Ferðaþjónustan orðin að stoðvirki í hagkerfinu

Vöxtur ferða­þjón­ust­unnar hefur umbreytt henni í afar mik­il­væga stærð fyrir íslenskan efna­hag. Því fylgja tæki­færi en líka hættur. Er flug­fé­lögin orðin að kerf­is­á­hættu­þætti svipað og banka­starf­semi? Í hverju liggja tæki­færin?

Lands­bank­inn birti í vik­unni sem leið ítar­lega grein­ingu sína á ferða­þjón­ust­unni á Íslandi, og fylgdi því úr vör með fundi um þessa und­ir­stöðu­at­vinnu­grein Íslands.

Margt athygl­is­vert má finna í grein­ingu bank­ans. Fimm atriði verða hér dregin fram sér­stak­lega, sem sýna glögg­lega hversu mikið vægi ferða­þjón­ust­unnar hefur fyrir Ísland, og hversu miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf.

1. Árið 2015 nam útflutn­ingur ferða­þjón­ustu í hag­kerf­inu um 31 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi. Til sam­an­burðar er heims­með­al­talið um 7 pró­sent. Vægi ferða­þjón­ust­unnar í útflutn­ingi er því ríf­lega fjór­falt meira á Íslandi en það er almennt í heim­inum. Á síð­ustu tveimur árum hefur þetta hlut­fall farið hækk­andi, og spáir hag­fræði­deild Lands­bank­ans því að vægið verði um 43 pró­sent á þessu ári.

2. Sé mið tekið af rann­sóknum hag­fræði­deildar Lands­bank­ans á því, hversu næm ferða­þjón­ustan er fyrir geng­is­breyt­ingum, þá bendir margt til þess að ferða­þjón­usta á Íslandi sé ekki eins næm fyrir hækkun verð­lags vegna geng­is­breyt­inga heldur en gengur og ger­ist í heim­inum. Þetta eru sagðar jákvæðar fréttir, sem slá á miklar áhyggjur manna af því að ferða­mönnum muni fækka á næstu miss­erum. Hag­fræði­deildin gerir ráð fyrir 22 pró­sent fjölgun ferða­manna á þessu ári, en síðan fari að hægja nokkuð á fjölg­un­inni. Hún verði 8 pró­sent á næsta ári og 5 pró­sent árið 2019.

3. Önnur eyríki sem reiða sig að miklu leyti á ferða­þjón­ustu, eru líkt og Ísland afar háð því að flug­sam­göngur séu góðar og skil­virkar. Um 99 pró­sent allra erlendra ferða­manna sem koma til Ísland koma um Kefla­vík­ur­flug­völl, og því er kerf­is­lægt mik­il­vægi hans fyrir ferða­þjón­ust­una og hag­kerfi í heild sinni afar mikið. Gíf­ur­legt álag hefur verið á vell­inum á und­an­förnum árum, og er upp­bygg­ing hans nú í gangi. Samkvæmt gögnum sem hag­fræði­deild Lands­bank­ans tók saman þá voru flug­hreyf­ingar (áætl­unar- og leiguflug) á vell­inum 45.771 í fyrra sem er um 178 pró­sent aukn­ing frá árinu 2009. Þessi vöxtur er fáheyrður í alþjóð­legu sam­hengi. Með­al­tals­fjöldi milli­landa­fluga á hverjum degi var 63.

4. Því er velt upp í grein­ingu Lands­bank­ans, hvort flug­fé­lögin Icelandair og WOW Air séu orðin kerf­is­lægt mik­il­væg fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika í land­inu, með svip­uðum hætti og fjár­mála­fyr­ir­tækin stærstu eru skil­greind sem kerf­is­lægt mik­il­væg út frá þeim mæli­kvarða. Fram kemur í umfjöll­un­inni að ef flug­fé­lögin lendi í vand­ræðum, þá geti það leitt til alvar­legra áfalla fyrir íslenskt efna­hags­líf í heild sinni. Svo yfir­þyrm­andi eru stærðir ferða­þjón­ust­unnar orðnar fyrir íslenska hag­kerfið. Þarf að útbúa við­bragðs­á­ætl­anir og neyð­ar­úr­ræði, vegna þess­ara mik­il­vægu félaga? Að þessu er spurt í grein­ing­unni.

5. Greining Lands­bank­ans gerir ráð fyrir að fjölgun gistin­átta geti mögu­lega hafa verið van­metin á und­an­förnum árum. Er ástæðan sú að stór hluti af gisti­mark­aðnum er óskráður. Telur grein­ingin meðal ann­ars að Airbnb kunni að vera með helm­ing af gisti­mark­aðnum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár