Boða að malbiki verði flett upp í Reykjavík í nýrri loftslagsstefnu

Á meðal aðgerða sem lagðar eru fram í drögum að nýrri lofts­lags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar er að mal­biki verði flett upp og bíla­stæðum í borg­ar­landi fækkað um 2 pró­sent á ári. Sam­göngur eru lang­veiga­mesti þátt­ur­inn í kolefn­islosun borg­ar­innar.

Drög að nýrri loftslagsáætlun Reykjavíkurborgar hafa verið kynnt.
Drög að nýrri lofts­lags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar hafa verið kynnt. Mynd: Bára Huld Beck

Drög að nýrri lofts­lags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar, sem gilda á frá 2021 til 2025, hafa verið lögð fram til kynn­ingar. Í áætl­un­inni eru þau mark­mið sem borgin setti sér í fyrri lofts­lags­á­ætlun sem gilti frá 2016 til 2020 end­ur­skoðuð og aðgerða­á­ætlun, sem hefur það að mark­miði að Reykja­vík­ur­borg verði orðin kolefn­is­hlut­laus árið 2040, upp­færð.

„Aðgerða­á­ætl­unin 2021–2025 end­ur­speglar þá víð­tæku nálgun og breidd verk­efna sem þarf til að umbreyt­ing eigi sér stað í átt að kolefn­is­lausu sam­fé­lagi,“ segir í drögum að þessu stefnu­mót­un­arplaggi borg­ar­innar, sem umhverfis- og heil­brigð­is­ráð tók fyrir á fundi 8. jan­úar.

Þrír borg­ar­full­trúar voru í stýri­hópi um end­ur­skoðun lofts­lags­stefn­unnar, þær Líf Magneu­dóttir frá Vinstri grænum, Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir frá Pírötum og Vigdís Hauks­dóttir frá Mið­flokknum. Vigdís sat hjá við afgreiðslu drag­anna út úr stýri­hópnum, sam­kvæmt því sem fram kemur í fund­ar­gerð.

Hugmyndir frá almenningi og grasrótarsamtökum

Fram kemur í skýrslu­drög­unum að í lok árs 2019 hafi verið óskað eftir hug­myndum frá almenn­ingi og fag­sam­tökum um aðgerðir í lofts­lags­málum og að yfir 200 hug­myndir hafi borist. Farið var yfir þessar hug­myndir og hægt var að draga átta áherslu­at­riði út úr þeim. Þau má sjá hér að neðan:

  1. Draga úr bíla­um­ferð – hvatn­inga­kerfi / raf­bíla deili­hag­kerfi.
  2. Betra skipu­lag á strætó­kerf­inu, fleiri leiðir og vagna, frítt í strætó.
  3. Gera upp­græðslu að virku skóla­starfi.
  4. Auka mat­ar­fram­boð í mötu­neytum sem er laust við dýra­af­urðir.
  5. Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­ur­inn gerður að nútíma­legu og snjöllu fræðslu og vís­inda­setri.
  6. Setja skýr­ari reglur og sam­ræma flokk­un­ar­kerfið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.
  7. Hug­myndir hringrás­ar­hag­kerfis verði hluti af öllum útboðum í fram­kvæmdir borg­ar­innar.
  8. Tengja afslátt við gjöld nýbygg­inga ef vist­vænar aðferðir eru not­aðar, afsláttur veittur eftir loka­út­tekt.

Samgöngur vega langþyngst í losun Reykjavíkurborgar

Eins og sést af list­anum hér að ofan eru sam­göngu­mál efst á blaði. Minni og vist­væn­ari bíla­um­ferð og betri almenn­ings­sam­göngur. Losun frá sam­göngum er líka langstærsta hlut­fallið af land­fræði­legri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í Reykja­vík­ur­borg, óhað því hvaða opin­beru reikni­reglum og aðferða­fræði er beitt eins og fram kemur í skýrslu­drög­unum:

„Ef ein­göngu er horft til ein­falds kolefn­is­spors eru sam­göngur 82% allrar los­unar. Þegar fleiri þáttum er bætt í svæð­is­bundið kolefn­is­spor auk virð­is­keðju er hlut­fallið 64%. Þegar önnur áhrif eru tekin inn (Svæð­is­bundið kolefn­is­spor auk virð­is­keðju og áhrif ann­arrar starf­semi innan borg­ar­marka) er hlut­fallið 54% af allri losun,“ segir í drög­unum.

Það eru því sam­göngu­málin sem eru lyk­ill­inn að því að borg­inni tak­ist að minnka losun í takt við mark­mið sín um að vera orðin kolefn­is­hlut­laus árið 2040 og helm­inga losun miðað við árið 2019 árið 2030.

„Til þess að draga úr losun frá vega­sam­göngum þarf að fækka eknum kíló­metrum og draga úr losun á hvern ekin kíló­metra. Markmið Reykja­vík­ur­borgar er að árið 2030 hafi hlut­fall ferða sem farnar eru á bíl lækkað í 58% úr 73% sem það var sam­kvæmt ferða­venjukönnun árið 2017,“ segir í skýrslu­drög­unum.

Fækka bílastæðum og fletta upp malbiki

Þegar litið er yfir lista um þær aðgerðir sem að ráð­ast til að ná fram breyt­ingum hvað varðar losun frá sam­göngum kennir ýmissa grasa. Til þess að skapa göngu­væna borg er meðal ann­ars lagt til að haldið verði áfram að þétta byggð, þannig að árið 2025 búi 90 pró­sent íbúa borg­ar­innar í grennd við þjón­ustu.

Einnig er lagt til að ráð­ist verði í að auka pláss fyrir gang­andi. Til þess að gera það, segir í stefnu­drög­unum, er meðal ann­ars lagt til að bíla­stæðum í borg­ar­land­inu verði fækkað um 2 pró­sent á ári. Önnur aðgerð með sama mark­mið er sú að „fletta upp mal­biki og draga úr umfangi akvega“ í Reykja­vík­ur­borg, þannig að umfang akvega verði orðið 35 pró­sent af land­notkun árið 2025.

Í plaggi borg­ar­innar sem gefið var út í fyrir um það bil ára­tug í tengslum við aðal­skipu­lags­vinnu AR2010-2030 kom fram að allt að 48 pró­sent af þétt­býli borg­ar­innar, að und­an­skildum stærri úti­vist­ar­svæð­unum, færi undir sam­göngu­mann­virki og helg­un­ar­svæði þeirra, eða nærri helm­ingur alls borg­ar­lands­ins.

Áratugur aðgerða

Í skýrslu­drög­unum sem eru til kynn­ingar núna í upp­hafi árs segir að kom­andi ára­tugur verði „mik­il­vægur próf­steinn á það hvernig okkur tekst til við að takast á við lofslags­vána“ og þurfi að vera ára­tugur aðgerða.

Drögin eru nú til kynn­ingar og reikna má með að þau taki breyt­ingum í ljósi athuga­semda sem kunna að ber­ast. Hægt er að koma umsögnum og ábend­ingum um drögin á fram­færi við umhverfis- og skipu­lags­svið borg­ar­innar til 22. jan­úar.

Gagnrýni á drögin að þess­ari lofts­lags­á­ætlun hefur þegar komið fram, en í sam­eig­in­legri bókun full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks á fundi umhverfis- og heil­brigð­is­ráðs sagði að „margt ágætt“ væri að finna í drög­unum.

„Hins vegar er áhyggju­efni að fyrstu drög ganga gegn sam­göngusátt­mála sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þar er mark­miðið skýrt: „Að stuðla að greiðum, skil­virkum, hag­kvæmum og öruggum sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með jafnri upp­bygg­ingu inn­viða allra sam­göngu­máta“,“ sagði í bókun þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár