Sólveig Anna býður sig aftur fram til formanns Eflingar – Ætla að „umbylta félaginu“

Bar­áttu­list­inn, með Sólveigu Önnu Jóns­dóttur í broddi fylk­ingar, mun sækj­ast eftir því að stýra Eflingu. Hópurinn vill stór­auka áhrif Eflingar innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og taka upp sjóðs­fé­lags­lýð­ræði í líf­eyr­is­sjóðum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem sagði af sér for­mennsku í Eflingu í fyrra­haust, mun bjóða sig fram til for­manns að nýju í stjórn­ar­kjöri í stétt­ar­fé­lag­inu sem hefst 9. febr­úar næst­kom­andi og mun standa yfir til klukkan 20 þann 15. febr­úar.

Hún mun leiða hóp Efl­ing­ar­fé­laga sem bjóða fram svo­kall­aðan B-lista, sem kall­aður er Bar­áttu­list­inn. Hópurinn seg­ist eiga „það sam­eig­in­legt að vilja umbylta félag­inu okkar.“ Aðrir á list­anum eru Daníel Örn Arn­ars­son, Innocentia F. Frið­geirs­son, Ísak Jónsson, Kolbrún Valv­es­dóttir, Michael Bragi Whalley, Olga Leons­dóttir og Sæþór Benjamín Randals­son. Allir sem sitja á list­anum hafa reynslu af trún­að­ar­störfum fyrir Eflingu og fjögur þeirra sitja þegar í stjórn Eflingar. Daníel er í dag rit­ari stjórnar.

Í kynn­ing­ar­efni um list­ann, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir að hóp­ur­inn hafi öðl­ast beina reynslu af þeim miklu breyt­ingum sem hafa orðið í félag­inu síðan 2018 undir nýrri for­ystu, en Sólveig Anna var fyrst kjörin for­maður Eflingar í febr­úar 2018. „Það sem sam­einar okkur meira en nokkuð annað er trúin á að gera Eflingu að öfl­ugu vopni í kjara­bar­áttu lág­launa­fólks. Breyt­ingar í félag­inu okkar á síð­ustu árum hafa gefið okkur von og sann­fær­ingu um að þetta sé hægt. Skipu­lögð og ein­beitt bar­átta skilar árangri. Við viljum byggja á þeim grunni og þess vegna viljum við starfa í stjórn Eflingar undir for­mennsku Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur."

Trún­að­ar­ráð Eflingar sam­þykkti á fundi sínum 13. jan­úar síð­ast­lið­inn til­lögu upp­still­ing­ar­nefndar um svo­kall­aðan A-lista, en Ólöf Helga Adolfs­dóttir, sem setið hefur sem vara­for­maður stjórnar Eflingar frá því að Sólveig Anna sagði af sér, leiðir þann lista. Tveir aðrir núver­andi stjórn­ar­menn eru á þeim lista en Agniezka Ewa Ziólkowska, sem tók við for­mennsku í Eflingu eftir að Sólveig Anna hætti, verður ekki í fram­boði.

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, hefur einnig boðað að hann ætli sér að leggja fram eigin lista. Því stefnir í að óbreyttu að þrír listar verði í boði fyrir félags­menn Eflingar í stjórn­ar­kjör­inu.

Þegar Sólveig Anna bauð sig fyrst fram til for­manns Eflingar árið 2018, gegn A-lista upp­still­ing­ar­nefndar Eflingar, fékk list­inn sem hún leiddi 2.099 atkvæði en hinn list­inn 519 atkvæði. Listi Sól­veigar Önnu var svo einn í fram­boði árið 2020 og hún þá sjálf­krafa end­ur­kjörin for­maður.

Vilja stórauka áhrif Eflingar innan verkalýðshreyfingarinnar

Kjarninn hefur fengið að sjá yfir­lit yfir helstu stefnu­mál Bar­áttu­list­ans, en stefnan er brotin niður í alls níu und­ir­flokka. Á meðal þess sem þar kemur fram er að list­inn vilji láta leiða í lög ákvæði um beint sjóðs­fé­lags­lýð­ræði í líf­eyr­is­sjóðum lands­ins að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. „Það þarf að stokka spilin upp á nýtt til að færa þetta ástand í rétt horf og stíga skref í átt að eðli­legu lýð­ræði. Bar­áttu­list­inn krefst þess að sjóð­fé­lagar í líf­eyr­is­sjóðum fái í hendur tæki til beinna áhrifa á ákvarð­ana­töku er varðar sam­fé­lags­á­byrgð og eðli­legt aðhald í rekstri án neit­un­ar­valds atvinnu­rek­enda.“

Í stefnu­skránni segir að of algengt sé að atvinnu­rek­endur nýti sér hótun um upp­sögn sem ögun­ar­tæki þegar verka­fólk óski eftir því að rétt­indi þess séu virt. „Hið mikla frelsi til upp­sagnar á ráðn­ing­ar­sam­bandi sem ríkir á íslenskum vinnu­mark­aði er í dag mis­notað af atvinnu­rek­endum. Sem við­bragð við þessu vill Bar­áttu­list­inn láta inn­leiða án tafar við­ur­lög og sektir vegna van­greiddra launa og ann­arra brota á ákvæðum kjara- og ráðn­ing­ar­samn­inga.“

Þá vill list­inn stór­auka áhrif Eflingar innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. „Efl­ing­ar­fé­lagar eru yfir 40 pró­sent af félags­fólki í Starfs­greina­sam­bandi Íslands (SGS) og yfir 20 pró­sent af félags­fólki í Alþýðu­sam­bandi Íslands. Efling greiðir nú yfir 130 millj­ónir króna á ári í félags­gjöld til SGS og ASÍ, þar af yfir 90 millj­ónir til þess síð­ar­nefnda. Áhrif Efl­ing­ar­fé­laga á ákvarð­ana­töku og stefnu þess­ara lands­sam­banda eru hins vegar hvorki í sam­ræmi við fjölda félags­manna né þær miklu greiðslur sem þeir greiða til þeirra.“

Bar­áttu­list­inn vill að lagt verði mat á ávinn­ing Efl­ing­ar­fé­laga af þátt­töku í lands­sam­böndum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. „Þar verði horft til áhrifa Efl­ing­ar­fé­laga í hlut­falli við fjölda þeirra og þær háu greiðslur sem þeir greiða til sam­band­anna. Bar­áttu­list­inn vill einnig taka inn í mynd­ina að hve miklu leyti lands­sam­böndin þjóna í reynd hags­munum verka- og lág­launa­fólks.“

Ætla að berjast gegn SALEK og „standandi gerðardómi“

Þá verði staðið gegn því sem list­inn kallar áform rík­is­stjórn­ar­innar og afla innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um inn­leið­ingu á SALEK- fyr­ir­komu­lag­inu. SALEK stendur fyrir „sam­starf um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­ing­ar“ og mark­miðið með sam­starf­inu, sem stór hluti vinnu­mark­að­ar­ins sam­þykkti að taka þátt í árið 2015, var að auka kaup­mátt á grund­velli lágrar verð­bólgu, lágra vaxta og stöðugs geng­is. Auk þess átti sam­komu­lagið að stuðla að friði á vinnu­mark­aði og auknum stöð­ug­leika. Eftir að nýtt fólk var kjörið í for­ystu stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins, VR og Efl­ingu, lifði þetta samn­ings­líkan ekki lengi.

Í stefnu­skránni er því hafnað í einu og öllu að verk­falls­réttur verði skertur, hvort sem það er með „stand­andi gerð­ar­dómi“ eins og talað er um í rík­is­stjórn­ar­sátt­mála eða öðrum leiðum. „Bar­áttu­list­inn vil að Efling und­ir­riti kom­andi kjara­samn­ing með skýrum fyr­ir­vara um að hann sé upp­segj­an­legur ef Alþingi hreyfi á minnsta hátt við núgild­andi lag­ara­mma vinnu­mark­að­ar­ins eða taki skref í átt að SALEK.“

Vilja stórátak í húsnæðismálum og lækkun lífeyrisaldurs

Á meðal ann­arra bar­áttu­mála list­ans eru kröfur sem munu bein­ast gegn stjórn­völdum við kom­andi kjara­samn­inga­gerð. Á meðal þeirra er að krefj­ast skuld­bind­ingar til útfærðra aðgerða, sem séu bæði tíma­settar og fjár­magn­aðar, í hús­næð­is­málum, að skatt­byrði sé borin af þeim sem hana þola og bætur verði ekki bundnar ein­ungis við sára­fá­tæka. Þá lýsir list­inn yfir „sam­stöðu með bar­áttu öryrkja og eldri borg­ara gegn skerð­ingum og krefst taf­ar­lausrar hækk­unar á skerð­ing­ar­mörkum, sem í dag eru alltof lág.“

Þá vill list­inn að líf­eyr­is­sjóð­irnir, vinnu­mark­að­ur­inn og þjóð­fé­lagið taki til­lit til aðstæðna erf­ið­is­vinnu­fólks og tryggi því sam­bæri­legt ævi­kvöld og öðru launa­fólki. „Leiðin til þess er að lækka líf­eyr­i­s­töku­aldur verka- og lág­launa­fólks sem unnið hefur lang­vinna erf­ið­is­vinnu. Bar­áttu­list­inn vill horfa til fyr­ir­mynda frá Norð­ur­lönd­unum þar sem einmitt þetta hefur verið gert.“

Ætla að fella ákvæði um ábyrgð stjórnarmanna á starfsmannahaldi úr lögum

Í stefnu­skrá Bar­áttu­list­ans er ýmis­legt sem snýr að innra starfi Eflingar og sér­stak­lega starfs­manna­málum félags­ins. Listinn vill meðal ann­ars auka hlut­verk félags­fólks sjálfs í skipu­lagi, und­ir­bún­ingi og utan­um­haldi tengt félags­legu starfi og efla og end­ur­skoða skipu­lag á fræðslu­málum félags­fólks.

Þá segir að list­inn vilji koma á umbótum í starfs­manna­málum á skrif­stofu Eflingar, meðal ann­ars með því að taka upp gagn­sætt launa­kerfi, inn­leiða jafn­launa­vottun og ljúka vinnu við ítar­lega starfs­manna­hand­bók og yfir­ferð starfs­lýs­inga. „Stjórn fái reglu­lega heild­ar­mynd af stöðu starfs­manna­mála, svo sem nið­ur­stöðum starfs­á­nægjukann­ana og tölum yfir launa­kostnað, stöðu­gildi og starfs­manna­veltu. Mönn­un­ar­þörf starf­sem­innar verði metin reglu­lega. Stjórn fjalli um og veiti sam­þykki fyrir stefnu­mark­andi ákvörð­unum í starfs­manna­haldi, svo sem launa­kerfi, starfs­manna­stefnu og starfs­manna­hand­bók. Byggð verði upp heil­brigð vinnu­staða­menn­ing sem tekur til­lit til eðli starf­sem­innar og teikn­aður upp ítar­legur sátt­máli um góð sam­skipti innan vinnu­stað­ar­ins.“

Bar­áttu­list­inn vill einnig að ábyrgð fag­lega ráð­inna yfir­stjórn­enda á dag­legum rekstri skrif­stofu Eflingar verði áréttuð og skýrð. „Þetta verði end­ur­speglað í lögum félags­ins, byggt á fyr­ir­myndum ann­arra íslenskra stétt­ar­fé­laga á borð við VR. Úrelt ákvæði um beina ábyrgð stjórn­ar­manna á starfs­manna­haldi (t.d. 11. grein) verði felld út úr lögum Eflingar. Stjórn setji sér starfs­reglur um aðkomu hennar að rekstr­ar­málum, þar með talið áætl­ana­gerð og eft­ir­lit, þar sem skýrt verði með hvaða hætti stjórn sé upp­lýst um rekstr­ar­mál og hvernig hún veiti aðhald varð­andi þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár