Stjórnarkreppa í kortunum eftir kosningar

Allt bendir til þess að það verði erfitt að mynda rík­is­stjórn að óbreyttu. Þeir flokkar sem geta hugsað sér að starfa saman ná ekki nægj­an­legum styrk til að gera það þannig að góður meiri­hluti yrði að baki hinnar nýju rík­is­stjórnar.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír – Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur – mæl­ast með sam­tals 48 pró­sent fylgi sam­kvæmt fyrstu kosn­inga­spá Baldurs Héð­ins­sonar og Kjarnans ​fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Það gæti dugað til þess að flokk­arnir nái næf­ur­þunnum meiri­hluta eftir kosn­ingar ef nægi­lega mikið af atkvæðum falla niður dauð. Það stendur þó tæpt sam­kvæmt spánni þar sem Flokkur fólks­ins, sá flokkur sem mælist með minnsta fylgið, gæti vel náð inn manni með sín 4,5 pró­sent og er ekki langt frá fimm pró­sent þrösk­uld­inum sem þarf til að fá úthlutað jöfn­un­ar­menn.

Rík­is­stjórn byggð á Reykja­vík­ur­mód­el­inu – sam­starfi þeirra fjög­urra flokka sem starfa saman í meiri­hluta í höf­uð­borg lands­ins og næst stærsta stjórn­valdi þess – nýtur nán­ast sama stuðn­ings. Sam­an­lagt fylgi Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar mælist 47,9 pró­sent.

Þá er mögu­leiki á því að mynda fjög­urra flokka rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar og Pírata sem myndi njóta stuðn­ings með 49,4 pró­sent.

Sporin hræða þegar kemur að myndun rík­is­stjórnar með minni­hluta kjós­enda á bak­við sig. Slík var síð­ast mynduð í byrjun árs 2017 eftir margra mán­aða stjórn­ar­kreppu. Að þeirri rík­is­stjórn stóðu Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð, flokkar sem hlutu sam­tals 46,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í októ­ber 2016. Stjórnin, sem kennd var við for­sæt­is­ráð­herr­ann Bjarna Bene­dikts­son, var ein sú óvin­sælasta sem setið hefur hér­lendis og nokkrum mán­uðum eftir að hún tók við sögð­ust ein­ungis 31,4 pró­sent lands­manna vera ánægðir með hana. Hún sprakk í sept­em­ber 2017 og varð fyrir vikið skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar.

Kosn­inga­spáin er vegin nið­ur­staða skoð­ana­kann­ana á stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka og fram­boða í aðdrag­anda kosn­inga á Íslandi. Kjarninn hefur birt spár sem byggja á mód­eli Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings í öllum kosn­ingum sem farið hafa fram á Íslandi frá árinu 2014. Nánar má lesa um kosn­inga­spána, aðferða­fræði og skýr­ingar neðst frétta­skýr­ing­unni.

Á Sjálfstæðisflokkur ekki leið til valda án Vinstri grænna?

Að óbreyttu virð­ast einu fjög­urra flokka rík­is­stjórn­irnar sem gætu notið stuðn­ings meiri­hluta þjóð­ar­innar, miðað við stöðu mála í kosn­inga­spánni, vera núver­andi stjórn­ar­flokkar með styrk­ingu. Sam­fylk­ing, Píratar og Sós­í­alista­flokkur Íslands hafa þegar úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og því blasir við að sú styrk­ing þyrfti að verða sótt til Við­reisnar, Mið­flokks eða Flokks fólks­ins.

Við­mæl­endur Kjarnans innan þings eru sam­mála um að ósenni­legt verði að telj­ast að Vinstri græn myndu sam­þykkja að styrkja sitj­andi rík­is­stjórn með flokki sem skil­greinir sig til hægri í stjórn­málum og því ekki lík­legt að Viðreisn komi sem fjórða hjólið undir vagn­inn að óbreyttu. Þor­steinn Pálsson, einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Við­reisnar í dag og ráð­gjafi for­ystu flokks­ins, skrifar auk þess í viku­legum pistli sínum í Frétta­blað­inu í gær að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi talað mjög skýrt í þá veru að þeir muni ekki undir neinum kring­um­stæðum fall­ast á mála­miðl­anir gagn­vart Viðreisn að því er varðar gjald­mið­ils­mál, tíma­bund­inn nýt­ing­ar­rétt auð­linda í þjóð­ar­eign og ný skref í Evr­ópu­sam­vinnu. „Þetta þýðir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á engan raun­hæfan kost á setu í rík­is­stjórn nema VG eigi þar hlut að máli og fari með for­ystu. Eftir síð­ustu kosn­ingar var það frjálst val, en nú er það þvinguð staða.“

Segir Reykjavíkurmódelið ekki ganga upp á Alþingi

Þor­steinn virð­ist í pistl­inum ekki spenntur fyrir Reykja­vík­ur­mód­el­inu og segir að sér sýn­ist það ekki ganga upp á Alþingi. Raun­hæf­asta rík­is­stjórn Við­reisnar virð­ist þannig vera fjög­urra flokka stjórn flokks­ins með Vinstri grænum, Framsókn og Sam­fylk­ingu. Flokk­arnir þurfu þó að hress­ast eigi hún að vera mögu­leiki. Sam­an­lagt fylgi þeirra er 45,6 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var mynduð eftir síðustu kosningar. Hún nýtur ekki stuðnings meirihluta þjóðarinnar samkvæmt kosningaspánni.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var mynduð eftir síð­ustu kosn­ingar. Hún nýtur ekki stuðn­ings meiri­hluta þjóð­ar­innar sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins róa svo líf­róður fyrir póli­tískri til­veru sinni á þingi. Sá fyrr­nefndi er enn lit­aður af afleið­ingum Klaust­ur­máls­ins svo­kall­aða og er að reyna að end­ur­nýja ásýnd sína með nýju fólki í for­ystu. Sá síð­ar­nefndi situr á stórum kosn­inga­sjóði, hefur bætt nýju fólki í for­ystu sína, farið í upp­færslu á ímynd sinni og aug­lýsir af áfergju til að ná athygli kjós­enda.

Tveir stjórnarflokkar undir kjörfylgi

Samkvæmt kosn­inga­spánni þá er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur allra flokka með 23,6 pró­sent fylgi, sem er undir kjör­fylgi hans í síð­ustu kosn­ingum. Fylgi flokks­ins hefur verið nokkuð stöðugt frá því í vor, en hæst fór það í 25,8 pró­sent í apríl og lægst í 23,4 pró­sent í byrjun júní.

Vinstri græn yrðu næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag, en 13,1 pró­sent kjós­enda segj­ast styðja flokk­inn. Það er umtals­vert undir því sem Vinstri græn fengu í kosn­ing­unum 2017 þegar 16,9 pró­sent kjós­enda kusu flokk­inn. Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi nú um stundir er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem nýtur stuðn­ings 11,3 pró­sent kjós­enda. Hann fékk 10,7 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum.

Píratar stærstir andstöðuflokka

Sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem flestir hyggj­ast kjósa sam­kvæmt kosn­inga­spánni eru Píratar sem mæl­ast með 12,6 pró­sent fylgi og bæta við sig 3,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum að óbreyttu. Sam­fylk­ingin stendur nán­ast í stað með 12,4 pró­sent fylgi, sem er nán­ast alveg það sama og flokk­ur­inn fékk 2017. Viðreisn mælist með 9,8 pró­sent fylgi sem er meira en flokk­ur­inn fékk 2017 en minna en hann fékk 2016.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 6,4 pró­sent stuðn­ing og Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem hefur nú kynnt þrjá af sex fram­boðs­listum sínum og er að bjóða fram til þings í fyrsta sinn, mælist með 5,7 pró­sent fylgi. Flokkur fólks­ins rekur lest­ina hjá þeim níu flokkum sem mæl­ast með eitt­hvað hand­bært fylgi, en 4,5 pró­sent lands­manna segj­ast ætla að kjósa þann flokk. Miðað við þessa nið­ur­stöðu er ljóst að flokk­arnir á þingi yrðu að minnsta kosti átta og mögu­lega níu ef kosið yrði nú.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. júlí (vægi 38,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 15-23. júlí (vægi 23,9 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 13 – 26. júlí (20,3 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 24. júní - 6. júlí (vægi 17,4 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið undanfarið ár