Vatíkanið viðurkennir sjálfstæði Palestínu

Vatíkanið hefur form­lega við­ur­kennt Palest­ínu sem sjálf­stætt ríki. Þetta var gert með til­skipun í dag, þar sem kemur skýrt fram að Vatíkanið ræðir ekki lengur um sam­skipti sín við Frels­is­sam­tök Palest­ínu (PLO) heldur notar hug­takið palest­ínska ríkið. Til­skip­unin varðar kaþ­ólsku kirkj­una á palest­ínskum svæðum.

Þetta er fyrsta opin­bera plaggið þar sem fram kemur að Palest­ína sé ríki að mati Vatík­ans­ins, og tals­maður Vatík­ans­ins, Federico Lombardi, segir í sam­tali við fjöl­miðla að þetta þýði opin­bera við­ur­kenn­ingu á því.

Ísra­elska utan­rík­is­ráðu­neytið hefur þegar sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem lýst er yfir miklum von­brigðum með ákvörðun Vatík­ans­ins. „Þetta ýtir ekki undir frið­ar­ferlið og fjar­lægir for­ystu Palest­ínu frá því að koma aftur að beinum, tví­hliða samn­inga­við­ræðum,“ sagði í yfir­lýs­ingu þess.

Mahmoud Abbas, for­seti Palest­ínu, er á leið í heim­sókn til Frans páfa í Vatík­an­inu á næstu dögum.

Ísland og Svíþjóð eru einu nor­rænu þjóð­irnar sem við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu, þótt hinar þjóð­irnar eigi í stjórn­mála­sam­bandi við stjórn­völd í Palest­ínu. Þá við­ur­kenna tæp 70 pró­sent allra aðild­ar­ríkja að Sam­ein­uðu þjóð­unum sjálf­stæði Palest­ínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár