Opnað á hálfs árs fjarvinnu erlendra sérfræðinga með reglugerðarbreytingum

Ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni und­ir­rit­uðu í dag breyt­ingar á reglu­gerðum sem gefa rík­is­borg­urum utan EES færi á að koma hingað til lands með fjöl­skyldur sínar og vinna í fjar­vinnu til sex mán­aða.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, við undirritun reglugerðanna í dag.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, nýsköp­un­ar­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við und­ir­ritun reglu­gerð­anna í dag. Mynd: Stjórnarráðið

Erlendir rík­is­borg­arar frá ákveðnum löndum utan EES munu geta dvalið á Íslandi í allt að sex mán­uði og stundað vinnu sína hjá erlendum fyr­ir­tækjum í fjar­vinnu, sam­kvæmt breyt­ingum á reglu­gerðum sem ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni und­ir­rit­uðu í dag.

Stefnan er að skoða fram­kvæmd­ina áfram, svo hægt verði að bjóða upp á dvöl til enn lengri tíma. Íslands­stofa mun sjá um upp­lýs­inga­gjöf og kynn­ing­ar­starf aðgerð­ar­innar.

Með breyt­ing­unum verður þeim rík­is­borg­urum, sem eru und­an­þegnir árit­un­ar­skyldu, heim­ilt að sækja um lang­tíma­vega­bréfs­á­ritun á Íslandi fyrir starfs­menn í fjar­vinnu og fjöl­skyldur þeirra án þess að þurfa að flytja lög­heim­ili til lands­ins eða fá kenni­tölur.[links]

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttur nýsköp­un­ar­ráð­herra hefur haft frum­kvæði að þessu verk­efni og ráðu­neyti hennar unnið að því í sam­vinnu við dóms­mála­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Skattinn og fleiri að útfæra heim­ild fyrir ein­stak­linga sem eru í föstu ráðn­ing­ar­sam­bandi við erlend fyr­ir­tæki að dvelja og starfa hér á landi í sex mán­uði, en í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins hafa fjölda­mörg fyr­ir­tæki opnað á fjar­vinnu. Fram til þessa hefur aðeins verið hægt að dvelja hér á landi í 90 daga við slíkar aðstæður.

[adspot]

„Til að fá heim­ild fyrir lengri dvöl þarf við­kom­andi að sýna fram á ráðn­ing­ar­sam­band, tekjur og sjúkra­trygg­ingar. Áfram verður unnið að því að skoða fram­kvæmd­ina til að hægt verði að bjóða upp á dvöl til enn lengri tíma. Samstarf og sam­ráð mun hefj­ast sem fyrst um það hvernig skatta­mál og dval­ar­heim­ildir yrðu útfærðar. Það mun kalla á víð­tækt sam­starf,“ segir í til­kynn­ingu um þessa aðgerð á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

„Til að byggja upp útflutn­ings­greinar byggðar á hug­viti þurfum við að búa til umhverfi, suðu­pott fólks með hug­myndir og hæfni sem kynn­ist, lærir af hvert öðru, og býr til tæki­færi fram­tíð­ar­innar. Með því að opna nú fyrir og auð­velda starfs­fólki að vinna frá Íslandi, bætum við þekk­ingu og teng­ingum inn í íslenska umhverfið,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu í til­kynn­ingu um málið.

„Við höfum sér­stöðu hvað varðar land­legu, tengjum tíma­belti austur og vestur Evrópu við austur- og mið Banda­ríkin. Við höfum upp á mikið að bjóða fyrir erlenda sér­fræð­inga og getum lært mikið af þeim. Einn helsti veik­leiki íslenska nýsköp­un­ar­um­hverf­is­ins eru teng­ingar okkar við útlönd. Með því að hvetja fjar­vinnu­fólk til að koma til Íslands erum við að minnka heim­inn og búa til mik­il­vægar teng­ingar sem ann­ars væri erfitt að koma á. Nú höfum við stigið þetta mik­il­væga skref en ætlum að halda áfram vinnu við að stíga enn stærri skref svo við getum boðið upp á enn lengri dvöl íslensku sam­fé­lagi til hags­bóta,“ er enn fremur haft eftir ráð­herr­anum.

Tryggja á að ekkert á skattahliðinni stoppi þetta

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að breyt­ingin sem gerð sé í dag kalli ekki á laga­breyt­ingar, heldur hafi Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra und­ir­ritað breyt­ingar á reglu­gerðum um útlend­inga og reglu­gerðum um tekju­skatt og fasta starf­stöð.

„Við ætlum að tryggja að út frá skatta­hlið­inni sé ekk­ert sem kemur í veg fyrir að hægt verði að nýta þann mögu­leika að fá hingað tíma­bundið til starfa ein­stak­linga sem starfa hjá erlendum fyr­ir­tækjum, en þessir sér­fræð­ingar búa yfir verð­mætri hæfni og þekk­ingu. Í þessu fel­ast ótal tæki­færi og í við­spyrn­unni við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum er mik­il­vægt að horfa til þess hvernig við getum styrkt efna­hags­lega stöðu okkar með fjöl­breyttum hætti, meðal ann­ars með nýjum tengslum og þekk­ingu á vett­vangi nýsköp­unar og rann­sókna,” er haft eftir Bjarna á vef ráðu­neyt­is­ins.

„Ég hef verið fylgj­andi því að fólk utan evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins hafi aukna mögu­leika til að koma hér til starfa. Þróun tækni kallar á það að við séum opin og sveigj­an­leg gagn­vart vax­andi tæki­færum sem skap­ast þegar sífellt fleiri störf eru óháð dval­ar­stað. Reglu­verkið þarf að taka mið af þessu og sam­vinna og sam­eig­in­legur vilji ráðu­neyta er nauð­syn­leg for­senda þess að vel tak­ist til,“ er haft eftir Áslaugu Örnu, í til­kynn­ingu ráðu­neyt­anna þriggja sem koma að mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár