Mynd: Arnar Þór

Sólveig Anna: „Þetta var ómögulegt verkefni“

Það fólk sem í morgun virt­ist lík­leg­ast til þess að standa í stafni Alþýðu­sam­bands Íslands næstu miss­erin til­kynnti flest í dag að þau væru hætt við fram­boð og véku af þingi sam­bands­ins. Kjarninn ræddi við Sólveigu Önnu Jóns­dóttur um ástæð­urnar fyrir því.

„Efling, Efling, Efling,“ hróp­uðu þing­full­trúar stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, er þau gengu saman fylktu liði úr fund­ar­sal Alþýðu­sam­bands Íslands á Hilton Nordica-hót­el­inu við Suð­ur­lands­braut fyrr í dag að baki Ragnari Þór Ing­ólfs­syni for­manni VR, sem gekk einna fyrstur út úr salnum, án þess að vilja ræða við fjöl­miðla.

Eftir í salnum sátu full­trúar fleiri sam­taka launa­fólks af land­inu öllu og sam­þykktu að fresta þingi ASÍ þar til í fyrra­málið. Hvað nákvæm­lega ger­ist þá er óráðið, en til stendur að kjósa nýja for­ystu Alþýðu­sam­bands­ins á morgun og enn er opið fyrir fram­boð. Sem stendur er Ólöf Helga Adolfs­dóttir rit­ari stjórnar Eflingar ein í fram­boði til emb­ættis for­seta.

Fyrir dag­inn í dag þótti næsta víst að Ragnar Þór yrði næsti for­seti Alþýðu­sam­bands­ins, en svo verður ekki. Í hópi þeirra tuga full­trúa sem skyndi­lega gengu af þing­inu á fjórða tím­anum í dag voru auk Ragnar Þórs þau Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og VLFA, sem fyrir dag­inn í dag þóttu lík­leg­ust til þess að verða 2. og 3. vara­for­seta sam­bands­ins.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gengur hér af þingi ASÍ í dag.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR gengur hér af þingi ASÍ í dag.

En þau Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vil­hjálmur verða ekki í fram­boði. Fyrstu fréttir af því bár­ust um kl. 15 í dag, kvis­uð­ust út úr þingsalnum á Nordica sem var harð­lok­aður fjöl­miðlum. Blaða­maður Kjarnans fór á stað­inn og náði tali af Sólveigu Önnu eftir að hún gekk úr salnum, ásamt félögum sínum.

Erf­ið­lega gekk að hefja sam­talið þar sem for­mað­ur­inn var sífellt að taka við faðm­lögum frá þing­full­trúum Eflingar, í and­dyri hót­els­ins og ráð­stefnu­mið­stöðv­ar­innar. „Þetta var rétt,“ sögðu mörg þeirra.

„Aldrei notið nokkurs sannmælist“ innan ASÍ

En hvað olli því að nákvæm­lega hvað var rétt? Blaða­maður spurði Sólveigu Önnu að því hver kveikjan hefði orðið að atburðum dags­ins og tók Sólveig fram að hún gæti ein­ungis svarað því fyrir sína félaga, í Eflingu.

Í sam­tali við blaða­mann sagði hún einnig að ræða þyrfti „á hinum stóra lýð­ræð­is­lega vett­vangi“ Eflingar hvort draga skyldi Eflingu frá þátt­töku í starfi Alþýðu­sam­bands Íslands og að það yrði „eflaust gert en hvenær og hvernig á enn eftir að koma í ljós.“ Þing­full­trúar Eflingar munu ekki taka frek­ari þátt í þingi ASÍ þetta árið.

„Við Efl­ing­ar­fólk átt­uðum okkur á því að þetta yrði ómögu­legt verk­efni, að vera áfram þarna inni á þessum vett­vangi,“ sagði Sólveig Anna og bætti því við Efl­ing­ar­fólk, undir hennar for­ystu, hefði „aldrei notið nokk­urs sann­mælis inni í þess­ari stóru hreyf­ingu“. Þrátt fyrir að hafa náð miklum árangri, í kjara­bar­áttu, skipu­lagn­ingu verk­falls­að­gerða og annarri starf­semi félags­ins, hefðu þau sem stjórna Eflingu verið „jað­ar­sett“ á vett­vangi ASÍ.

Nokkrir hlutir leiddu til þess að Efl­ing­ar­fólk taldi sig ekki lengur geta við unað á þingi ASÍ.

Sólveig Anna nefnir grein sem hópur for­ystu­fólks í verka­lýðs­fé­lögum fengu birta á Vísi í síð­ustu viku „þar sem ég er kölluð „ger­and­inn“ og Ragnari er lýst sem ein­hverjum ofstopa­manni og bara ein­hverjum hryll­ings­kóngi“.

Sagði Sólveig Anna þá blaða­grein hafa verið „mjög sterkt merki um það sem koma skyldi, þá orð­ræðu sem skuli fara í“ og nefnir til við­bótar atburð sem átti sér stað á þingi ASÍ í gær­morgun, þegar Ólöf Helga Adolfs­dóttir rit­ari Eflingar lagði fram til­lögu „í banda­lagi við for­menn innan ASÍ og stóran hóp frá ASÍ-Ung“ um að láta vísa öllum þing­full­trúum Eflingar af þing­inu.

Sólveig segir að þetta hafi Ólöf Helga gert, „leitt aðför“ gegn Efl­ing­ar­fólk­inu þrátt fyrir að hafa „fengið álits­gerð í hendur sem sýnir með mjög skýrum hætti að Efling hafi farið 100 pró­sent rétt að öllu“.

„Það er hrika­legt að sjá að hún er ekki þarna ein að verki, heldur er hún þarna í banda­lagi við fólk sem ætti að sjálf­sögðu vita betur en sýnir og sannar að það er til­búið að taka þátt í bók­staf­lega hverju sem er til að koma höggi á mig,“ segir Sólveig Anna.

Hún nefnir að þetta ger­ist þrátt fyrir að í síð­ustu viku hafi komið fram að Ólöf Helga og Agnieszka Eva, vara­for­maður Eflingar, hefðu fyrr á árinu fengið aðgang að tölvu­póst­fangi Sól­veigar Önnu hjá Eflingu, og með því stundað „póli­tískar njósnir“, að sögn Sól­veigar.

„Það er ekk­ert sem dugar og maður áttar sig á því, þegar maður horf­ist í augu við þetta, plús allt annað sem maður veit að er að innan vébanda Alþýðu­sam­bands­ins, að það er ekki nein mann­eskja með fullu með sem vill nota ork­una sína í þetta,“ segir Sólveig Anna.

„Það er aldrei að fara að skila neinu, það er alveg nákvæm­lega sama hvað við værum að fara að gera, það væri alveg sama hverju við værum að berj­ast fyrir, hvaða mál væru til umfjöll­unar, okkur yrði aldrei leyft að kom­ast áfram með það. Þetta yrði bara svona áfram, bara enda­lausar ásak­anir og sví­virð­ingar, und­ir­róð­urs­starf­semi, skemmd­ar­verk og svo fram­vegis,“ bætir hún við.

Sem áður segir gaf Ragnar Þór ekki kost á fjöl­miðla­við­tölum eftir að hann gekk úr þingsalnum á Nordica í dag.

„Ég svara auð­vitað ekki fyrir Ragnar en ég held að hann hafi þá sömu afstöðu og ég í þessu máli,“ sagði Sólveig Anna, spurð hvort hún teldi hans ástæður fyrir því að draga fram­boð sitt til baka af sama meiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár