Þingkosningar fyrsta hindrun Macron

Sigur Emmanuel Macron var sá fyrsti síðan 1958 þar sem fram­bjóð­andi frá öðrum en tveimur stærstu flokk­unum lands­ins vann. Macron bíða stórar áskor­anir en fyrsta mál á dag­skrá verður að skipa fram­bjóð­enda­lista og ná meiri­hluta í þing­kosn­ing­unum í júní.

Macron, fyrr­ver­andi fjár­fest­inga­banka­maður og efna­hags­mála­ráð­herra í frá­far­andi rík­is­stjórn François Hollande, vann um 66% atkvæða í seinni umferð frönsku for­seta­kosn­ing­anna gegn Marine Le Pen, leið­toga öfga­hægri­flokks­ins Front Nationale (FN). Macron hafði aldrei gegnt kjörnu emb­ætti og það er ein­ungis rúmt ár síðan hann stofn­aði nýjan stjórn­mála­flokk, En Marche!, og til­kynnti um óháð fram­boð sitt til for­seta. Macron sá fyrir sér að það yrði eft­ir­spurn meðal kjós­enda fyrir frjáls­lyndum miðju­flokki.

Sós­í­alista­flokkur (PS) Hollande var alltaf lík­legur til að eiga erfitt upp­dráttar – þró­unin síð­ustu tíu ár í kosn­ingum í Frakk­landi hefur verið að kjósa gegn sitj­andi full­trúa – en Hollande sjálfur mælt­ist ein­ungis með um 4% stuðn­ing kjós­enda undir lok síð­asta árs sem leiddi til að hann bauð sig ekki fram aftur. Hægri­flokk­ur­inn Les Républicains (LR) virt­ist með sigri hins íhalds­sama François Fillon í próf­kjöri flokks­ins færa sig lengra til hægri á sama hátt og PS virt­ist færa sig lengra til vinstri. Báðar þessar þró­anir má tengja við auknar vin­sældir FN og ósk hinna hefð­bundnu stór­flokka til að höfða til kjós­enda FN, en Macron nýtti rýmið sem skap­að­ist í miðj­unni til fulls.

Ekki sjálfgefinn þingmeirihluti

Kosning Macron hefur mikla þýð­ingu fyrir Evr­ópu­sinna – ESB-fánar blökktu við hlið franskra á bak­við Macron þegar hann flutti sig­ur­ræð­una sína – og er ákveð­inn sigur "mainstr­eam" miðju­stefnu eftir mikla vel­gengni öfga­hæ­gripopúlista á síð­ustu mán­uðum. Marine Le Pen kom verr út úr kosn­ing­unum en margar kosn­inga­spár gerðu ráð fyrir og er ákveðið bakslag fyrir FN þrátt fyrir að flokk­ur­inn fékk um ell­efu millj­ónir atkvæða, tvö­falt fleiri en þáver­andi leið­togi FN og faðir Marine, Jean-Marie Le Pen, hlaut þegar hann komst í aðra umferð for­seta­kosn­ing­ar­innar árið 2002 og tap­aði gegn Jacques Chirac. Fylgi Marine Le Pen var mest í "ryð­belti" Norður-Frakk­lands og í íhalds­sömum, og öldruðum, suð­aust­ur­hluta lands­ins en á báðum svæðum er atvinnu­leysi hátt og hefur verið lengi. Því má segja að Frakk­land sé tví­skipt að ein­hverju leyti og mun rík­is­stjórn Macron þurfa að koma til móts við van­traust kjós­enda á þessum svæðum gagn­vart hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum og mis­heppn­uðum til­raunum þeirra til að snúa við efna­hags­legri lægð.

[adspot]

Þá hafa kann­anir leitt í ljós að um 43% af þeim sem kusu Macron í annarri umferð gerðu það fyrst og fremst til að koma í veg fyrir að Le Pen ynni kosn­ing­arnar. Þá var kjör­sókn til­tölu­lega dræm, tæp 75%, og heil 11,5% kjós­enda skil­uðu auðu. Til­tölu­lega hátt og svæð­is­bundið fylgi FN ásamt ákvörðun margra kjós­enda að kjósa Macron vegna þess að þeir töldu hann vera skárri kost­ur­inn í stöð­unni útskýra að ein­hverju leyti nið­ur­stöður ann­arrar kann­anar sem fram­kvæmd var um leið og sigur Macron var í höfn; 61% Frakka vilja ekki að Macron fái meiri­hluta í þing­kosn­ing­unum sem munu fara fram um miðjan júní.

Lýðveldi á hreyfingu

Fyrsta verk­efni Macron verður að skipa bráða­birgða­rík­is­stjórn þangað til þing­kosn­ingar verða haldnar í júní þar sem flokkur hans, sem hefur nú verið end­ur­skírður La République en marche (REM), mun sækj­ast eftir meiri­hluta eða, það sem raun­hæf­ara er, að setja saman sam­steypu­meiri­hluta sem styður for­set­ann. Þó for­seta­emb­ættið í Frakk­landi sé valda­mikið mun hann þurfa póli­tískan stuðn­ing þings­ins til þess að koma umbótum í gegn; þá sér­stak­lega lækkun rík­is­út­gjalda og breyt­ingum á skatta-, atvinnu­mála- og líf­eyr­is­reglu­gerðum.

REM von­að­ist eftir því að hafa fram­bjóð­endur fyrir öll 577 kjör­dæmin til­búna í vik­unni en flokk­ur­inn til­kynnti á fimmtu­dag­inn nöfn 428 fram­bjóð­enda og sagð­ist muna til­kynna um rest­ina í næstu viku eftir að frest­ur­inn til að stað­festa fram­bjóð­enda­lista var fram­lengdur. Lang­flestir fram­bjóð­endur flokks­ins eru nýgræð­ingar í flokks­stjórn­málum en þó hafa 24 frá­far­andi þing­menn PS – þó ekki Manuel Valls, for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Hollande, sem hafði gefið kost á sér – gengið til liðs við flokk­inn og von­ast Macron eftir því að einnig laða að þunga­vigt­ar­fram­bjóð­endur frá LR. François Bayrou, leið­togi miðju­flokks­ins Mouvement démocrate (MoDem), og banda­maður Macron í þing­kosn­ing­unum hefur lýst yfir óánægju við fram­bjóð­enda­list­ann vegna þess að hann ótt­ast að MoDem verði undir í sam­starf­inu en tals­maður Macron hefur til­kynnt að sátt muni nást við Bayrou.

Eftir því sem fram­bjóð­enda­listar hafa ekki verið end­an­lega stað­festir er erfitt að rýna í hugs­an­leg úrslit kosn­ing­anna en skoð­ana­kann­anir sýna að REM og MoDem munu fá um 26% atkvæða, FN og LR um 22%, vinstri­flokkur Jean-Luc Mélenchon, La France insoumise (FI), 13% og PS ein­ungis 8%. Frakk­land hefur tveggja umferða Westminster-kosn­inga­kerfi þar sem ef eng­inn fram­bjóð­andi í til­teknu kjör­dæmi fær algjöran meiri­hluta í fyrstu umferð, þá fer fram seinni umferð þar sem ein­ungis þeir flokkar sem fá yfir 12,5% atkvæða að taka þátt en ein­ungis sig­ur­veg­ar­inn fær inn full­trúa frá hverju kjör­dæmi.

Þing­kosn­ing­arnar eru fyrsta hindrun Macron í for­seta­tíð hans og munu vera afger­andi til að tryggja skil­virkni í inn­leið­ingu umbóta rík­is­stjórnar hans á næstu árum. Sem yngsti for­seti Frakk­lands frá upp­hafi og leið­togi nýs stjórn­mála­afls í gjör­breyttu stjórn­málaum­hverfi í land­inu er erfitt að segja til um úrvindu þing­kosn­ing­anna. Fáir bjugg­ust þó við sigri hans í for­seta­kosn­ingum lengi vel og það væru mis­tök að van­meta getu hans til að smala saman þing­meiri­hluta á bak við sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár