Samskiptin í frosti

Rússar neita nokk­urri aðkomu að eit­ur­efna­árásinni á Skripal feðginin í Bret­landi. Saka Breta um að standa sjálfir að baki árásinni og krefj­ast afsök­un­ar­beiðni frá Theresu May.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti vill láta rann­saka eit­ur­efna­árás­ina á Skripal-feðginin ítar­lega. Þetta kom fram í máli for­set­ans á fundi hans í Tyrk­landi í gær, en þar fund­aði hann með Recep Tayyip Er­dog­an Tyrk­lands­for­seta.

Pútín var staddur í Tyrk­landi til að fylgj­ast með fyrstu skóflustungu við bygg­ingu fyrsta kjarn­orku­vers Tyrkja, en það verður reist af rúss­nesku rík­is­orku­fyr­ir­tæki. Kostn­að­ur­inn við upp­bygg­ing­una er tal­inn nema um 20 millj­örðum doll­ara.

Skripal feðginin, þau Sergej og Yulia fund­ust með­vit­und­ar­laus á bakk í Sails­bury í Bret­landi þann 4. mars. Yulia er komin til með­vit­undar en ástand föður hennar telst enn alvar­legt.

Liggur ekki fyrir hvaðan eitrið kemur

Í máli Pútíns um eit­ur­efna­árás­ina kom fram að hann vildi láta rann­saka hana ítar­lega og gerði kröfur um að Rússar fái að taka þátt í rann­sókn­inni.

Pútín sagði 20 þjóðir geta fram­leitt þetta til­tekna tauga­eitur sem notað var til að eitra fyrir Skripal feðgin­unum, en tals­maður breskrar rann­sókn­ar­stofu sem hefur rann­sakað eitrið hefur greint frá því að ekki hafi verið hægt að stað­festa að það komi frá Rúss­landi.

Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, lýsti því yfir á mánu­dag að hann teldi mögu­legt að Bretar standi að baki árásinni, til að beina athygli frá vanda­málum lands­ins vegna útgöngu þess úr Evr­ópu­sam­band­inu. Hann hefur sagt sam­skipti Rússa við Banda­ríkin í frosti og neitar með öllu að þeir beri nokkra ábyrgð á árásinni.

Yfir­maður rúss­nesku leyni­þjón­ust­unnar, Sergei Nar­ys­hkin, sagði í dag að árásin væri hlægi­leg ögrun breskra og banda­rískra örygg­is­sveita. Hann gerði athuga­semdir við að fjöldi Evr­ópu­ríkja ákvæði að fylgja stjórn­völdum í Bret­landi og Banda­ríkj­unum í blindni og spyrja engra spurn­inga.

Vilja að Bretar biðjist afsökunar

Rússnesk stjórn­völd hafa kraf­ist afsök­un­ar­beiðni frá Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og rík­is­stjórnar hennar, fyrir að hafa tengt Pútín við árás­ina. Segja þau fífla­gang­inn hafa gengið of langt. Kenn­ingin um að Rússar hafi staðið að baki árásinni hafi ekki verið stað­fest og muni ekki verða stað­fest.

Bretar hafa sagt mjög lík­legt að Rússar beri ábyrgð á árásinni og sagði Boris Johnson utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands að yfir­gnæf­andi líkur væru á að Pútín sjálfur hafi fyr­ir­skipað árás­ina.

[links]Fjölmörg vest­ræn ríki hafa vísað rúss­neskum erind­rekum og diplómötum úr landi. Þar á meðal Bretland og Banda­ríkin, en auk þess Þýska­land, Frakk­land, Pólland, Danmörk, Ítalía, Holland, Kanada ásamt fleirum. Samtals hefur 130 rúss­neskum erind­rekum verið vísað úr landi víða um heim.

Rík­is­stjórn Íslands ákvað að taka þátt í sam­stilltum aðgerðum vest­rænna ríkja vegna árás­ar­innar með því að fresta öllum tví­hliða fundum með rúss­neskum ráða­mönnum og hátt­settum emb­ætt­is­mönnum um óákveð­inn tíma. Af þeirri ákvörðun leiðir að íslenskri ráða­menn munu ekki sækja heims­meist­ara­mótið í Rúss­landi í sumar.

Rússar brugð­ust við þessum aðgerðum með því að vísa banda­rískum og völdum evr­ópskum erind­rekum úr landi. Þar á meðal starfs­menn ræð­is­manns­skrif­stofu Banda­ríkj­anna í St. Pét­urs­borg en henni verður lokað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár