Samherji Holding hefur enn ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2019

Hálfu ári eftir að lög­boð­inn frestur til að skila inn árs­reikn­ingum rann út þá hefur félagið sem heldur utan um erlenda starf­semi Samherja, meðal ann­ars allt sem snýr að Namib­íu­um­svifum þess, ekki skilað inn sínum fyrir árið 2019.

Samherji Holding ehf., sá hluti sam­stæðu Samherja sem heldur utan um erlenda hluta hennar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2019 þrátt fyrir að febr­úar 2021 sé nú nán­ast á enda.

Samkvæmt lögum skal skila árs­reikn­ingi, til opin­berrar birt­ingar, til árs­reikn­inga­skrár í sein­asta lagi 31. ágúst ár hvert fyrir árið á undan óháð því hvort félag telj­ist hafa verið í starf­semi eða ekki. Sé árs­reikn­ingi ekki skilað á að sekta félög vegna van­skila á árs­reikn­ingi til árs­reikn­inga­skrár. Nú er hálft ár síðan að lög­boð­inn frestur rann út til að skila inn árs­reikn­ingum vegna rekstr­ar­árs­ins 2019.

Kjarninn spurð­ist fyrir um ástæður þess að tafir höfðu verið að skilum á árs­reikn­ingi Samherja Holding hjá félag­inu í byrjun árs. Sú fyr­ir­spurn var send á Margréti Ólafs­dóttur, aðstoð­ar­konu for­stjóra félags­ins, og Björgólf Jóhanns­son, sem þá var annar for­stjóra þess ásamt Þor­steini Má Bald­vins­syni. Björgólfur lét af störfum sem for­stjóri fyrr í þessum mán­uði og hefur Þor­steinn Már haldið einn um for­stjórataumanna síðan þá, líkt og hann gerði áður en Björgólfur kom til starfa síðla árs 2019.

Í svari Samherja, sem barst 7, jan­úar 2021, sagði að enn væri unnið að gerð árs­reikn­ings fyrir Samherja Holding, og að sú vinna hefði taf­ist af ýmsum ástæðum. „Það eru ákveðnar og skýrar reglur um það þegar árs­reikn­ingum er ekki skilað á til­ætl­uðum tíma. Frestur á skilum árs­reikn­inga hluta­fé­laga var fram­lengdur til byrjun októ­ber 2020 fyrir öll hluta­fé­lög. Árs­reikn­ingi 2019 fyrir Samherja Holding ehf. verður skilað þegar hann er til­bú­inn, sem verður innan ekki langs tíma.“

Samherji Holding skil­aði árs­reikn­ingi sínum fyrir árið 2018 inn til árs­reikn­inga­skrár fyrir lok ágúst­mán­aðar 2019. Það hefur aldrei gerst síðan að félagið var stofnað, árið 2012, að árs­reikn­ingi þess hafi ekki verið skilað innan rúm­lega ell­efu mán­aða frá því að upp­gjörsári laun, þar til nú.

Skipt upp í tvo hluta

Hlut­hafa­fundir Sam­herja sam­þykkti 11. maí 2018 að Sam­herj­a­sam­stæð­unni yrð­i s­kipt upp í tvennt. Skipt­ingin var látin miða við 30. sept­em­ber 2017.

Eftir það er inn­­­lendu starf­­sem­in og starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­sem­i og hluti af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­ur­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­fest­inga­­fé­lagi á Ísland­i. Þar eru þó einnig íslenskir hags­munir, meðal ann­ars 27,36 pró­sent hlutur í Eimskip. Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, hafi verið falið að leiða útgerð­ar­starf­semi Samherja í Evrópu, sem fer fram í gegnum Samherja Holding.

Um mitt ár í fyrra var til­kynnt að stærstu eig­endur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, Þor­steinn Már, Helga S. Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, og útgerð­ar­stjór­inn Kristján Már Vil­helms­son, hefðu fram­selt hluti sína í Samherja hf. að mestu til barna sinna.

Gömlu eigendurnir eiga áfram Samherja Holding

Þor­steinn Már, Kristján og Helga eiga áfram eiga uppi­stöð­una í hinum hluta starf­sem­innar, Samherja Holding.

Inni í þeim hluta er líka fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­ur­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­festi á Kýp­ur. Þau félög héldu meðal ann­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­íu, þar sem sam­stæðan og stjórn­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta.

Auk þess er uppi grun­ur, eftir ítar­lega opin­berum Kveiks og Stund­ar­innar í nóv­em­ber í fyrra, um að Sam­herji hafi stundað umfangs­mikla skatta­snið­göngu í gegnum Kýpur og aflands­fé­lög og pen­inga­þvætti á fjár­magni sem end­aði inn á reikn­ingum norska bank­ans DNB. Þessi mál eru til rann­sóknar í Namibíu, á Íslandi og hjá fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Noregi. Engin nið­ur­staða liggur fyrir úr þeim rann­sóknum en fjöldi áhrifa­manna í Namibíu hafa verið haldi þar mán­uðum saman vegna máls­ins og þeim verið birt ákæra, meðal ann­ars fyrir spill­ingu.

Skiptu um endurskoðendur

KPMG var end­ur­skoð­andi Samherja Holding árum saman, og raunar Sam­herj­a­sam­stæð­unnar allrar. Í fyrra­haust var greint frá því að Samherji hefði ákveðið að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki og fara með við­skipti sín til BDO ehf., lítt þekkts end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækis. Stundin fjall­aði um þessi vista­skipti í lok októ­ber og byrjun nóv­em­ber í fyrra.

Kjarninn greindi frá því í byrjun febr­úar 2021 að KPMG hafi verið gert að láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Sam­herja á árunum 2013 og 2014.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð sinn um þetta í byrjun des­em­ber. Dóm­ur­inn féllst á kröfur hér­aðs­sak­sókn­ara um að KPMG yrði skyldað til að láta gögnin af hendi og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum félags­ins yrði sömu­leiðis gert skylt að veita emb­ætt­inu þær upp­lýs­ingar sem þeir búa yfir.

Stjórn­endur Samherja voru ekki ánægðir með þessa nið­ur­stöðu og sögðu vinnu­brögð sak­sókn­ara og hér­aðs­dóm­ara í mál­inu vera „ótrú­leg“.

Fyr­ir­tækið sagði í yfir­lýs­ingu að með úrskurð­inum hafi ekki ein­ungis lög­bund­inni þagn­ar­skyldu verið aflétt af end­ur­skoð­endum KPMG, heldur einnig rof­inn trún­aður lög­manna, enda hafi gögn sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fékk með úrskurð­inum ver­ið „í vörslum bæði end­ur­skoð­enda og lög­manna hjá KPMG og dótt­ur­fé­lög­um.“

Í kjöl­farið kærði KPMG, dótt­ur­fé­lag þess og end­ur­skoð­andi Samherja sem starfar hjá KPMG úrskurð­inn til Lands­réttar sem féllst á aðfinnslur þeirra í lið­inni viku, ógilti úrskurð­inn og vís­aði mál­inu aftur heim í hérað.

Lands­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í úrskurði sínum að sú máls­með­ferð hér­aðs­dóms að boða ekki sókn­ar­að­ila til þing­halds hefði verið í and­stöðu við fyr­ir­mæli laga um að sá sem geri kröfu um rann­sókn­ar­að­gerð skuli boð­aður til þing­halds­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár