Formenn allra flokka vilja setja 500 milljónir í nýjan jafnréttissjóð

Formenn allra stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi hafa lagt fram sam­eig­in­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stofnun Jafn­rétt­is­sjóðs Íslands í til­efni af því að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosn­inga­rétt. Sjóð­ur­inn á að njóta fram­laga af fjár­lögum næstu fimm árin, 100 millj­ónir króna á ári, eða 500 millj­ónir alls.

Úthlutað verður úr sjóðnum á hverju ári milli 2016 og 2020 og verða úthlut­anir til­kynntar á 19. júní ár hvert. „Er með því lögð áhersla á þann sess sem kven­rétt­inda­dag­ur­inn skipar í íslensku sam­fé­lagi,“ segir í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. Sjóð­ur­inn mun fjár­magna eða styrkja „fjöl­þætt verk­efni sem ætlað er að stuðla að frek­ari fram­þróun á sviði jafn­rétt­is­mála hér­lendis og efla stöðu kvenna í þró­un­ar­löndum.“

Meðal verk­efna yrðu verk­efni sem vinna gegn launa­mun og efla jafn­rétti á vinnu­mark­aði og í atvinnu­lífi, verk­efni sem hvetja konur til for­ystu og nýsköp­unar, vinna gegn kyn­bundnu ofbeldi og heim­il­is­of­beldi og verk­efni sem hvetja ungt fólk til auk­innar þátt­töku í stjórn­mála­starfi. Þá eru tekin fram verk­efni sem stuðla að sterkri og jákvæðri sjálfs­mynd bæði stráka og stelpna, og verk­efni sem efla stöðu kvenna í þró­un­ar­löndum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bjarni Bene­dikts­son, Árni Páll Árnason, Katrín Jak­obs­dóttir, Guð­mundur Stein­gríms­son og Helgi Hrafn Gunn­ars­son lögðu fram til­lög­una. „Almennur kosn­ing­ar­réttur og kjör­gengi til Alþingis er for­senda þeirrar lýð­ræð­is­skip­unar sem Íslend­ingar búa við. Þessi rétt­indi eru jafn­framt hluti af lýð­ræðis­vit­und þjóð­ar­innar því að í þeim fel­ast þau grund­vall­ar­mann­rétt­indi að geta haft áhrif á mótun sam­fé­lags­ins. Alþingi hefur því ríka ástæðu til að minn­ast 100 ára afmælis kosn­ing­ar­réttar kvenna með veg­legum hætti,“ segja þau í grein­ar­gerð­inni.

Í grein­ar­gerð­inni segir að árangur Íslands í jafn­rétt­is­málum sé upp­örvandi, en það sé óum­deilt að fjöl­margt megi betur fara í jafn­rétt­is­málum, meðal ann­ars þegar kemur að kyn­bundnum launa­mun og kyn­bundnu ofbeldi og heim­il­is­of­beldi. „Nauð­syn­legt er að takast á við þessi verk­efni og halda þannig áfram upp­bygg­ingu sam­fé­lags jafn­réttis og lýð­ræðis. Rann­sóknir hafa ítrekað sýnt fram á að aukið jafn­rétti getur aukið lífs­gæði allra því að aukið kynja­jafn­rétti hefur jákvæð áhrif á hag­vöxt og efna­hags­stöð­ug­leika auk þess að bæta sam­keppn­is­stöðu ríkja.“ Þá sé það rök­rétt að Íslend­ingar leggi sitt af mörkum til að styðja við jafn­rétt­is­starf í þró­un­ar­ríkjum. „Tillagan gerir því ráð fyrir því að allt að helm­ingi árlegs ráð­stöf­un­ar­fjár Jafn­rétt­is­sjóðs Íslands skuli varið til verk­efna sem ætlað er að efla stöðu kvenna í þró­un­ar­löndum og stuðla að auk­inni þekk­ingu hér­lendis á stöðu þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár