Búið að samþykkja 60 umsóknir um dvalarleyfi frá tekjuháu fjarvinnufólki

Frá því að reglu­gerð­ar­breyt­ingar gerðu fjar­vinnu­fólki utan EES mögu­legt að sækja um dval­ar­leyfi á Íslandi til sex mán­aða hafa alls 65 slíkar umsóknir borist, nær allar frá Banda­ríkj­unum. 10 manns hafa komið til lands­ins og fengið slík dval­ar­leyfi útgefin.

Það var í lok október sem þessi nýja tegund af dvalarleyfum var kynnt til sögunnar, en þeir sem þau fá geta verið á Íslandi og starfað í allt að sex mánuði í fjarvinnu fyrir erlend fyrirtæki.
Það var í lok októ­ber sem þessi nýja teg­und af dval­ar­leyfum var kynnt til sög­unnar, en þeir sem þau fá geta verið á Íslandi og starfað í allt að sex mán­uði í fjar­vinnu fyrir erlend fyr­ir­tæki. Mynd: Bára Huld Beck

Útlend­inga­stofnun hefur fengið alls 65 umsóknir um vega­bréfs­á­rit­anir fyrir fólk utan EES sem vill koma til Íslands og vinna fyrir erlend fyr­ir­tæki í fjar­vinnu til allt að sex mán­aða, en mögu­legt hefur verið sækja um slík dval­ar­leyfi frá því í lok októ­ber, er þrír ráð­herrar kynntu í sam­ein­ingu reglu­gerð­ar­breyt­ingar sem mið­uðu að þessu.

Samkvæmt svörum frá Útlend­inga­stofnun eru þessar sex­tíu og fimm umsóknir bæði frá starfs­fólki erlendra fyr­ir­tækja sem hefur hug á að koma hingað og vinna tíma­bundið og mökum þeirra og börnum. Hingað til hafa tíu manns fengið útgefið þessa nýju teg­und dval­ar­leyfa, en dval­ar­leyfin eru ekki gefin út fyrr en fólk kemur til lands­ins.

Fimmtíu umsóknir til við­bótar hafa verið sam­þykktar og Útlend­inga­stofnun er þessa dag­ana með fimm umsóknir í vinnslu. 95 pró­sent þess­ara umsókna eru frá Banda­ríkj­unum, en þær fáu sem eftir standa eru frá Kanada­mönnum og Bretum. Fyrst var sagt frá þessu á nýsköp­unar- og tækni­vefnum Northstack í gær.

Það var í lok októ­ber sem þessi nýja teg­und af dval­ar­leyfum var kynnt til sög­unnar, en þeir sem þau fá geta verið á Íslandi og starfað í allt að sex mán­uði fyrir erlend fyr­ir­tæki. Fjar­vinnu­starfs­menn­irnir geta tekið fjöl­skyldur sínar með sér án þess að þurfa að færa lög­heim­ili sitt eða öðl­ast íslenska kenni­tölu.

Þessi fjar­vinnu­starfs­menn greiða því ekki skatta og eiga ekki rétt á neinni end­ur­gjalds­lausri þjón­ustu frá hinu opin­bera hér á landi. Komi börn á skóla­skyldu­aldri með í för þarf að sýna fram á að þau séu í fjar­námi að utan, fái heima­kennslu eða fá sam­þykki um að koma þeim að í skólum hér á landi.

[adspot]

Stjórn­völd ákváðu að opna á þennan mögu­leika til þess að reyna að fá til lands­ins sér­fræð­inga í fjar­vinnu sem gætu tengst nýsköp­un­ar­um­hverf­inu hér á landi, en hug­myndin kom upp í kjöl­far þess að fyrsta bylgja COVID-19 far­ald­urs­ins skall á að fjöldi fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum og víðar opn­aði á að fólk gæti unnið sína vinnu að heima.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hafði frum­kvæði að verk­efn­inu og vann ráðu­neyti hennar að því í sam­vinnu við dóms­­mála­ráðu­­neyt­ið, fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið og Skatt­inn og fleiri að útfæra þessa nýju heim­ild.

Til skoðunar að bjóða upp á lengra fjarvinnudvalarleyfi

Verið er að skoða hvort hægt sé að bjóða upp á enn lengri dvöl hér á landi, en til þess þarf frek­ari laga- og reglu­gerð­ar­breyt­ingar en ráð­ist hefur verið í til þessa.

Samkvæmt svörum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans lagði Þórdís Kolbrún til við rík­is­stjórn­ina á fundi hennar í gær að farið yrði í vinnu við að útfæra heim­ild fyrir erlenda sér­fræð­inga til að dvelja hér á landi og stunda vinnu sína fyrir erlend fyr­ir­tæki í fjar­vinnu í lengri tíma en 6 mán­uði. Ráðherra lagði til að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið myndi halda utan um vinn­una og miðað er við að til­lögur um nauð­syn­legar laga- og reglu­gerð­ar­breyt­ingar verði lagðar fram í rík­is­stjórn eigi síðar en 7. maí.

Íslands­stofa hefur farið í grein­ing­ar­vinnu á þessu máli að und­an­förnu. Í þeirri vinnu hefur komið í ljós að breið­ari hópur hefur áhuga á að koma hingað til lands til að stunda vinnu sína fyrir erlendan aðila í fjar­vinnu en getur það í dag.

Einnig kom fram í þess­ari vinnu Íslands­stofu að sníða þyrfti van­kanta af og stytta umsókn­ar­ferið, gera mökum þess­ara aðila kleift að starfa hér á landi og huga að skattaum­hverf­inu.

„Ljóst er að fleiri ráðu­neyti og aðilar þurfa að koma að verk­efn­inu ef heim­ila á þessum aðilum dvöl hér á landi í lengri tíma en 6 mán­uði, þ.e. dóms­mála­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, félags­mála­ráðu­neyti, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyti auk atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis, Útlend­inga­stofn­unar, Skatts­ins, Vinnu­mála­stofn­unar og Íslands­stofu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um þetta mál­efni.

Miðað að hátekjufólki í fjarvinnu

[links]Athygli vakti þegar reglu­gerð­ar­breyt­ing­arnar voru kynntar að fólk þarf að vera tölu­vert tekju­hátt til þess að eiga kost á því að sækja um dval­ar­leyfi í fjar­vinnu, en þeir útlend­ingar sem sækja um lang­tíma­vega­bréfs­á­ritun til að stunda hér fjar­vinnu að vera með erlendar tekjur sem sam­svara að minnsta kosti einni milljón króna á mán­uði. Ef maki við­kom­andi er með í för þá þarf fjar­vinnu­starfs­maður að sýna fram á tekjur upp á að minnsta kosti 1,3 millj­ónir króna á mán­uði.

Fólk þarf að sýna fram á ráðn­ing­ar­sam­band eða verk­efna­samn­inga, starfi það sjálf­stætt. Einnig þarf fólk að sýna fram á að það hafi ýmist íslenskar eða erlendar sjúkra­trygg­ingar allan þann tíma sem það ætlar að dvelja á Íslandi.

Þór­­dís Kol­brún sagði í til­­kynn­ingu um mál­ið í októ­ber að til að byggja upp útflutn­ings­­greinar byggðar á hug­viti þyrfti að búa til umhverfi, suð­u­pott fólks með hug­­myndir og hæfni sem kynn­ist, lærir af hvert öðru, og býr til tæki­­færi fram­­tíð­­ar­inn­­ar.

„Við höfum upp á mikið að bjóða fyrir erlenda sér­­fræð­inga og getum lært mikið af þeim. Einn helsti veik­­leiki íslenska nýsköp­un­­ar­um­hverf­is­ins eru teng­ingar okkar við útlönd. Með því að hvetja fjar­vinn­u­­fólk til að koma til Íslands erum við að minnka heim­inn og búa til mik­il­vægar teng­ingar sem ann­­ars væri erfitt að koma á. Nú höfum við stigið þetta mik­il­væga skref en ætlum að halda áfram vinnu við að stíga enn stærri skref svo við getum boðið upp á enn lengri dvöl íslensku sam­­fé­lagi til hags­­bóta,“ sagði ráð­herra í til­kynn­ingu.

Í svörum til Kjarnans öllu fyrr, eða í byrjun júní, sagði Þórdís Kolbrún að hún teldi vel koma til greina að verja fé til þess að kynna fyrir umheim­inum að sér­fræð­ingum stæði til boða að koma til Íslands og starfa í fjar­vinnu.

„Eftir að búið er að kort­leggja ferlið og sjá hvaða breyt­ingar þarf að gera til að hafa það sem ein­fald­ast og skil­virkast þurfum við að koma því til skila og búa til ein­hvers konar leið­ar­vísi þar sem við­kom­andi er leiddur í gegnum ferl­ið. Ekki síst að huga að mark­aðs­setn­ingu á Íslandi sem fjar­vinnu­landi. Þar þyrfti að ein­blína á hvað er ein­stakt og spenn­andi við að koma hingað og hvað við höfum fram að færa. Að búa á Íslandi er lottó­vinn­ingur og fyrir sér­fræð­inga í alþjóð­legum tækni­fyr­ir­tækjum getum við boðið upp á mikil lífs­gæði. Þar mætti auð­vitað nefna nátt­úr­una en einnig líka til dæmis gott aðgengi að leik- og grunn­skólum sem er oft meiri risa bónus fyrir barna­fólk en við kannski áttum okkur á fyrir utan frá­bært heil­brigð­is­kerfi, virkt menn­ing­ar­líf, frið og ró,“ sagði Þór­dís Kol­brún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár