Opinberir starfsmenn gáfu eftir lífeyrisréttindi fyrir hærri laun – Það loforð hefur enn ekki verið efnt

Opin­berir starfs­menn sam­þykktu að hækka líf­eyr­i­s­töku­aldur, byggja sjóðs­söfnun á föstum iðgjöldum og að ávinnsla rétt­inda yrði ald­urstengd árið 2016. Á móti átti að hækka launin þeirra þannig að þau yrðu í takti við laun á almenna mark­aðnum ára­tug síðar.

Þann 19. sept­em­ber 2016, rúmum mán­uði fyrir þing­kosn­ingar sem fram fóru í lok októ­ber sama ár, var und­ir­ritað sam­komu­lag. Til­gangur þess var að sam­ræma opin­bera og almenna líf­eyr­is­kerfið með þeim hætti að opin­berir starfs­menn myndu ekki njóta lengur betri líf­eyr­is­rétt­inda en þeir sem starfa á einka­mark­aði. Í stað­inn áttu þeir að fá betur borgað og meiri launa­hækk­anir næsta ára­tug­inn til að jafna stöðu opin­berra starfs­manna og ann­arra í launa­þróun.

Með því að sam­ræma líf­eyr­is­kerfin átti loks að vera hægt að nálg­ast kjara­samn­inga heild­rænt og vinna skipu­lega að því að koma í veg fyrir að höfr­unga­hlaup launa­hækk­ana myndi grafa undan því mark­miði að bæta kjör íslenskra launa­manna.

Í sam­komu­lag­inu var sömu­leiðis fjallað um að launa­kjör opin­berra starfs­manna yrðu jöfnuð við þau sem tíðkast á almennum mark­aði. Samkvæmt sam­komu­lag­inu átti launa­jöfn­unin að nást innan ára­tugar en iðgjöld áttu að hækka á móti í almenna kerf­inu í 15,5 pró­sent.

Á móti áttu opin­berir starfs­menn að sam­þykkja stór­tækar breyt­ingar á líf­eyr­is­rétt­inda­vinnslu sinni. Stærstu breyt­ing­arnar voru þær að líf­eyr­i­s­töku­aldur var hækk­aður úr 65 í 67 ár, sjóðs­söfnun myndi byggja á föstum iðgjöldum og ávinnsla rétt­inda yrði ald­urstengd.

Sam­hliða yrði ábyrgð launa­greið­enda, ríkis og sveit­ar­fé­laga, á sjóð­unum afnumin.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem send var til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber 2016, kom fram að laun opin­berra starfs­manna væru um það bil 16 pró­sent lægri en starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði á þeim tíma. Það var því launa­mun­ur­inn sem þurfti að vinna upp næsta ára­tug­inn umfram almennar launa­hækk­anir.

Svarið byggði á sam­an­burði Hagstofu Íslands á launa­mun opin­berra starfs­manna og þeirra sem starfa á almennum vinnu­mark­aði. Sá fyr­ir­vari var þó gerður á því að launa­sam­an­burð­ur­inn væri erf­iður og aðilar sam­komu­lags­ins töldi sig ekki geta byggt frek­ari vinnu um launa­sam­an­burð á grunni nið­ur­stöðu Hag­stof­unnar. Því varð ofan á að byggja þyrfti vinn­una á „betri for­sendum og ræð­ast frekar á milli aðila.“

SALEK er dáið

Þetta var allt gert á grunni nýs samn­ings­lík­ans, sem svo­kall­aður SALEK-hópur gerði og hluti vinnu­mark­að­ar­ins skrif­aði undir haustið 2015, og gerði ráð fyrir grund­vall­ar­breyt­ingum á íslenskum vinnu­mark­aði, þ.e. að að tryggja op­in­berum starfs­mönnum aukna hlut­deild í launa­skriði á almenna vinnu­mark­aðn­um og að jafna líf­eyr­is­rétt­indi.

Frá undirritun samkomulagsins í september 2016.
Frá und­ir­ritun sam­komu­lags­ins í sept­em­ber 2016.

SALEK stendur fyrir „sam­starf um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­ingar“ og mark­miðið með sam­starf­inu, sem stór hluti vinnu­mark­að­ar­ins sam­þykkti að taka þátt í upp­haf­lega, var að auka kaup­mátt á grund­velli lágrar verð­bólgu, lágra vaxta og stöðugs gengis. Auk þess átti sam­komu­lagið að stuðla að friði á vinnu­mark­aði og auknum stöð­ug­leika.

SALEK-samn­ings­líkanið lifði ekki lengi eftir að nýtt fólk var kjörið í for­ystu stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins, VR og Eflingu. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagði strax árið 2018 að útför SALEK hefði þegar farið fram. Þeirra sýn var sú að ekki væri hægt að fara í nor­rænt vinnu­mark­aðs­módel þegar rætt yrði um launa­hækk­anir á meðan að önnur kjör á Íslandi, til dæmis vaxta­kjör og hús­næð­is­mál, væru verri hér en á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Í síð­ustu stóru kjara­samn­inga­lotu var því farið af stað með ýmsar kröfur sem rím­uðu ekki við mark­mið eða reglur SALEK.

Langt í land

Þrátt fyrir að SALEK sé ekki lengur til staðar þá stendur eftir að opin­berir starfs­menn sam­þykktu að gefa eftir hærri líf­eyri gegn því að laun þeirra yrðu jöfnuð við það sem tíðkast á almenna mark­aðnum fyrir lok árs 2026.

Það tíma­bil er nú næstum hálfnað.

Kjarninn óskaði nýverið eftir upp­lýs­ingum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um hver launa­mun­ur­inn milli opin­berra starfs­manna og þeirra sem starfa á almenna mark­aðnum væri í dag. Þeirri fyr­ir­spurn var ekki svarað með beinum hætti.

Í svari ráðu­neyt­is­ins sagði að það hefði tekið þátt í starfi Kjara­töl­fræði­nefndar og að í nýlegri skýrslu hennar, sem kom út 30. apríl, væri að finna upp­lýs­ingar um laun og vinnu­markað.

Í skýrslu Kjara­töl­fræði­nefndar er vinnu­mark­aðnum skipt í fjóra hluta: almenna mark­að­inn, rík­is­starfs­menn, Reykja­vík­ur­borg og starfs­menn ann­arra sveit­ar­fé­laga. „Í skýrslu KTN er varpað ljósi á launa­stig og launa­þróun og útskýrt að launa­sam­an­burður er vanda­samur, sam­setn­ing hópa er mis­mun­andi jafn­vel innan sömu sam­taka og vanda­samt er að finna sam­bæri­lega hópa, einnig er mis­mun­andi útkoma eftir því hvort við­mið er grunn­laun, reglu­leg laun eða heild­ar­laun og með­al­tal launa er sem dæmi ekki alltaf lýsandi fyrir launa­stig,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Mikill munur

Þar er þó sér­stak­lega bent á eina mynd úr síð­ustu skýrslu Kjara­töl­fræði­nefndar sem sýnir reglu­leg laun fyrir fullt starf í jan­úar 2021. Á mynd­inni má sjá hver laun hvers hluta vinnu­mark­að­ar­ins er hjá fjórum mis­mun­andi félögum eða sam­böndum. Innan Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) eru full­vinn­andi starfs­menn á almenna mark­aðnum með 623 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er 16,4 pró­sent meira en rík­is­starfs­menn innan ASÍ og 32 pró­sent meira en starfs­menn ann­arra sveit­ar­fé­laga og 38,1 pró­sent meira en starfs­menn höf­uð­borg­ar­innar voru með í byrjun árs 2021.

Innan BHM voru reglu­leg laun á almenna mark­aðnum 896 þús­und krónur sem er 14,6 pró­sent meira en starfs­menn allra sveit­ar­fé­laga. Munurinn á milli almenna mark­að­ar­ins og rík­is­starfs­manna hjá BHM var 23,6 pró­sent.

Hjá BSRB var sama saga að mestu og hjá ofan­greindum. Almenni starfs­mað­ur­inn var með 680 þús­und krónur að með­al­tali í reglu­leg laun sem var 15,6 pró­sent meira en starfs­menn ann­arra sveit­ar­fé­laga en Reykja­víkur, 17,6 pró­sent meira en rík­is­starfs­menn og 29,2 pró­sent hærri laun en starfs­menn höf­uð­borg­ar­innar sem til­heyra BSRB eru með.

Þetta er staðan þrátt fyrir að starfs­menn ríkis og sveit­ar­fé­laga hafi hækkað hlut­falls­lega mun meira í launum frá því að lífs­kjara­samn­ing­arnir svoköll­uðu voru gerðir í vorið 2019. Innan ASÍ hafa laun starfs­manna Reykja­víkur hækkað mest, eða um 28,6 pró­sent frá þeim tíma og fram til jan­úar 2021. Laun starfs­manna ann­arra sveit­ar­fé­laga innan ASÍ hækk­uðu um 25,2 pró­sent og laun rík­is­starfs­manna um 19 pró­sent. Á sama tíma hækk­uðu laun á almenna mark­aðnum um 15,5 pró­sent. Ástæður þessa eru þær að samið var um krónu­tölu­hækk­anir í lífs­kjara­samn­ing­unum sem eðli­lega hækka lág laun um mun hærri hlut­falls­tölu en há laun.

Bilið minnkar hægt

Ef horft er til dæmis á þá sem til­heyra félögum sem mynda ASÍ þá hafa laun starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar sem til­heyra því mengi hækkað hlut­falls­lega mest allra, eða 28,6 pró­sent. Meðaltal reglu­legra launa þeirra hefur farið úr 351 þús­und krónum í 451 þús­und krónur og hækkað um 100 þús­und krónur á mán­uði frá mars­mán­uði 2019.

Sá hópur innan ASÍ sem er með hæstu reglu­legu launin að með­al­tali eru þeir sem vinna á almenna mark­aðnum. Með­al­laun þess hóps er 623 þús­und krónur á mán­uði og hafa hækkað um 15,5 pró­sent frá mars­mán­uði 2019, sem er mun minni pró­sentu­hækkun sem starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar hafa fengið. Þeir hafa samt sem áður fengið 84 þús­und krónur á mán­uði í launa­hækkun á tíma­bil­inu.

Því hefur launa­bilið milli almenna hóps­ins innan ASÍ, sem er með 172 þús­und krónum meira að með­al­tali á mán­uði en starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar innan sama hóps, og síð­ar­nefnda hóps­ins minnkað um 16 þús­und krónur á mán­uði frá mars­mán­uði 2019.

Ofan­greindar tölur sýna að það að í dag, þegar næstum fimm ár eru liðin frá því að sam­komu­lag var und­ir­ritað um að sam­ræma opin­bera og almenna líf­eyr­is­kerfið með þeim hætti að opin­berir starfs­menn myndu ekki njóta lengur betri líf­eyr­is­rétt­inda en þeir sem starfa á einka­mark­aði, þá skortir enn tölu­vert upp á það að búið sé að efna hluta sam­komu­lags­ins.

Þ.e. þann anga sem snýr að því að hækka átti laun opin­berra starfs­manna þannig að þau yrðu i takti við laun á almenna mark­aðnum fyrir árs­lok 2026.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár