Pólitísk upplausn í Bretlandi

David Cameron og Jeremy Corbyn.
David Cameron og Jeremy Corbyn. Mynd: EPA

Fram­bjóð­endur til for­ystu í Íhalds­flokknum í Bret­landi þurfa að skila inn fram­boðum á fimmtu­dag­inn, og kjósa á nýjan for­mann flokks­ins fyrir 2. sept­em­ber næst­kom­andi. Þetta var ákveðið á fundi í morgun. Flestir höfðu búist við mun lengri fresti og kosn­ingum síðar, eins og David Cameron for­sæt­is­ráð­herra og núver­andi for­maður flokks­ins hafði gefið til kynna. Hann sagð­ist vilja nýjan for­mann í októ­ber.

Cameron til­kynnti sem kunn­ugt er að hann myndi hætta eftir að Bretar ákváðu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fyrir helgi að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið.

Það er ekki bara í Íhalds­flokknum sem nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar breytir miklu, því Jeremy Corbyn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, er í miklum vand­ræðum með þinglið sitt og má segja að upp­lausn ríki í flokknum.

Vel á þriðja tug skugga­ráð­herra í Verka­manna­flokknum hafa hætt frá því í gær, þegar Corbyn rak skuggaut­an­rík­is­ráð­herr­ann Hilary Benn. Benn hafði sagt Corbyn að hann hefði misst trúna á honum sem leið­toga flokks­ins. Tólf skugga­ráð­herrar Corbyns hættu störfum í gær og enn fleiri hafa hætt það sem af er degi. Corbyn hefur neitað að hætta, en lík­legt þykir að hann muni fá á sig form­lega van­traust­s­til­lögu. 

Pundið og hlutabréf áfram á niðurleið

George Osborne, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, reyndi í morgun að róa mark­aði sem opn­uðu á ný með miklum lækk­unum í kjöl­far nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar á fimmtu­dag­inn. Hann sagði Breta reiðu­búna að takast á við fram­tíð­ina á sterkum grund­velli en að auð­vitað þyrfti að aðlaga breska hag­kerfið að nýjum veru­leika. Hans hlut­verk sé að halda efna­hags­líf­inu stöð­ugu.

Óhætt er að segja að yfir­lýs­ing hans hafi ekki borið til­ætl­aðan árangur, þar sem breska pundið hefur haldið áfram að lækka og er nú lægra gagn­vart Banda­ríkja­dollar en það hefur verið í 31 ár. FTSE 100 vísi­talan hefur einnig lækkað um 1,3% það sem af er morgni. Við­skiptum með bréf í bönk­unum Barclays of Royal Bank of Scotland var hætt um tíma eftir að hluta­bréfa­verð í báðum bönk­unum hafði lækkað um meira en 10 pró­sent á skömmum tíma í morgun. Hluta­bréf í flug­fé­lag­inu Easy Jet lækk­uðu um fimmt­ung.

Engar óformlegar viðræður við ESB

Angela Merkel, Þýska­landskansl­ari, tók af skarið í morgun og sagði að Evr­ópu­sam­bandið myndi ekki eiga í neinum við­ræðum við Breta um það sem koma skal fyrr en búið er að virkja 50. grein­ina í Lissabon-sátt­mál­anum. 50. greinin kveður á um ferlið sem fer í gang þegar ríki ákveður að yfir­gefa sam­bandið. David Cameron virkj­aði ákvæðið ekki strax á föstu­dag eftir að úrslitin voru ljós, og í morgun sagði Osborne fjár­mála­ráð­herra að ekki ætti að gera það fyrr en búið er að gera áætlun um það hverju á að sækj­ast eftir í sam­skiptum við Evr­ópu­sam­bandið.

Merkel og þýska rík­is­stjórnin sögðu í morgun að Bretar fengju sann­gjarnan frest til að hefja þessa veg­ferð form­lega, en það megi ekki ríkja stöðnun. Leið­togar Þýska­lands, Frakk­lands og Ítalíu funda einnig í Berlín í dag um útgöngu Breta úr sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár