Rússar senda bandaríska og evrópska fulltrúa heim

Rússar hafa harð­lega mót­mælt sam­stilltum aðgerðum þjóða vegna efna­vopna­árásar í Bret­landi.

Rússnesk stjórn­völd hafa ákveðið að bregð­ast við sam­stilltum aðgerðum Breta, Banda­ríkja­manna og fleiri þjóða, með því að vísa banda­rískum og völdum evr­ópskum erind­rekum úrlandi. Munu starfs­menn ræð­is­manns­skrif­stofu Banda­ríkj­anna í St. Pét­urs­borga verða sendir úr landi og henni lokað, og það sama mun gilda um fleiri evr­ópska erind­reka.

Samtals hafa þjóðir heims­ins, einkum Banda­ríkin og Evr­ópu­ríki, vísað 130 erind­rekum úr landi, eftir að Bretar lýstu því yfir að Rússar bæru ábyrgð á eit­urga­sárás á gagnnjósn­ar­ann Sergei Skripal og dóttur hans í Salisbury í Bret­landi. Þau liggja enn þungt haldin á sjúkra­húsi.

Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn Rússum, en þó ekki með því að vísa erind­rekum úr landi. Íslenskir ráða­menn munu snið­ganga HM í fót­bolta í Rúss­landi, og ekki eiga í sam­skiptum við Rússa á næstu miss­erum.

Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rússa, segir að aðgerð­irnar séu hneyksli og hann neitar með öllu að Rússar beri ábyrgð á árásinni. Það sama hefur komið frá rúss­neskum yfir­völdum form­lega, og segja þau að við­brögð Banda­ríkj­anna og Breta ein­kenn­ast af ofsa og takt­leysi.

Lavrov hefur sagt, að nú séu sam­skiptin við Banda­ríkin í frosti og það sama eigi við um Bretland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár