun hafi veirð gerð fyrir skóla­lóðir, með þeirri hug­mynd að þær ættu að verða leik­svæði fyrir hverfin en ekki aðeins nem­endur hvers skóla, þar sem áætlun var gerð eftir ástandi og nem­enda­fjölda, henni fylgt eftir og hún kláruð.

Hugsanlega jákvætt að flugvöllurinn sé enn á sínum stað

Hvað upp­bygg­ingu í Vatns­mýri varðar segir Dagur að þar hafi þegar farið fram mikil upp­bygg­ing, meðal ann­ars á Hlíð­ar­enda og við háskól­ana, auk þess sem til standi að fara í frek­ari upp­bygg­ingu í Skerja­firði. Í tengslum við flug­völl­inn sé nið­ur­staða beðið varð­andi mat á mögu­legu flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauni, sem liggja eigi fyrir í lok þessa árs. Verði gefið grænt ljós á það liggi fyrir sam­komu­lag um upp­bygg­ingu þess flug­vallar, og þegar hann verði til­bú­inn verði farið í frek­ari upp­bygg­ingu í Vatns­mýr­inni, í fyrsta lagi árið 2032. Dagur segir þó hugs­an­lega jákvætt að flug­völl­ur­inn hafi ekki horfið frá fyrir 20 árum, þar sem svo margt hafi lærst í upp­bygg­ingu og þétt­ingu byggðar á síð­ustu ára­tugum og að vanda verði vel til verka við slíka upp­bygg­ingu sem hægt verði að fara í á svæð­inu.

Borgarlína betri fyrir alla og jarðgöng undir Miklubraut

Önnur helsta ástæða þess að Dagur vill vera áfram er að fram­kvæmdir við Borg­ar­línu eru að hefj­ast. Hann segir mik­il­vægt að muna að Borg­ar­línan sé ekki ein­hver hug­mynd frá meiri­hlut­anum í Reykja­vík heldur nið­ur­staða grein­ingar á þörfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til lengri tíma. Sam­göngu­inn­viðir muni ekki bera þá fólks­fjölgun sem muni eiga sér stað ef allir verða á einka­bíl. Borg­ar­línan muni skapa betri sam­göngu­mögu­leika fyrir alla, ekki bara not­endur hennar heldur líka þá sem kjósi að vera á bíl.

[links]Þá sé frum­hönnun vegna umferðar um Miklu­braut á leið í útboð, en grein­ingar bendi til þess að það geti verið áhuga­verður kostur að gera þar jarð­göng í stað stokks, bæði vegna fram­kvæmda­tíma og veitu­mála. Göngin yrðu þá lengri en hugs­an­legur stokkur, 2,5 km í stað 1,5 og myndu liggja frá Land­spít­al­anum að Grens­ás­vegi og hugs­an­lega væri hægt að kom­ast upp á einum öðrum stað. Kostn­aður við þessar fram­kvæmdir liggi ekki fyrir, en að þrátt fyrir að jarð­göngin yrðu lengri myndi spar­ast tals­vert við að fara undir stóru veit­urnar og að minna rask verði á yfir­borð­inu. Helsta áskor­unin verði þó að útfæra umferð á meðan á fram­kvæmdum stendur.

Aðspurður seg­ist Dagur ætla að sjálf­sögðu ætla að vera út kjör­tíma­bilið, hann líti svo á að hann sé í fram­boði til loka kjör­tíma­bils­ins sem kosið verður um á laug­ar­dag, en hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórnarkosningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár