Sigríður Björk vísar gagnrýni á LÖKE-málið á bug

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vísar á bug gagn­rýni á rann­sókn lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á LÖKE-mál­inu svo­kall­aða. Sigríður Björk var yfir lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum þegar málið var rann­sakað þar. Hún var spurð um þetta í við­tali við Björn Inga Hrafns­son í Eyjunni á Stöð 2 nú í kvöld.

Lög­reglu­maður var sak­aður um hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í mála­skrá lög­regl­unnar, LÖKE, án þess að upp­flett­ingar tengd­ust starfi hans sem lög­reglu­manns. Hann var ákærður fyrir þetta og fyrir að hafa miðlað per­sónu­upp­lýs­ingum sem leynt áttu að fara til þriðja aðila í gegnum Facebook. Seinni ákæru­lið­ur­inn stendur eftir, en rík­is­sak­sókn­ari féll frá hinum fyrri.

Garðar Steinn Ólafsson, lög­maður manns­ins, hefur sakað lög­regl­una á Suð­ur­nesjum um að hafa van­rækt að rann­saka málið til hlítar. Hann hefur sagt að aldrei hafi farið fram rann­sókn heldur hafi hann verið bor­inn sökum af aðstoð­ar­lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum á þeim tíma, Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur. „Við höfum ítrekað kraf­ist þess að fram­kvæmd yrði rann­sókn á fjar­stæðu­kenndum sam­sær­is­kenn­ingum aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra. Alltaf var við­kvæðið að það hafi verið gert. Svo þegar sak­sókn­ari sett­ist niður til að und­ir­búa aðal­með­ferð í mál­inu hefur hún lesið gögn máls­ins í fyrsta skipti. Þá hefur hún upp­götvað að ákæra hafi verið gefin út á fölskum for­sendum,“ sagði Garðar Steinn í við­tali við Kjarnann í vik­unni.

Sigríður Björk vís­aði þessu öllu á bug í Eyjunni og sagði gagn­rýn­ina ómál­efna­lega, vegna þess að það hafi verið rík­is­sak­sókn­ari sem hafi tekið allar ákvarð­anir í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár