Ísland býður erlenda sérfræðinga velkomna ef þeir eru með milljón á mánuði eða meira

Til að fá lang­tíma­vega­bréfs­á­ritun til að stunda fjar­vinnu á Íslandi þurfa útlend­inga að vera með að minnsta kosti eina milljón króna á mán­uði. Ef maki er með í för þurfa tekj­urnar að vera að minnsta kosti 1,3 millj­ónir króna.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra skrifar undir reglugerðarbreytinguna.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra skrifar undir reglu­gerð­ar­breyt­ing­una. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórn Íslands und­ir­rit­aði á þriðju­dag breyt­ingar á reglu­gerðum sem gera erlendum rík­is­borg­urum frá ákveðnum löndum utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins (EES) mögu­legt að dvelja á Íslandi í allt að sex mán­uði og stunda vinnu sína hjá erlendum fyr­ir­tækjum í fjar­vinnu.

Um er að ræða breyt­ingu á reglu­gerð um útlend­inga frá árinu 2017. Nýja reglu­gerðin var birt í stjórn­ar­tíð­indum í gær. Samkvæmt henni þurfa þeir útlend­ingar sem sækja um lang­tíma­vega­bréfs­á­ritun til að stunda hér fjar­vinnu að vera með erlendar tekjur sem sam­svara að minnsta kosti einni milljón króna á mán­uði. Ef maki við­kom­andi er með í för þá þarf hann að sýna fram á tekjur upp á að minnsta kosti 1,3 millj­ónir króna á mán­uði.

[adspot]Undir reglu­gerð­ina skrifar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra, sem fer með mál­efni útlend­inga í rík­is­stjórn. Hún lagði minn­is­blað um málið fyrir rík­is­stjórn á þriðju­dag ásamt Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Nýsköpunarumhverfinu vantar tengingar

Þór­dís Kol­brún hefur haft frum­kvæði að þessu verk­efni og ráðu­neyti hennar unnið að því í sam­vinnu við dóms­mála­ráðu­neyt­ið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Skatt­inn og fleiri að útfæra heim­ild fyrir ein­stak­linga sem eru í föstu ráðn­ing­ar­sam­bandi við erlend fyr­ir­tæki að dvelja og starfa hér á landi í sex mán­uði, en í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins hafa fjölda­mörg fyr­ir­tæki opnað á fjar­vinnu. Fram til þessa hefur aðeins verið hægt að dvelja hér á landi í 90 daga við slíkar aðstæð­ur.

[links]„Til að fá heim­ild fyrir lengri dvöl þarf við­kom­andi að sýna fram á ráðn­ing­ar­sam­band, tekjur og sjúkra­trygg­ing­ar. Áfram verður unnið að því að skoða fram­kvæmd­ina til að hægt verði að bjóða upp á dvöl til enn lengri tíma. Sam­starf og sam­ráð mun hefj­ast sem fyrst um það hvernig skatta­mál og dval­ar­heim­ildir yrðu útfærð­ar. Það mun kalla á víð­tækt sam­starf,“ sagði í til­kynn­ingu um þessa aðgerð á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þór­dís Kol­brún sagði í til­kynn­ingu um mál­ið að til að byggja upp útflutn­ings­greinar byggðar á hug­viti þyrfti að búa til umhverfi, suðu­pott fólks með hug­myndir og hæfni sem kynn­ist, lærir af hvert öðru, og býr til tæki­færi fram­tíð­ar­inn­ar. „Með því að opna nú fyrir og auð­velda starfs­fólki að vinna frá Íslandi, bætum við þekk­ingu og teng­ingum inn í íslenska umhverf­ið.“

Ísland hefur, að sögn ráð­herr­ans, sér­stöðu hvað varðar land­legu auk þess sem landið tengir tíma­belti austur og vestur Evr­ópu við aust­ur- og mið Banda­rík­in. „Við höfum upp á mikið að bjóða fyrir erlenda sér­fræð­inga og getum lært mikið af þeim. Einn helsti veik­leiki íslenska nýsköp­un­ar­um­hverf­is­ins eru teng­ingar okkar við útlönd. Með því að hvetja fjar­vinnu­fólk til að koma til Íslands erum við að minnka heim­inn og búa til mik­il­vægar teng­ingar sem ann­ars væri erfitt að koma á. Nú höfum við stigið þetta mik­il­væga skref en ætlum að halda áfram vinnu við að stíga enn stærri skref svo við getum boðið upp á enn lengri dvöl íslensku sam­fé­lagi til hags­bóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár