Börn af erlendum uppruna mótast af viðhorfinu sem tekur við þeim

Með sívax­andi fjölda fólks af erlendum upp­runa sem flytur til lands­ins hefur hópur tekið sig saman á Ísafirði og þróað nám­skeið til að styrkja sjálfs­mynd barna og örva mál­vit­und þeirra í nýjum heim­kynnum.

Tungumálaskrúðgangan á Ísafirði 2017
Tungu­mála­skrúð­gangan á Ísafirði 2017 Mynd: Isabel Alejandra Díaz

Málörvun barna er mjög mik­il­væg og hægt er að nota marg­breyti­leika tungu­máls­ins til að skilja hvert annað. Ekki þarf ein­ungis eitt tungu­mál til þess. Þetta segir Anna Hildur Hildi­brands­dóttir, ein for­svars­manna sum­ar­nám­skeiðs­ins Tungu­mála­töfrar á Ísafirði. Nám­skeiðið er ætlað fjöl­tyngdum börnum og er mark­mið þess að búa til málörvandi umhverfi í gegnum list­kennslu. Það er hugsað fyrir íslensk börn sem hafa fæðst erlendis eða flutt til ann­arra landa og börn af erlendum upp­runa sem hafa sest að hér á landi. Það er þó opið öllum börnum og verður það haldið 6. til 11. ágúst næst­kom­andi sumar.

„Við eigum líka að bera virð­ingu fyrir fjöl­breyti­leik­anum og hvetja fólk til að aðlag­ast. Við skulum gera það fal­lega og eiga í sam­ræðu,“ segir Anna Hildur. Hún telur mik­il­vægt að Íslend­ingar geri sér grein fyrir því að inn­flytj­endur komi með þekk­ingu inn í sam­fé­lagið og að þeir mót­ist enn fremur af við­horf­inu sem tekur við þeim. „Ef þessi börn fá örvandi umhverfi þegar þau koma hingað til lands þá eru þau betur í stakk búin fyrir lífið,“ segir hún.

Þekkir það sjálf að vera innflytjandi

Anna Hildur er ein þeirra sem kom verk­efn­inu á kopp­inn en hún er nú búsett í London í Bret­landi. Hug­myndin kom til hennar dag­inn eftir Brexit þegar Bretar kusu úrsögn úr Evr­ópu­sam­band­inu. En hugs­unin risti þó dýpra því sem inn­flytj­andi í Bret­landi þá vissi hún af eigin reynslu hvernig sú til­finn­ing er. „Ég hugs­aði meira eftir Brexit-kosn­ing­arnar um það sem inn­flytj­endur heims­ins eiga sam­eig­in­legt þótt ég geri mér grein fyrir að ég sé hvítur for­rétt­inda­inn­flytj­andi. En um leið fór ég að hugsa til þess að ég vildi að barna­börnin mín hefðu aðgang að málörvandi umhverfi,“ segir hún. Anna Hildur ól dætur sínar tvær upp í London og gekk vel, að hennar sögn, að kenna þeim og við­halda íslensk­unni enda hafi móð­ur­málið verið talað á heim­il­inu. Hún segir að hlut­irnir hafi þó farið að flækj­ast þegar önnur kyn­slóð fædd­ist en makar dætra hennar eru breskir. Þar af leið­andi sé krefj­andi fyrir barna­börnin hennar að læra íslensk­una.

Anna Hildur og fjöl­skylda hennar eiga sum­ar­heim­ili á Ísafirði og dvelja þau þar iðu­lega á sumrin. Hún fór til að mynda með annað barna­barn sitt til Ísa­fjarðar síð­ast­liðið sumar, meðal ann­ars til að fara á nám­skeiðið, og segir hún að það hafi haft gríð­ar­lega góð áhrif á dreng­inn. Hún segir að fólkið fyrir vestan sé alla­jafna mjög með­vitað um þessi mál, sér­stak­lega kenn­arar. „Það er hvergi betra að vera útlend­ingur á Íslandi en fyrir vestan,“ segir hún og hlær. Við­brögðin hafi ekki látið á sér standa og bætir hún því við að hug­mynd­inni hafi verið tekið mjög vel á Ísafirði.

Þörf fyrir málörvun mikil

Til­gang­ur­inn með nám­skeið­inu fyrir börnin er í raun marg­þættur, að sögn skipu­leggj­enda. Eitt mik­il­vægt mark­mið er að styrkja sjálfs­mynd barn­anna með því að við­halda móð­ur­máli þeirra. Anna Hildur bendir á að eftir því sem kyn­slóð­irnar verða fleiri í nýjum heim­kynnum þá verður þörfin fyrir málörvun meiri. Hún segir að mikil sjálf­styrk­ing sé fólgin í því fyrir tví­tyngd börn að hitta aðra krakka sem eru á sama báti. Þau sjái kosti þess að kunna tvö tungu­mál og verði því opn­ari fyrir því að rækta málið sem þau nota minna. Þau geti verið stolt af því þegar þeim er kennt hvernig það nýt­ist þeim.

„Við ætlum einnig að nýta verk­efnið til að ná til flótta­manna­fjöl­skyldn­anna sem voru að flytja til Ísa­fjarð­ar­bæjar,“ segir Anna Hildur. Nú geta 5 til 10 ára krakkar sótt verk­efnið en ald­urs­hóp­ur­inn var áður 5 til 8 ára. Þetta er gert til þess að fleiri krakkar geti tekið þátt ekki síst úr ranni þeirra sem eru nýkomnir. Hún bendir á að þetta sé sam­fé­lags­verk­efni og hefur hún per­sónu­lega mikla trú á því.

Vilja fagna fjölbreytileikanum árlega

Verk­efnið var fram­kvæmt í fyrsta skipti í fyrra­sumar sem til­raun með styrk frá Ísa­fjarð­arbæ og þremur kenn­urum sem mót­uðu aðferða­fræð­ina. Krakk­arnir sem voru hvaðanæva af úr heim­inum tóku þátt í ýmiss konar atburðum, til að mynda bjuggu þau til bát úr mjólk­ur­fernu og hvert og sungu lag með texta sem þau gátu sjálf búið til um bát­inn. Kenn­ar­arnir leiddu þau í gegnum verk­efnið með tón­list og mynd­list og telur Anna Hildur það ein­stak­lega góða leið til að miðla þekk­ingu, sér­stak­lega í hóp sem þessum.

Mynd­list­ar­kon­urnar Ólöf Dóm­hildur Jóhanns­dóttir og Nína Ivanova ásamt tón­list­ar­kenn­ar­anum og gít­ar­leik­ar­anum Jóni Gunnari Biering Mar­geirs­syni munu leiða börnin áfram á kom­andi nám­skeiði í gegnum mynd­list, sögur og tón­list. Með þeim er verk­efna­stjór­inn Isabel Alej­andra Díaz sem er sjálf inn­flytj­andi á Ísafirði. Anna Hildur segir þetta vera stór­kost­leg nálgun og að allir sem fylgd­ust með síð­ast­liðið sumar hafi orðið heill­aðir af.

Í lok nám­skeiðs­ins var haldin svokölluð Tungu­mála­skrúð­ganga sem verður héðan í frá haldin árlega, að sögn Önnu Hildar. Til að byrja með var til­gang­ur­inn ein­ungis að loka nám­skeið­inu en á end­anum varð þetta 100 manna skrúð­ganga. Hún segir að út frá því hafi sprottið upp sú hug­mynd að fagna fjöl­breyti­leik­anum árlega, þar sem allir taki þátt. Til stendur að hafa skrúð­göng­una hvern laug­ar­dag eftir Versl­un­ar­manna­helg­ina og verður þetta því vísir að bæj­ar­há­tíð, að sögn Önnu Hildar. Jafn­framt verði gert mun meira úr göng­unni í ár, þar sem búist er við mik­illi veislu, bún­ingum og fánum og mat­ar­tjöld verða sett upp þar sem mis­mun­andi mat­ar­menn­ing verður kynnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár