Ríkisstjórnin fundar vegna Rússlands

Rík­is­stjórnin fundar núna í stjórn­ar­ráð­inu og framundan er fundur utan­rík­is­ráð­herra með utan­rík­is­mála­nefnd þings­ins. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er það til að ákveða mögu­leg við­brögð vegna eit­urga­sárás­ar­innar í Sails­bury í Bret­landi.

Rík­is­stjórnin fundar núna í stjórn­ar­ráð­inu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er það til að ákveða mögu­leg við­brögð vegna eit­urga­sárás­ar­innar í Sails­bury í Bret­landi. Fjöldi Evr­ópu­sam­bands­ríkja hafa ákveðið að senda rúss­neska diplómata úr landi vegna máls­ins, auk Banda­ríkj­anna, Kanada og Úkraínu.

Frétta­maður Kjarnans er staddur við stjórn­ar­ráðið þar sem þau Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir mennta­mála­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir við­skipta- og ferða­mála­ráð­herra eru mætt til fund­ar­ins.

Framundan er einnig fundur utan­rík­is­ráð­herra með utan­rík­is­mála­nefnd þings­ins vegna máls­ins. Mun hann fara fram klukkan 16.30 í ráðu­neyt­inu og var boðað til fund­ar­ins með 45 mín­útna fyr­ir­vara sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður utan­rík­is­mála­nefndar, er þegar mætt á þann fund. Það eru Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, og Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, og Inga Sæland, þing­maður Flokks fólks­ins, líka. Þau sitja öll í utan­rík­is­mála­nefnd.

Svíar og Finnar hafa ákveðið að vísa rúss­neskum diplómötum úr landi vegna eit­urga­sárás­ar­innar á gagnnjósn­ar­ann Sergei Skripal og dóttur hans í Bret­landi í byrjun mars. Ísland og Noregur eru þar með einu Norð­ur­löndin sem ekki hafa gripið til form­legra aðgerða vegna máls­ins, en Danir ákváðu fyrr í dag að vísa tveimur diplómötum úr landi.

Finnar ætla að vísa einum rúss­neskum erind­reka úr landi. Í til­kynn­ingu finnska for­seta­emb­ætt­is­ins segir að ákvörð­unin um að lýsa yfir stuðn­ingi við Breta í deilu þeirra við Rússa hafi verið tekin að vel ígrund­uðu máli.

Svíar hafa sömu­leiðis ákveðið að vísa einum rúss­neskum erind­reka úr landi. Í yfir­lýs­ingu frá Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra segir að málið sé mun alvar­legra en bara deila milli Bret­lands og Rúss­lands og nauð­syn­legt hafi verið að bregð­ast við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár