Flokkur Macron stærstur

Stjórn­mála­flokkur Emmanuel Macron, La République en Marche, náði mestum fjölda atvkæða í kosn­ingum til neðri deildar þings­ins í Frakk­landi í gær.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands
Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands Mynd: EPA

Stjór­mála­flokkur Emmanuel Macron, for­seta Frakk­lands, vann stór­sigur í fyrri umferð þing­kosn­inga í gær. Sós­í­alista­flokkur fyrr­ver­andi for­seta beið sögu­legt afhroð.

Þegar 97 pró­sent atkvæða voru talin úr öllum umdæmum leit út fyrir að fram­bjóð­endur fyrir flokk Macrons, La République en Marche, myndi ná 28 pró­sent atkvæða í neðri deild þings­ins, sem myndi gera hann að stærsta stjórn­mála­flokki Frakk­lands. Ef sú er raunin er for­set­inn í sterkri stöðu til að koma frjáls­lyndum kosn­inga­lof­orð­unum sínum í gegnum þingið.

[adspot]End­an­legar nið­ur­stöður um þing­sæta­skipan liggja hins vegar ekki fyrir þar sem kjósa þarf aftur næsta sunnu­dag vegna óaf­ger­andi nið­ur­staðna. Samkvæmt frönsku kosn­inga­kerfi þurfa fram­bjóð­endur að fá bæði hreinan meiri­hluta atkvæða og og 25% atkvæða á kjör­skrá, en fáir náðu þeim þrös­k­uldi í gær. Ekki er öruggt að flokkur Macron nái að vinna í seinni umferð, en árin 1974, 1981 og 1995 þurftu sig­ur­veg­arar fyrri umferðar þing­kosn­inga að lúta í lægra haldi í seinni umferð.

Sós­í­alista­flokkur Francoise Hollande, fyrr­ver­andi Frakk­lands­for­seta, hlaut algjört afhroð, en sæta­fjöldi Sós­í­alista mun að öllum lík­indum lækka úr 277 sætum niður í 15-40 sæti, eða 9%. Fylgi Þjóð­fylk­ingar Marine Le Pen stóð einnig í stað í um 13%, en búist var við því að hún myndi ná betri nið­ur­stöðum.

Dræm kjör­sókn ein­kenndi kosn­ing­arnar, en hún var ein­ungis 49%. Til sam­an­burðar var kjör­sóknin 57% árið 2012 og 60% árið 2007.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár