Dýrara ál Sam­an­burður á fram­legð Rio Tinto og fyrri eig­anda álvers­ins í Straums­vík, kandadíska fyr­ir­tæk­is­ins Alcan, sýnir að fram­leiðsla Rio Tinto er dýr­ari svo um munar. Álverið í Straums­vík er bara eitt af fjöl­mörgum sem Rio Tinto rekur í heim­inum. Mynd: Pressphotos

Álverið í Straumsvík borgar milljarða til móðurfélagsins

Álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík er í margs konar viðskiptum við móður­félag sitt í Sviss þar sem fjármunir renna frá Íslandi og til þess. Aukinn kostnaður getur lækkað skatt­greiðslur. Hagnaður Rio Tinto af sölu fyrir­tækisins á áli að frádregnum kostnaði var einungis um tveir þriðju hlutar af hagnaði Alcan þegar það fyrirtæki átti álverið í Straumsvík. Framlegð Alcan á tíma­bilinu 2002 til 2007 var rúmlega 43 prósent en framlegð Rio Tinto er rúmlega 30 prósent.

Rio Tinto Alcan á Íslandi, eigandi álversins í Straumsvík, greiðir ýmis konar gjöld til móður­félags síns í Sviss og á í innbyrðis viðskiptum við það fyrir upphæðir sem samtals nema mörgum milljörðum króna árlega. Um er að ræða greiðslur vegna einka­leyfa, tæknilega þjónustu, sameiginlega stjórnun auk þess sem fyrir­tækið á Íslandi á í umtals­verðum viðskiptum við móður­félagið vegna kaupa á súráli og rafskautum sem notuð eru í álframleiðslunni í Straumsvík. Þetta kemur fram í svörum frá upplýsinga­fulltrúa Alcan á Íslandi, Ólafi Teiti Guðnasyni. 

Greiðslurnar til móður­félagsins eru bókfærðar sem kostnaður við starfsemi Rio Tinto Alcan á Íslandi og því eru greiðslurnar sem slíkar ekki skatt­lagðar þegar þær eiga sér stað á milli landa. Í ársreikningi félagsins kemur til að mynda fram ríflega 13 milljón dollara, rúmlega 1.650 milljón króna, greiðsla sem að hluta rennur til móður­félags Rio Tinto á Íslandi, Alcan Holdings Switzerland. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsinga­fulltrúi álversins í Straumsvík, útskýrir þessa greiðslu með eftir­farandi hætti: „Hér er um að ræða annars vegar greiðslur til móður­félags fyrir einka­leyfi á kertækni, og fyrir tæknilega þjónustu og sameiginlega stjórnun, og hins vegar ábyrgðar­gjald vegna ábyrgðar móður­félags á tilteknum skuld­bindingum fyrir­tækisins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár