Risastór þekkingar- og iðnfyrirtæki hugsa um að flytja úr landi

Staða íslenskra fyr­ir­tækja með alþjóð­lega starf­semi innan gild­andi fjár­magns­hafta hefur verið í kast­ljós­inu und­an­farna daga eftir að upp­lýst var rum að plast­fram­leið­and­inn Promens ætli að flytja höf­uð­stöðvar sínar úr landi. Ákvörðun fyr­ir­tæk­is­ins kemur, að sögn for­sæt­is­ráð­herra, í kjöl­far þess að Seðla­bank­inn neit­aði Promens um und­an­þágu frá höftum til að fjár­festa erlendis með gjald­eyri sem það vildi kaupa með afslætti. Slíkar und­an­þágur eru ekki veittar, enda til­gangur hafta að halda fé innan íslensks efna­hags­kerfis, ekki að búa til ábata­samar afslátt­ar­leiðir fyrir valda aðila.

Þótt augun bein­ist nú að Promens þá er það alls ekki eina stóra iðn­fyr­ir­tækið sem starfar hér­lendis sem er að hugsa sér til hreyf­ings. Þvert á móti.

Höft og ESB skipta miklu


Í apríl 2014 sagði Kjarninn frá því að stærstu iðn­fyr­ir­tæki lands­ins væru á barmi þess að fara með höf­uð­stöðvar sínar úr landi. Erlendir fjár­festar sem er uí hlut­hafa­hópi margra af helstu útflutn­ings­fyr­ir­tækja Íslands í iðn­aði, meðal ann­ars Marels, Össurar og CCP, hafa spurt sig af hverju þeir ættu að vera með fyr­ir­tækin á Íslandi?

[quote font="0" align="right"]Til þessa hafa íslensk stjórn­enda­teymi og sér­fræði­þekk­ing í rann­sóknum og þróun verið helsta hindrun þess að fyr­ir­tækin hafi farið form­lega úr landi, með til­heyr­andi skatt­tekju­missi fyrir þjóð­ar­búið og minni ávöxt­un­ar­mögu­leikum á fjár­mála­mark­aði.[/quote]

Til þessa hafa íslensk stjórn­enda­teymi og sér­fræði­þekk­ing í rann­sóknum og þróun verið helsta hindrun þess að fyr­ir­tækin hafi farið form­lega úr landi, með til­heyr­andi skatt­tekju­missi fyrir þjóð­ar­búið og minni ávöxt­un­ar­mögu­leikum á fjár­mála­mark­aði.

Ástæður þess að fyr­ir­tækin eru að hugsa sér til hreyf­ings blasa við. Í fyrsta lagi gera fjár­magns­höftin sem eru við lýði öllum fyr­ir­tækjum í alþjóð­legri starf­semi afar erfitt fyrir við að starfa á eðli­legan hátt. Því lengur sem höftin eru við lýði, því lík­legra er að höf­uð­stöðvar fyr­ir­tækj­anna verði fluttar úr landi.

Hin stóra ástæðan, sem hafði mikil áhrif á sýn sumra eig­enda fyr­ir­tækj­anna á síð­asta ári, var ein­beittur vilji stjórn­valda til að draga til baka umsókn að aðila að Evr­ópu­sam­band­inu.

Össur og Marel bæði í startholunum


Á síð­asta aðal­fundi Össurar, sem fór fram 14. mars 2014, lýsti Niels Jacobsen, stjórn­ar­for­maður félags­ins, yfir miklum áhyggjum af stöðu mála á Íslandi. Áhyggjur hans voru einkum af pen­inga­málum og fjár­magns­höft­unum auk þess sem hann gagn­rýndi íslensk stjórn­völd harð­lega fyrir að vilja draga aðild­ar­um­sókn­ina að Evr­ópu­sam­band­inu til baka og sagði að aug­ljós­lega ekki hægt að reka alþjóð­legt fyr­ir­tæki á stað þar sem „gjald­mið­ill­inn væri varla til“.

[caption id="attachment_18984" align="alignnone" width="632"] Í einka­sam­tölum við aðra hlut­hafa Össurar var Niels Jacobsen enn ákveðn­ari og lét í það skína að úrslita­á­kvarð­anir varð­andi fram­hald fyr­ir­tæk­is­ins hér­lendis væri handan við hornið. Staðan væri óvið­un­andi og fyrir hlut­haf­ana væri hún ekki boð­leg til lengdar.[/caption]

Í einkasamtölum við aðra hluthafa Össurar var Jacobsen enn ákveðnari og lét í það skína að úrslitaákvarðanir varðandi framhald fyrirtækisins hérlendis væri handan við hornið. Staðan væri óviðunandi og fyrir hluthafana væri hún ekki boðleg til lengdar.
Í einka­sam­tölum við aðra hlut­hafa Össurar var Jacobsen enn ákveðn­ari og lét í það skína að úrslita­á­kvarð­anir varð­andi fram­hald fyr­ir­tæk­is­ins hér­lendis væri handan við hornið. Staðan væri óvið­un­andi og fyrir hlut­haf­ana væri hún ekki boð­leg til lengdar.

Í einka­sam­tölum við aðra hlut­hafa Össurar var Jacobsen enn ákveðn­ari og lét í það skína að úrslita­á­kvarð­anir varð­andi fram­hald fyr­ir­tæk­is­ins hér­lendis væri handan við hornið. Staðan væri óvið­un­andi og fyrir hlut­haf­ana væri hún ekki boð­leg til lengdar. Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar, sagði í sam­tali við Kjarnann í apríl í fyrra að ráða­leysi stjórn­vlada í efna­hags­málum, óút­fært plan um afnám fjár­magns­hafta og áform þeirra um að draga umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka hafi valdið félag­inu miklum áhyggjum.

Svipaðar raddir mátti heyra á aðal­fundi Marels 5. mars 2014, ekki síst frá full­trúum erlendra hlut­hafa, sem töl­uðu skýrt um það að rekstr­ar­um­hverfi félags­ins á Íslandi væri óvið­und­andi og til trafala fyrir fyr­ir­tækið.

Tilfinningarök, ekki viðskiptarök


Á aðal­fundi CCP, sem var hald­inn 27. mars 2014, var það sama upp á ten­ingnum hvað erlenda hlut­hafa varðar, og raunar íslenska líka. Mikið var rætt um hvernig fyr­ir­tækið gæti haldið sam­keppn­is­hæfni gagn­vart öðrum fyr­ir­tækjum í tölvu­leikja­iðn­aði og hvort það væri verj­andi að láta „hjartað í fyr­ir­tæk­inu slá á Íslandi“, eins og einn við­mæl­enda komst að orði.

Skömmu fyrir aðal­fund­inn, nánar til­tekið 6. mars 2014, var iðn­þing Samtaka iðn­að­ar­ins haldið. Á meðal fram­sögu­manna var Hilmar Veigar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri CCP. Ræða hans, sem hægt er að horfa á í heild sinni hér að neðan, vakti mikla athygli.

http://youtu.be/jN2uloZa75c

Í ræð­unni lýsti Hilmar hvernig það væri að stýra fyr­ir­tæki í höftum í landi þar sem íslensk króna væri gjald­mið­il­inn. Hilmar sagði einnig frá því að til­boðum um að færa CCP til útlanda hefði ringt inn og að erlend sendi­ráð hér­lendis væru mjög dug­leg að taka við fyr­ir­tæki sem „vit er í“. Staðan væri þannig að þeir sem næðu árangri á hans vett­vangi settu ekki upp fyr­ir­tæki á Íslandi. CCP hefði hins vegar ekki flutt þrátt fyrir gylli­boð og sagði Hilmar að sú ákvörðun byggði ein­ungis á til­finn­ingum. Eftir á að hyggja hefði það ekki verið sér­stak­lega góð ákvörðun. CCP hefði til dæmis boð­ist að fara til Kanada með höf­uð­stöðvar sínar en þar bauðst fyr­ir­tæk­inu að borga enga skatta fyrstu fimm árin eftir flutn­ing.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var mik­ill vilji hjá erlendum hlut­höfum CCP að færa höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins úr landi. Þeir ræddu þá afstöðu sína við aðra hlut­hafa í kringum síð­asta aðal­fund CCP, sem var hald­inn fyrir tæpu ári.

Undirbúningur hafin hjá Creditinfo


Kjarninn greindi einni frá því í apríl í fyrra að fjár­hags- og við­skipta­upp­lýs­inga­fyr­ir­tækið Creditinfo hafi hafið und­ir­bún­ing að því að flytja höf­uð­stöðvar sínar úr landi. Reynir Grét­ars­son, stærsti eig­andi Creditinfo og einn stofn­enda, stað­festa þessi áform við Kjarnann.

Hann hafði skömmu áður, í kjöl­far fram­lagn­ingar á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að slíta aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið og draga umsókn að því til baka, sent tölvu­bréf á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

„Ég tel að það eigi að vera for­gangs­verk­efni [stjórn­valda] að hlúa að rekstr­ar­um­hverfi sér­hæfðra þekk­ing­ar­fyr­ir­tækja. Það verður best gert með að finna lausnir sem ógna ekki íslensku hag­kerfi heldur þvert á móti styðja auk­inn hag­vöxt. Ég leyfi mér að leggja til að stjórn­völd bregð­ist fljótt við og finni leiðir sem eru til þess fallnar að bæta enn rekstr­ar­skil­yrði íslenskra fyr­ir­tækja. Ég er auð­vitað til­bú­inn að koma með frek­ari upp­lýs­ingar eða á annan hátt aðstoða við að finna lausn á vand­anum.“

Reynir fékk engin við­brögð við tölvu­bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár