Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki núll stig fyrir markmið sín um að hætta að brenna olíu

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki fengið stig í mati Ungra umhverf­is­sinna fyrir að stefna að því að hætta að brenna olíu fyrst þjóða.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins í forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í for­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var snöggur að eyða umræðu um slaka ein­kunn sem flokk­ur­inn fékk fyrir lofts­lags- og umhverf­is­stefnu sína í síð­ustu viku, er frétta­menn Rík­is­út­varps­ins spurðu hann út í málið í þætt­inum For­ystu­sæt­inu í gær­kvöldi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk alls 21 stig af 100 mögu­legum í þessu mati, Sólinni, sem var á vegum Ungra umhverf­is­sinna og fram­kvæmt af þremur fram­halds­nemum í umhverfis- og auð­linda­fræði út frá þeim stefnum flokk­anna í umhverfis- og lofts­lags­málum sem lagðar höfðu verið fram í síð­ustu viku.

Stjórn­mála­flokk­arnir fengu matskvarð­ann, sem settur var saman út frá til­lögum með­lima Ungra umhverf­is­sinna í nánu sam­starfi við stjórn sam­tak­anna og fjölda óháðra sér­fræð­inga, afhentan í vor. Síðan þá hafa full­trúar allra flokka fundað með Ungum umhverf­isinnum vegna þessa verk­efnis.

„Gætt var að því að hver sá aðili sem að vinn­unni kæmi væri ekki með tengsl innan stjórn­mála­flokk­anna og var fyllsta hlut­leysis gætt við þróun kvarð­ans sem og við ein­kunna­gjöf­ina. Nöfn flokka voru afmáð áður en stefna þeirra var metin og gætt að sam­ræmi í ein­kunna­gjöf með því að láta ólíkt mats­fólk fara yfir og reikna fylgni milli svara þeirra, þ.e. áreið­an­leika mats­ins,“ segir í umfjöllun um aðferða­fræð­ina á vef verk­efn­is­ins, þar sem hægt er að kynna sér kvarð­ann og for­sendur mats­ins.

Hnýtti í mælikvarðann

Í við­tal­inu á RÚV í gær­kvöldi var Bjarni spurður um það hvort stefna flokks hans í þessum málum væri nógu metn­að­ar­full í ljósi útkom­unnar á kvarða Ungra umhverf­is­sinna.

Í svari sínu hnýtti Bjarni í matskvarða Ungra umhverf­is­sinna, gaf í skyn að for­sendur mats­ins væru ekki góðar og full­yrti að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði ekki fengið stig fyrir að hafa það mark­mið að Ísland yrði fyrsta land í heimi til að hætta að brenna olíu.

„Kannski fyrst varð­andi svona ein­kunna­gjöf, tökum dæmi úr þess­ari ein­kunna­gjöf: Við [Sjálf­stæð­is­menn] segjum, „við skulum vera fyrst í heimi til að hætta að brenna olíu, Íslend­ingar.“ Það fær núll stig í þess­ari ein­kunna­gjöf vegna þess að við höfum ekki sett tölu­sett mark­mið. Ég held að þessi ein­kunna­gjöf sé bara jafn góð og for­send­urnar henni að baki,“ sagði Bjarni og minnt­ist síðan ekki einu orði í við­bót á matskvarð­ann í svari sínu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk þó sann­ar­lega eitt stig af þeim 21 sem skil­uðu sér í hús hjá flokknum í stiga­gjöf­inni, fyrir einmitt það atriði að hafa í sinni stefnu mark­mið um jarð­efna­elds­neyt­is­laust Ísland fyrir 2050.

Bjarni virðist hafa farið dálkavillt

Tinna Hall­gríms­dóttir, for­maður Ungra umhverf­is­sinna, segir við Kjarnann að Ungir umhverf­is­sinnar hafi tekið eftir þessum ummælum Bjarna og hnotið um þau, rétt eins og Stað­reynda­vakt Kjarnans.

[adspot]

„Bjarni Bene­dikts­son virð­ist hafa farið eitt­hvað dálka­villt í kvarð­anum okkar áður en hann full­yrti For­ystu­sæt­inu á RÚV að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki fengið stig fyrir mark­mið sitt um að Ísland verði jarð­efna­elds­neyt­is­laust fyrst allra þjóða, en flokk­ur­inn fékk vissu­lega fullt hús stiga fyrir það stefnu­mál,“ segir Tinna við Kjarnann.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Það er nið­ur­staða Stað­reynda­vaktar Kjarnans að Bjarni Bene­dikts­son hafi farið með fleipur í For­ystu­sæt­inu á RÚV, er hann ræddi um ein­kunna­gjöf­ina sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk fyrir mark­mið sín um að Ísland hætti brennslu olíu fyrr en nokkur önnur þjóð.

Það áherslu­mál var, þvert á það sem Bjarni sagði, eitt af þeim atriðum sem stefna flokks­ins fékk stig fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár