Losun frá flugi jókst milli ára

Losun frá flugi til og frá Íslandi jókst – líkt og fyrri ár – milli áranna 2016 til 2017 en aukn­ingin var 13,2 pró­sent.

Losun frá flugi til og frá Íslandi jókst líkt og fyrri ár milli ára. Aukning los­unar var 13,2 pró­sent milli áranna 2016 og 2017. Árið 2016 var los­unin 718.624 tonn af CO2 en varð á síð­asta ári 813.745 tonn af CO2.

Þetta kemur fram í frétt Umhverf­is­stofn­unar sem birt­ist í dag en upp­gjöri rekstr­ar­að­ila stað­bund­ins iðn­aðar og flug­rek­enda í við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir er lokið.

Alls gerðu fimm íslenskir flug­rek­endur og sjö rekstr­ar­að­ilar iðn­aðar upp heim­ildir sínar. Heild­ar­losun í flugi sem fellur undir kerfið var 813.745 tonn CO2 ígilda en í iðn­aði var los­unin 1.831.667 tonn af CO2 ígildum.

Þeim flug­rek­endum sem bar skylda til að gera upp losun sína fækk­aði um einn, sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun, og eru nú fimm. „Losun frá flugi er þó háð tak­mörk­unum að því leyt­inu til að hún er ein­ungis losun innan EES svæð­is­ins og tekur því ekki á heild­ar­losun flestra flug­rek­enda, þar sem t.d. Amer­íkuflug er ekki innan gild­is­sviðs kerf­is­ins eins og er,“ segir í frétt­inni.

Losun í iðnaði jókst lítillega

Losunin í iðn­aði jókst lít­il­lega á milli ára, eða um 2,8 pró­sent, úr 1.780.965 tonnum af CO2 árið 2016 í 1.831.667 tonn af CO2 árið 2017. Jafn­margir rekstr­ar­að­ilar í iðn­aði gerðu upp fyrir árið 2017 og árið á undan, eða sjö tals­ins, sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár