Útlendingastofnun hefur ekki gefið út ársskýrslur frá árinu 2014

Útlend­inga­stofnun hefur ekki gefið út árs­skýrslur frá árinu 2014 vegna mik­illa anna sem stöf­uðu af fjölgun umsókna um alþjóð­lega vernd.

Kúrdískt flóttafólk í Frakklandi.
Kúrdískt flótta­fólk í Frakk­landi. Mynd: EPA

Útlend­inga­stofnun hefur ekki gefið út árs­skýrslur frá árinu 2014 vegna mik­illa anna sem stöf­uðu af for­dæma­lausri fjölgun umsókna um alþjóð­lega vernd.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Helga Hrafni Gunn­ars­syni um árs­skýrslur Útlend­inga­stofn­unar.

Árs­skýrslur vegna áranna 2015, 2016 og 2017 eru hins vegar í vinnslu, kemur fram í svar­inu. „Árs­skýrsla vegna 2017 liggur nú fyrir í drögum og mun koma út innan skamms. Þær tvær sem eftir eru munu síðan fylgja í kjöl­farið. Útlend­inga­stofnun hefur lagt áherslu á að bæta mjög töl­fræði­legar upp­lýs­ingar vegna umsókna um alþjóð­lega vernd á heima­síðu sinni, www.utl.is. Þar er aðgengi­leg töl­fræði sem verður einnig að finna í árs­skýrsl­unum. Sú töl­fræði sem mun bæt­ast við er m.a. varð­andi dval­ar­leyfi en þeim hefur fjölgað mjög und­an­farin ár.“

Flóttamönnum fækkar á Íslandi

Flótta­mönnum sem sóttu um hæli á Íslandi fækk­aði á milli áranna 2016 og 2017 og fjöldi þeirra sem voru í þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar eða sveit­ar­fé­laga dróst saman um þriðj­ung. Þá hafa færri flótta­menn sótt um hæli hér á landi það sem af er ári en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra.

Alls sóttu 181 flótta­menn um alþjóð­lega vernd á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2018. Flestir þeirra, eða 34 tals­ins, komu frá Írak.

Sá fjöldi sem sótt­ist eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins er mun fámenn­ari sá sem sótti um slíka hér­lendis á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2017. Þá sóttu sam­tals 290 manns um hæli.

Á öllu síð­asta ári sóttu 1.096 manns um hæli á Íslandi. Það eru færri en sóttu um hæli á Íslandi á árinu 2016. Þá fengu alls 135 alþjóð­lega vernd og leyfi til að dvelja hér áfram, en árið 2017 voru alls 1.293 umsóknir um slíkt afgreidd­ar. Því fékk einn af hverjum tíu hæl­is­leit­endum sem fékk nið­ur­stöðu í hæli á Íslandi. 38 þeirra komu frá Írak, 26 frá Afganistan og 21 frá Sýr­landi. Sam­tals voru 85 þeirra sem fengu hæli hér­lendis frá þessum þremur lönd­um, eða tæp­lega tveir af hverjum þremur sem fengu slíkt.

Þeim hæl­­is­­leit­endum sem voru í þjón­­ustu sveit­­ar­­fé­laga eða Útlend­inga­­stofn­unar fækk­aði mikið í fyrra. Þeir voru 820 í byrjun des­em­ber 2016 en 559 í byrjun sama mán­aðar 2017. Það þýðir að hæl­­is­­leit­endum sem voru á for­ræði ríkis eða sveit­­ar­­fé­laga fækk­aði um tæpan þriðj­ung á einu ári. Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá fram­­­færslu­eyri. Hann er átta þús­und krónur fyrir ein­stak­l­ing á viku en 23 þús­und krónur hjá fjög­­­urra manna fjöl­­­skyldu. Auk þess fær hver full­orð­inn hæl­­­is­­­leit­andi 2.700 krónur í vasa­pen­ing á viku og for­eldrar fá við­­­bótar þús­und­ krónur fyrir hvert barn.

2,7 millj­­arðar til hæl­­is­­mála í ár

Fjöldi hæl­­is­­leit­enda hér­­­lendis jókst mikið á árinu 2016. Þá var fjöldi þeirra sem komu hingað 1.130. Það þýðir að 34 fleiri flótta­menn sóttu um hæli á Íslandi á árinu 2016 en í fyrra.

Í upp­­­gjöri rík­­is­­sjóðs vegna fyrstu sex mán­aða árs­ins 2017 kom fram að hrein útgjöld vegna rétt­inda ein­stak­l­inga hafi verið 2,2 millj­­­­­arðar króna sem var 1.251 millj­­­­­ónum meira en áætlað var. Þar sagði: „Í fjár­­­­­heim­ildum vegna árs­ins 2017 voru veru­­­­­lega van­á­ætl­­­­­aðar í fjár­­­­­laga­­­­­gerð fyrir árið 2017 í ljósi for­­­­­dæma­­­­­lausrar fjölg­unar hæl­­­­­is­um­­­­­sókna á síð­­­­­­­­­ustu mán­uðum árs­ins 2016. Kostn­aður vegna þess­­­­­ara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfir­­­­­stand­andi ári.“ Hluti þess við­­bót­­ar­­kostn­aðar var því vegna kostn­aðar sem féll til á árinu 2016 en hafði ekki verið gert ráð fyrir í fjár­­lög­­um.

Ásmundur Frið­­riks­­son, þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, skrif­aði grein í Morg­un­­blaðið í októ­ber 2017 þar sem hann sagði að kostn­aður vegna hæl­­is­­leit­enda hér­­­lendis gæti farið í sex millj­­arða króna á ári og jafn­­vel í 220 millj­­arða króna á ári miðað við sviðs­­myndir sem settar hefðu verið fram.

Sam­­kvæmt fjár­­heim­ild til útlend­inga­­mála í fjár­­laga­frum­varpi árs­ins 2018 er reiknað með að heild­­ar­fram­lög til hæl­­is­­mála verði um 2,7 millj­­arðar króna í ár, sem er helm­ingi lægri upp­­hæð en lægri mörk þess bils sem Ásmundur nefndi í grein sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár