Grísk stjórnvöld munu leita annað ef ekki semst við ESB

Grikkir þurfa að hafa vara­á­ætlun ef ekki tekst að semja við Evr­ópu­sam­bandið og þeir gætu leitað til Banda­ríkj­anna, Rúss­lands og Kína. „Það sem við viljum er sam­komu­lag,“ sagði Panos Kammenos, varn­ar­mála­ráð­herra Grikk­lands í við­tali við grísku sjón­varps­stöð­ina Mega TV í morgun, en BBC greinir frá.

„En ef það verður ekk­ert sam­komu­lag og við sjáum að Þýska­land verður áfram stíft og vill splundra Evrópu, þá er það skylda okkar að hafa plan B. Plan B er að fá fjár­magn ann­ars staðar frá. Það gætu verið Banda­ríkin í besta falli, það gæti verið Rússland, það gæti verið Kína eða önnur ríki.“

Með áætlun tilbúna fyrir fund evruhópsins


Grísk stjórn­völd munu leggja fimm til­lögur fram á fundi evru­hóps­ins á morgun, sam­kvæmt grískum fjöl­miðlum. Þetta er haft eftir heim­ild­ar­mönnum innan gríska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Fundur evru­hóps­ins á morgun er sér­stakur neyð­ar­fundur þar sem mál­efni Grikk­lands verða rædd. Markmið Grikkja er að ná sam­komu­lagi fyrir næsta fund evru­hóps­ins sem verður strax eftir helg­ina, þann 16. febr­úar. Evru­hóp­ur­inn sam­anstendur af fjár­mála­ráð­herrum evru­ríkj­anna. Sam­komu­lag­inu er ætlað að gefa grísku rík­is­stjórn­inni frest fram yfir sum­arið til að ná fram var­an­legri samn­ingum. Rík­is­stjórnin er sögð ætla að leggja til sam­komu­lag sem á að gilda frá því að núver­andi samn­ingar við ESB og AGS renna út, í lok febr­úar, og fram í lok ágúst.

Meðal ann­arra atriða sem lögð verða fyrir evru­hóp­inn er að skipt verði út 30 atriða umbótaplaggi sem hefur verið mikið gagn­rýnt í Grikk­landi. Í stað­inn verði ráð­ist í tíu umbætur í sam­starfi við Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ina (OECD). Þá vilja Grikkir breyta hlut­falli tekju­af­gangs í fjár­lögum. Nú er gert ráð fyrir því að tekju­af­gangur rík­is­ins þurfi að vera þrjú pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þetta telja stjórn­völd ekki raun­hæft og vilja að hlut­fallið verði lækkað í 1,5 pró­sent.

Þá vilja stjórn­völd hefja samn­inga­við­ræður um end­ur­fjár­mögnun á skuldum rík­is­ins með hag­vaxt­ar­tengdu skulda­bréfi, eins og fjár­mála­ráð­herr­ann hefur talað fyrir. Loka­at­riðið á lista stjórn­valda er að taf­ar­laust verði ráð­ist gegn félags­legum vanda­málum eins og fátækt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár