Fordæmalaus sigur Macron í frönskum stjórnmálum

Kosn­inga­banda­lag nýkjör­ins for­seta Frakk­lands hafði stór­sigur í frönsku þing­kosn­ing­unum í gær. Dræm kjör­sókn flækir málin fyrir 60% þing­meiri­hluta.

Macron, nýkjörinn forseti Frakklands, hlaut stóran sigur í þingkosningunum um helgina. Kosningabandalag hans hlaut 60 prósent þingsæta.
Macron, nýkjör­inn for­seti Frakk­lands, hlaut stóran sigur í þing­kosn­ing­unum um helg­ina. Kosn­inga­banda­lag hans hlaut 60 pró­sent þing­sæta. Mynd: EPA

Emmanuel Macron hefur tek­ist að umbreyta frönskum stjórn­málum á ótrú­lega skömmum tíma. Eftir að hafa náð kjöri sem for­seti Frakk­lands – unnið þar popúlista­öfl og steypt hefð­bundnu flokk­unum í kaos – bauð flokkur hans fram í þing­kosn­ing­unum sem lauk í gær.

[links]Kosn­inga­banda­lag flokks hans, En Marche!, og Lýð­ræð­is­hreyf­ing­ar­innar (f. Mouvement Democrate) tryggði sér 350 þing­sæti af 577 á franska þing­inu í kosn­ing­unum. Það þýðir að nýkjör­inn for­seti hefur 60 pró­sent þing­meiri­hluta yfir að ráða. Hann og sam­flokks­fólk hans hefur þess vegna frjálst umboð til þess að koma lof­orðum sínum í fram­kvæmd.

Macron hefur til dæmis lofað að bylta verka­manna­lögum í Frakk­landi, taka atvinnu­leys­is­bóta­kerfið í gegn auk þess að breyta líf­eyr­is­kerf­inu.

Það sem skyggði hins vegar á glæsi­legan sigur Macrons var ofboðs­lega dræm kosn­inga­þátt­taka. Aðeins 43 pró­sent kjör­gengra tóku þátt í kosn­ing­unum. Í fátæk­ustu kjör­dæmum Frakk­lands skil­uðu mun fleiri auðum seðlum en ann­ars staðar, sem hefur vakið spurn­ingar um félags­legan ójöfnuð á nýjan leik.

Kosn­ing­arnar marka hins vegar nokkur tíma­mót í frönskum stjórn­málum fyrir margar sakir.

[adspot]

Nýr flokkur á þingi með meirihluta

Flokkur Macrons, La République en Marche (í laus­legri íslenskri þýð­ingu: „Lýðveldi á hreyf­ingu“, oft­ast kall­aður En Marche), kom nýr inn á franska þingið í kosn­ing­unum og hlaut 308 þing­sæti og hefur einn og sér 53,38 pró­sent allra þing­sæta.

Fyrir kosn­ing­arnar mynd­aði flokk­ur­inn kosn­inga­banda­lag með Lýð­ræð­is­hreyf­ing­unni sem fékk 42 full­trúa kjörna. Sam­an­lagður þing­styrkur kosn­inga­banda­lags Emmanuel Macron er þess vegna 350 sæti, rétt rúm­lega 60 pró­sent.

Næst stærsti flokk­ur­inn er rót­gróni hægri­flokk­ur­inn Les Républicains sem hlaut 113 þing­menn. Sá flokkur, sem hét þá Union pour un mouvement popularaire, hafði meiri­hluta á þingi fyrir kosn­ing­arnar. Hægri­flokk­ur­inn er rót­gró­inn í frönskum stjórn­málum og úr hans röðum hafa margir for­setar og for­sæt­is­ráð­herrar komið.

Það sama gildir um Sós­í­alista­flokk­inn, rót­gróna flokk­inn á vinstri væng franskra stjórn­mála. Sós­í­alistar biðu afhroð í þing­kosn­ing­unum um helg­ina og fengu aðeins 30 þing­sæti. Sá flokkur hafði hins vegar 186 sæti fyrir kosn­ing­arnar og stjórn­aði for­seta­emb­ætt­inu með Francois Hollande.

Þjóð­fylk­ingin (f. Front National), þjóð­ern­is­flokkur Marine Le Pen, hlaut átta þing­sæti í kosn­ing­unum og bætti við sig sex sætum síðan fyrir fimm árum. Þjóð­fylk­ingin er jafn­framt minnsti flokk­ur­inn á þing­inu. Le Pen tekur sæti á þingi í fyrsta sinn eftir að hafa reynt fjórum sinnum að vinna sætið í Pas-de-Calais, kola­námu­hér­aði nyrst í Frakk­landi.

Hvaðan fékk Macron stuðning?

Flokkur Macrons hlaut þing­sæti í kjör­dæmum vítt og breitt um Frakk­land. Kosn­inga­spár gerðu hins vegar ráð fyrir að flokk­ur­inn fengi enn fleiri þing­sæti en komu upp úr kjör­köss­unum.

Vestur-Frakk­land gaf Macron sér­stak­lega mörg þing­sæti eins og stærstu borgir Frakk­lands. Flokkur Macrons fékk góða kosn­ingu í París, Nantes og Toulouse. Kjós­endur erlendis höfðu einnig mestar mætur á En Marche.

Hægri­flokk­ur­inn Les Républicains hlaut góða kosn­ingu í norð­aust­an­verðu og aust­an­verðu Frakk­landi.

Hvað ætlar Macron að gera?

For­sæt­is­ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Emmanuel Macron, Edouard Philippe, lét hafa eftir sér þegar úrslitin væru ljós að franska þjóðin hefði sýnt að hún kýs „von fram yfir reiði“ og „bjart­sýni yfir böl­sýni“. Philippe mun biðj­ast lausnar fyrir ráðu­neyti sitt í dag og Macron mun svo skipa nýtt ráðu­neyti á næstu dögum. Líklegt þykir að Philippe verði áfram for­sæt­is­ráð­herra.

Christophe Castaner, tals­maður rík­is­stjórn­ar­innar og nýkjör­inn þing­maður, sagði fjöl­miðlum að „franska þjóðin hefur gefið okkur skýran meiri­hluta, en hún hefur ekki viljað gefa okkur lausan taum­inn. Því fylgir ábyrgð. Hinn raun­veru­legi sigur verður eftir fimm ár þegar hlut­irnir hafa raun­veru­lega breyst“.

Í kosn­inga­bar­áttu sinni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í vor hét Macron því að ráð­ist yrði í breyt­ingar á grunn­kerfi franskra stjórn­mála. Hann hygg­ist breyta atvinnu­lög­gjöf­inni áður en hann ræðst á fyr­ir­ferða­mikið líf­eyr­is­kerfið á næsta ári.

Hann ætlar að lækka fyr­ir­tækja­skatta úr 33% í 25% og fjár­festa 50 millj­örðum evra úr almanna­sjóðum í orku­inn­viði, starfs- og iðn­þjálfun Frakka og sam­göngu­inn­viði.

Macron þarf hins vegar einnig að huga að rekstr­ar­halla franska rík­is­sjóðs­ins. Seðla­banki Frakk­lands spáir því að tekju­hall­inn fari enn og aftur fram úr þriggja pró­senta hámark­inu sem Evr­ópu­sam­bandið setur á aðild­ar­ríki sín.

Dræm kjör­sókn gerir það flókn­ara fyrir Macron að fylgja stefnu­málum sínum. Hann mun þurfa að stíga var­lega til jarðar í end­ur­bótum á rót­grónum kerfum. Í Frakk­landi eru mörg dæmi um að fjölda­mót­mæli hafi leitt til þess að stjórn­völd þynni út nýja og rót­tæka lög­gjöf.

75 prósent nýir þingmenn

Í þessum kosn­ingum til lög­gjaf­ar­valds­ins í Frakk­landi varð gríð­ar­lega mikil end­ur­nýjun á þing­inu. 75 pró­sent kjör­inna full­trúa taka þar sæti í fyrsta sinn eftir kosn­ing­arnar.

Þetta er nýtt met í frönskum stjórn­málum, sam­kvæmt franska dag­blað­inu Le Monde. Af þeim 577 full­trúum sem kjörnir voru í kosn­ing­unum um helg­ina, voru 432 ekki í kjöri árið 2012. Það þýðir að aðeins 145 þing­menn voru end­ur­kjörnir. Í kosn­ing­unum 2012 var end­ur­nýj­unin aðeins 40 pró­sent og árið 2007 var hún enn minni, eða 25 pró­sent.

Til sam­an­burðar má rifja upp Alþing­is­kosn­ing­arnar hér á landi síð­ast­liðið haust þegar met­fjöldi nýrra þing­manna tók sæti á þingi. Af 63 þing­mönnum náðu 32 full­trúar kjöri sem aldrei höfðu tekið sæti áður. Það er rétt rúm­lega helm­ingur þing­manna, um 51 pró­sent.

Aldrei fleiri konur

Aldrei hafa fleiri konur tekið sæti á franska þing­inu. Nú eru þær 223 eða 38,65 pró­sent þing­manna. Flestir kven­kyns full­trúar koma úr röðum miðju­flokka og vinstri­flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár