Grísk stjórnvöld í vanda heima fyrir - þingmaður biður þjóðina afsökunar

Umbóta­á­ætlun grískra stjórn­valda verður send til Brussel fyrir lok dags­ins í dag, líkt og samið var um í sam­komu­lagi Grikk­lands við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn á föstu­dags­kvöld. Hún hefur ekki enn verið send þrátt fyrir sögu­sagnir um annað, og hún hefur ekki verið gerð opin­ber þrátt fyrir að upp­lýs­ingar hafi lekið út um inni­haldið. Samþykkt þess­arar áætl­unar er for­senda þess að sam­komu­lagið haldi næstu fjóra mán­uð­ina og Grikkir fái áfram aðstoð og forð­ist gjald­þrot.

Grikkir hyggj­ast afla fjár með því meðal ann­ars að ráð­ast til atlögu gegn spill­ingu og skattsvikum í land­inu, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem hafa lekið út um áætl­un­ina. Búist er við því að hægt verði að fá 2,5 millj­arða evra vegna ógreiddra skatta auð­jöfra, aðra 2,5 millj­arða evra vegna ógreiddra skatta ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og 2,3 millj­arða evra með því að ráð­ast gegn ólög­legu smygli á bens­íni og sígar­ettum, sam­kvæmt heim­ildum þýska blaðs­ins Bild.

@YanniKouts @tagesschau Our reform list is almost ready. But rumours that we have dispatched it alr­eady to the Commission are false.

— Yanis Varoufakis (@yanisvaroufakis) February 22, 2015

Lána­drottnar Grikkja þurfa að sam­þykkja áætlun þeirra til þess að Grikkir fái þá 7,2 millj­arða evra í fjár­hags­að­stoð sem um var samið. Rætt verður um áætl­un­ina á síma­fundi á morgun. Öll þjóð­þing þeirra átján ríkja sem mynda evru­svæðið með Grikkjum þurfa að sam­þykkja sam­komu­lagið til þess að það taki gildi. Ef ekki tekst að ganga frá fram­haldi aðstoðar við Grikki gætu þeir orðið uppi­skroppa með fé í mars, en þeir eiga að greiða Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum 1,5 millj­arð evra í næsta mán­uði.

Vandræði heima fyrir


Flestir stjórn­mála­skýrendur virð­ast sam­mála um að Grikkir hafi gefið veru­lega eftir í samn­inga­við­ræð­unum, og á end­anum sam­þykkt næstum því allar sömu aðhalds­að­gerðir og fyr­ir­renn­arar þeirra gerðu. Fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, Wolfgang Schaeuble, orð­aði það sem svo að Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra myndi eiga erfitt með að útskýra og rétt­læta sam­komu­lagið fyrir Grikkjum. Stjórn­völd í Grikk­landi höfðu jú sagt að þau myndu segja skilið við aðhalds­að­gerðir og við hina höt­uðu troiku, þrenn­ing­una Evr­ópu­sam­bandið, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn. Í nýja sam­komu­lag­inu eru þessar þrjár stofn­anir enn, þær heita bara stofn­an­irnar þrjár en ekki troika.

Meðlimir stjórn­ar­flokks­ins Syriza voru nokkuð þög­ulir um helg­ina en svo virð­ist sem óánægjan sé að koma upp á yfir­borðið, að sögn Guardian. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig í dag er Costas Lapa­vitsas, þing­maður Syriza og hag­fræði­pró­fessor. Hann sagði að þeir þing­menn sem voru kosnir á grund­velli lof­orða flokks­ins og þeir sem telji lof­orðin vera skuld­bind­andi gagn­vart grísku þjóð­inni séu mjög áhyggju­fullir. Það sé skylda þeirra að láta af því vita.

Manolis Glezos, gam­al­reyndur og virtur vinstri maður og Evr­ópu­þing­maður fyrir Syriza, var einn sá fyrsti til að gagn­rýna stjórn­völd fyrir sam­komu­lagið. „Ég bið grísku þjóð­ina að fyr­ir­gefa mér fyrir að hafa átt þátt í þess­ari blekk­ingu,“ sagði hann í grein um helg­ina. „Sumir segja að til þess að ná sam­komu­lagi verði að gefa eftir. Fyrir það fyrsta: það er aldrei hægt að ná fram mála­miðl­unum milli kúg­ara og þess kúg­aða. Milli þrælsins og her­náms­manns­ins er eina lausnin frelsi.“

"Enginn áróður eða hring­snún­ingur felur þá ein­földu stað­reynd að þeir lugu að borg­urum og seldu blekk­ingar,“ sagði svo leið­togi sós­í­alista­flokks­ins PASOK, Evang­elos Venizelos. Hann var í síð­ustu rík­is­stjórn lands­ins sem vara­for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár