Lagning sæstrengs kallar á styrkingu kerfis - og pólitíska ákvörðun

Lagning sæstrengs til Evrópu kallar á styrk­ingu íslenska raf­orku­flutn­ings­kerf­is­ins en hversu miklar þær þurfa að vera ræðst að veru­legum hluta af land­töku­stað strengs­ins og öryggi teng­ing­ar­innar. Frá þessu var greint á vef Lands­nets í dag, en ný kerf­is­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins fyrir íslenska raf­orku­kerfið verður kynnt á föstu­dag­inn.

Í frétt Lands­nets kemur fram að umræddar styrk­ingar á raf­orku­kerf­inu, sem komi til við­bótar við önnur nauð­syn­leg upp­bygg­ing­ar­á­form, séu minni ef streng­ur­inn verður tek­inn á land á Suð­ur­landi en ekki á Aust­fjörðum.

Undirbúningur í gangi


Töluverð vinna hefur verið lögð í það und­an­farin miss­eri að kanna fýsi­leika þess að flytja raf­orku frá Íslandi til Evrópu um sæstreng, að því er segir í til­kynn­ingu frá Lands­neti, sem er dóttu­fé­lag Lands­virkj­unar. „Þáttur Lands­nets í þeirri vinnu hefur að mestu snúið að því að greina stóru mynd­ina inn­an­lands, þ.e. að bera saman nokkra kosti með til­liti til til upp­bygg­ing­ar­þarfar flutn­ings­kerf­is­ins“ segir í til­kynn­ing­unni, en nið­ur­stöður þeirra athug­ana eru kynntar í sér­stökum þemakafla í til­lögu að kerf­is­á­ætlun 2015-2024, sem nú er til kynn­ingar hjá Lands­neti og fjallar um áætl­aða þróun notk­unar og fram­leiðslu raf­orku tengdri raf­orku­flutn­ings­kerf­inu og upp­bygg­ingu sem ráð­gerð er á næstu tíu árum.

Orkubúskapur á tímamótum


Hvort sem af því verður að leggja sæstreng til Evrópu eða ekki, þá stendur Landsnet frammi fyrir miklum áskor­unum á næstu árum. Upp­bygg­ing og end­ur­nýjun raf­orku­kerf­is­ins kallar á miklar fjár­fest­ingar. Í drögum að kerf­is­á­ætl­un­inni má sjá að um mikið verk­efni er að ræða. Ef ákveðið verður að ráð­ast í lagn­ingu sæstrengs, t.d. til Bret­lands, liggur ákvörðun um slíkt hjá stjórn­völdum. Ef mið er tekið af drögum af kerf­is­á­ætl­un­inni þá getur ákvörðun um lagn­ingu sæstrengs haft mikil áhrif á útkomuma. Í drög­unum segir meðal ann­ars, um hug­myndir sem snúa að lagn­ingu sæstrengs: „Samkvæmt þeirri grófu mynd sem hefur verið birt, er styrk­inga þörf í íslenska flutn­ings­kerf­inu, ef það á að geta sinnt flutn­ingi að land­töku­stað sæstrengs miðað við þær for­sendur sem lagðar eru til grund­vallar. Þær styrk­ingar eru allt frá því að vera frekar litlar umfram fram­tíð­ar­til­lögur Lands­nets yfir í veru­lega miklar styrk­ingar. Það þarf þó að taka það skýrt fram að enn er margt óljóst í tengslum við þetta verk­efni. Stað­setn­ing, stærð og eðli nýrra virkj­ana (þ.e. vind­orka, vatns­orka eða jarð­varmi) geta haft veru­leg áhrif á styrk­ing­ar­þörf­ina. Einnig veg­ast á sjón­ar­mið um minni styrk­ingar í flutn­ings­kerf­inu ann­ars vegar og lengri sæstreng hins vegar. Enn fremur þarf að hafa í huga atriði eins og gæði land­töku­stað­ar­ins og umhverf­is­á­hrif á sjó og landi. Sú grein­ing sem Landsnet hefur unnið nær þó aðeins til nauð­syn­legra styrk­inga inn­an­lands. Það má þó ekki gleym­ast að þessi upp­bygg­ing kerf­is­ins nýt­ist líka til þess að anna auknu álagi inn­an­lands. Áreið­an­leiki og afhend­ingar­ör­yggi kerf­is­ins munu almennt batna veru­lega og það verða vel í stakk búið til þess að taka við fram­leiðslu og not­endum óháð stað­setn­ingu.“

[caption id="attachment_36320" align="alignnone" width="620"] Hér má sjá upp­lýs­ingar úr drögum að kerf­is­á­ætlun Lands­nets. Samkvæmt áætl­un­inni þarf að styrkja raf­orku­kerfi lands­ins veru­lega. Mynd: Landsnet[/caption]

Stórar pólitískar ákvarðanir


Upp­bygg­ing raf­orku­kerf­is­ins er óum­flýj­an­leg en leiðin sem valin verður virð­ast tengj­ast þeirri ákvörðun, í það minnsta óbeint, hvort ráð­ist verður í lagn­ingu sæstrengs eða ekki. Í ítar­legri grein sem Ketill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum og ráð­gjafi, skrif­aði inn á vef Kjarnans í mars síð­ast­liðnum þá virð­ist allt benda til þess að hægt sé að fá marg­falt hærra verð fyrir hvert selt mega­vatt af raf­orku um sæstreng heldur en þá 25 Banda­ríkja­dali á mega­vattið sem Lands­virkjun fær nú, að stærstu leyti vegna sölu raf­orku til álvera.

landsnet
lands­net

Í ljósi þess hve verk­efnið er umfangs­mikið er um stóra póli­tíska ákvörðun að ræða, þegar sæstreng­ur­inn er ann­ars vegar. Nýlegar ákvarð­anir Norð­manna og Breta, um lagn­ingu 730 kíló­metra sæstrengs frá hafn­ar­bænum Blyth til Kvilldal í Roga­landi, sýna að lagn­ing sæstrengs­ins er raun­hæfur kostur, jafn­vel þó streng­ur­inn milli Íslands og Bret­lands yrði rúm­lega 250 kíló­metrum lengri. Kostn­að­ur­inn við streng­inn milli Noregs og Bret­lands er áætl­aður um tveir millj­arðar evra, eða sem nemur tæp­lega 300 millj­örðum króna, en gera má ráð fyrir að kostn­að­ur­inn sé hærri við streng milli Íslands og Bret­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár