Um 60 prósent farþega frá 15. júní búsettir í öruggum löndum

Sótt­varna­læknir gerir ráð fyrir því að fjölda­tak­mark­anir verði rýmkaðar fyrri hluta ágúst sem og opn­un­ar­tími veit­inga- og skemmti­staða.

Þeir Rögnvaldur, Þórólfur og Páll á upplýsingafundi Almannavarna í dag.
Þeir Rögn­valdur, Þórólfur og Páll á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag. Mynd: Lögreglan

Sex þeirra sem greinst hafa með virk smit eftir skimun við kom­una til lands­ins eru búsettir á Íslandi. Samtals hafa 14 greinst með virk smit við kom­una til lands­ins frá 15. júní. Tveir smit­aðir ein­stak­lingar eru búsettir í Danmörku, tveir í Banda­ríkj­unum og einn ein­stak­lingur frá eft­ir­far­andi löndum: Lúx­em­borg, Albaníu, Svíþjóð og Póllandi.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir greindi frá þessu á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna fyrr í dag. Á fund­inum sagð­ist hann ætla að mæla fyrir því að fjölda­tak­mark­anir verði rýmkaðar í upp­hafi ágúst, þó ekki fyrr en eftir versl­un­ar­manna­helgi.

„Í ljósi þess að það hefur verið lítið eða ekk­ert smit sem hefur greinst und­an­farnar tvær vikur hér inn­an­lands held ég að hægt sé að mæla fyrir rýmkun á fjölda­tak­mörk­unum fyrr en ég tal­aði um,“ sagði Þórólfur. Líklega muni hann mæla með því að hámarkið verði rýmkað upp í þús­und manna hámark. Þá sagði hann að sama gilti um opnun veit­inga og skemmti­staða, lík­lega væri hægt að rýmka opn­un­ar­tíma í byrjun ágúst.

20 prósent farþega eru Danir

Meðal tölu­legra gagna sem Þórólfur fór yfir á fund­inum var komur far­þega frá löndum sem talin eru örugg. Hann sagði að af þeim 53 þús­und far­þegum sem hingað hafi komið frá 15. júní væru 20 pró­sent búsettir í Danmörku, 18 pró­sent í Þýska­landi, 15 pró­sent á Íslandi og sex pró­sent í Noregi. Alls eru því um 60 pró­sent af far­þegum sem hingað koma búsettir á öruggum svæðum og því und­an­þegnir skimun eða sótt­kví miðað við núgild­andi verk­lag. Inni í þessum tölum eru ekki far­þegar sem búsettur eru í hinum öruggu lönd­unum; Finn­landi, Færeyjum og Græn­landi.

Hann benti auk þess á að Ísland flokk­ist strangt til tekið til öruggra landa. Þannig að þeir Íslend­ingar sem ferð­ast erlendis þurfa ekki að fara í skimun við heim­komu hafi ferða­lagið verið bundið við þá staði sem taldir eru öruggir.

Biðlar til fólks að fara varlega um verslunarmannahelgi

Í upp­hafi fundar hrós­aði Rögn­valdur Ólafsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, þeim aðilum sem hafa þurft að taka erf­iðar ákvarð­anir vegna stórra við­burða sem nú hefur verið aflýst. Í því sam­hengi nefndi hann Dal­vík­inga sem hafa ákveðið að aflýsa Fiskideg­inum mikla sem og Vest­mann­ey­ingum sem hafa ákveðið að aflýsa Þjóð­há­tíð. „Svona ábyrg afstaða hjálpar okkur öllum þegar upp er staðið,“ sagði Rögn­valdur.

Rögn­valdur biðl­aði einnig til fólks um að taka ábyrga afstöðu og sýna ábyrga hegðun um versl­un­ar­manna­helgi. „Það er alveg ljóst að mjög margir vilja skemmta sér eins og þau hafa gert í gegnum tíð­ina með til­heyr­andi úti­legu og gleði. En við viljum endi­lega hvetja fólk til að fara mjög var­lega og huga að þessum mark­miðum sem að eru á bak við þessar tak­mark­anir sem eru í gildi og til­gang þeirra.“

Nýtt fyrirkomulag á Keflavíkurflugvelli fer vel af stað

Páll Þór­halls­son, verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sagði breytt fyr­ir­komu­lag á Kefla­vík­ur­flug­velli ganga vel. Það þarf að fara í gegnum far­þega­hóp­inn og fara yfir hvort að und­an­þágur eigi við um til­tekna far­þega, enda geta far­þegar í flugi frá Þýska­landi verið að koma frá lönd­unum í kring, til dæmis nefndi hann Aust­ur­ríki og Sviss.

Þá sagði Páll ein­hverja far­þega sem ekki þyrftu að fara í sýna­töku hafa for­skráð sig og borgað fyrir sýna­töku en hann tók það fram að auð­velt væri að end­ur­greiða þeim sem ekki þurfa á sýna­töku að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár