Dregur sig úr framboði vegna ásakana um kynferðisofbeldi

Var­ar­borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins og fram­bjóð­andi í stjórn Eflingar hefur ákveðið að segja sig frá allri þátt­töku í stjórn­málum og félags­störfum, þar sem bornar hafa verið á hann ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi.

Daníel Örn Arnarsson, varaborgarfulltrúi og ritari stjórnar Eflingar.
Daníel Örn Arn­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi og rit­ari stjórnar Eflingar.

Daníel Örn Arn­ars­son, rit­ari stjórnar Eflingar og var­ar­borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, hefur dregið sig úr borg­ar­stjórn og fram­boði til stjórnar Eflingar vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­of­beldi. Þessu greindi Daníel frá í færslu á Facebook-síðu sinni fyrr í dag.

Samkvæmt færsl­unni mun Daníel einnig segja sig frá allri stjórn­mála­þátt­töku, sem og öðrum félags­störfum fyrir Sós­í­alista­flokk­inn vegna ásakan­anna. Hann seg­ist taka þá ákvörðun af virð­ingu við starf og bar­áttu flokks­ins, sem og virð­ingu við bar­áttu verka­fólks fyrir bættum kjörum.

Daníel var einn átta fram­bjóð­enda Bar­áttu­list­ans, sem hyggst bjóða sig fram til stjórnar Eflingar í næst­kom­andi stjórn­ar­kjöri félags­ins í febr­úar. Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem sagði af sér for­mennsku í Eflingu í fyrra­haust, leiðir hóp­inn og mun bjóða sig fram til for­manns að nýju.

Svo­kall­aður A-listi, sem trún­að­ar­ráð Eflingar sam­þykkti fyrr í mán­uð­inum, verður einnig í fram­boði, en Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, sem setið hefur sem vara­for­maður stjórnar Efl­ingar frá því að Sól­veig Anna sagði af sér, leiðir hann. Tveir aðrir núver­andi stjórn­ar­menn eru á þeim lista en Agni­ezka Ewa Ziólkowska, sem tók við for­mennsku í Efl­ingu eftir að Sól­veig Anna hætti, verður ekki í fram­boð­i. Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Efl­ingu, hefur einnig boðað að hann ætli sér að leggja fram eigin lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár