Íslenskir ráðamenn ekki á HM - Aðgerðir gegn Rússum

Rík­is­stjórnin tekur þátt í alþjóð­legum aðgerðum gegn Rússum.

Rík­is­stjórn Íslands hefur ákveðið taka þátt í sam­stilltum aðgerðum vest­rænna ríkja vegna efna­vopna­árásar í enska bænum Salisbury í upp­hafi mán­að­ar­ins.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn­völdum, en eins og greint var frá að vef Kjarnans í dag, þá fund­aði rík­is­stjórnin um málið í dag.

Í yfir­lýs­ingu frá stjórn­völdum segir: „Árásin er alvar­legt brot á alþjóða­lögum og ógnun við öryggi og frið í Evrópu. Efna­vopnum hefur ekki verið beitt í álf­unni frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar. Viðbrögð rúss­neskra stjórn­valda við árásinni hafa hingað til verið ótraust­vekj­andi og yfir­lýs­ingar þeirra ótrú­verð­ugar. Frænd­þjóðir okkar á Norð­ur­löndum, mörg sam­starfs­ríki Íslands í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, og helstu aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins hafa ákveðið að grípa til aðgerða gagn­vart rúss­neskum stjórn­völdum. Í flestum til­vikum vísa þessi ríki rúss­neskum stjórn­ar­er­ind­rekum úr landi. Af hálfu Íslands fel­ast aðgerð­irnar í því að öllum tví­hliða fundum með rúss­neskum ráða­mönnum og hátt­settum emb­ætt­is­mönnum verður frestað um óákveð­inn tíma. Af þeirri ákvörðun leiðir að íslenskir ráða­menn munu ekki sækja heims­meist­ara­mótið í Rúss­landi á kom­andi sumri,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, en eins og kunn­ugt er verður Ísland meðal þátt­töku­þjóða á HM, í fyrsta skipti og sem fámennsta landið í sög­unni sem tryggt hefur sér þátt­töku­rétt á HM.

Eftir að hafa borið ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar undir utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis kall­aði Guð­laugur Þór sendi­herra Rúss­lands á sinn fund nú síð­degis og greindi honum frá ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar.

Á síð­ustu tíu árum hefur við­skipta­sam­band Íslands og Rúss­lands styrkst nokkuð, einkum vegna vax­andi við­skipta íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja með mak­ríl. Alþjóða­póli­tískar deilur, þar sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur beitt Rússa refsi­að­gerðum, hafa harnað veru­lega á und­an­förnum árum, með tölu­verðum áhrifum á íslenska hags­muni.

Frá í ágúst 2015 hafa Rússar beitt við­skipta­banni gagn­vart Íslandi, en um 20 millj­arða mark­aður, árlega, hafði þá mynd­ast með íslenskar sjáv­ar­af­urðir. Frá þeim tíma hefur mark­að­ur­inn hins vegar verið lok­aður. „Frá þess­ari stundu mun bann á mat­vælum sem áður náði til Evr­ópu­sam­bands­ins, Ástralíu, Kanada, Noregs og Banda­ríkj­anna einnig ná til Albaníu, Svart­fjalla­lands, Íslands, Liechtenstein og Úkraínu,“ sagði Dmitry Medvedev for­sæt­is­ráð­herra Rússland, þegar við­skipta­bannið var sett árið 2015, og bætti því við að þessi ríki hefðu stutt við við­skipta­þving­anir Evr­ópu­sam­bands­ins gegn Rússum. Við­skipta­bannið er enn í gildi.

Aðgerðir Íslands nú eru í takt við fyrri stefnu Íslands í málum sem tengj­ast Rússum, en þar hefur Íslands fylgt sam­þykktum Evr­ópu­þjóða og banda­lags­ríkja. Norð­ur­löndin og fleiri þjóðir gripu þó að þessu sinni til þess að senda rúss­neska ráða­menn úr landi, en það gerði Ísland ekki, eins og áður sagði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár