Hillary Clinton, forsetaframbjóðandi Demókrata, mælist nú með aukið forskot á Donald Trump, forsetaframbjóðanda Repúblikana. Vefurinn Five Thirty Eight birtir uppfærða spá, sem byggir á upplýsingum úr skoðanakönnunum vítt og breitt frá ríkjum Bandaríkjanna, og telur hann nú að 69,2 prósent líkur séu á því að Hillary sigri í forsetakosningunum 8. nóvember.
Trump hefur átt í vök að verjast að undanförnu eftir fyrstu kappræður þeirra tveggja í sjónvarpi, en tvær kappræður eru ennþá eftir fram að kosningum. Áhorf á fyrstu kappræðurnar var mikið, en talið er að 100 milljónir manna í Bandaríkjunum hafi horft á þær, og augu umheimsins verið á þeim sömuleiðis.
Trump hefur verið harðlega gagnrýndur eftir kappræðurnar, og hafa skoðanakannanir sýnt að hann þurfi á hálfgerðu kraftaverki að halda til að ná sigri, eins og mál standa nú.
Kjarninn heldur úti vikulegum hlaðvarpsþætti, Kanavarpinu, þar sem kafað er ofan í helstu deilumálunum í kosningunum. Umsjónarmenn eru Hjalti Geir erlendsson, lögfræðingur og LLM frá Columbia í New York, og Hallgrímur Oddsson, hagfræðingur og blaðamaður.
Töluverður vindur hefur farið úr seglum Trump, en áður en kappræðurnar hófust sýndu kannanir að líkurnar væru 52 prósent á sigri Hillary, en 48 prósent á sigri Trump.
Endaspretturinn í baráttunni er nú farinn af stað, og má búast við fjörugum rúmlega fjórum vikum sem frambjóðendur hafa til að stilla saman strengi og safna liði.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir