Uppgötvuðu hafstraum og kenna hann við Ísland

Norskir vís­inda­menn hafa borið kennsl á nýtt fyr­ir­bæri í haf­inu sem hefur umtals­verð áhrif á lofts­lag á okkar norð­lægu slóðum. Haf­straum­ur­inn hefur fengið nafnið Íslands-Færeyja brekku­straum­ur­inn (e. Iceland-Faroe Slope Jet).

Íslands-Færeyja straumurinn (IFSJ) er sýndur með dökk fjólubláum lit á kortinu.
Íslands-Færeyja straum­ur­inn (IFSJ) er sýndur með dökk fjólu­bláum lit á kort­inu. Mynd: Nature Communications

Það er ekki á hverjum degi sem haf­straumar eru upp­götv­aðir. En slíkt gerð­ist nýlega og um það er fjallað í grein sem birt­ist í vís­inda­tíma­rit­inu Nature Communications í gær.

Málið hefur því vakið mikla athygli, m.a. í heima­landi vís­inda­mann­anna, Noregi. „Við höfum sett nýjan haf­straum á kortið. Svo ein­falt er það,“ segir aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar, Stefanie Semper, dokt­or­snemi í lofts­lags­fræðum við Háskól­ann í Bergen, við norska rík­is­sjón­varpið.

Löngu er orðið ljóst að haf­straumar hafa gríð­ar­leg áhrif á lofts­lag jarðar. Allir þekkja Golfstraum­inn sem flytur hlýjan sjó norður á bóg­inn, í Íslands­haf, Nor­egs­haf og Græn­lands­haf. Hann gerir það að verkum að lofts­lag á okkar breidd­argráðum er hlýrra en ella og svæðið því byggi­legt mönnum.

Hinn nýupp­götv­aði haf­straumur teng­ist einmitt Golfstraumnum. Hlýi sjór­inn sem Golfstraum­ur­inn flytur kólnar á ferða­lagi sínu, þyng­ist þar með og sekkur og flyst aftur suður þar sem hann hlýnar á ný. Þetta ferli myndar hringrás. Nýfundni straum­ur­inn flytur sjó um gljúfur á miklu dýpi þess­arar hringrásar frá Íslandi til Færeyja. Vís­inda­menn hafa svo einnig fundið út að sjór­inn sem straum­ur­inn flytur kemur úr Græn­lands­hafi. Það gefur mik­il­vægar upp­lýs­ingar um lofts­lagið og hvernig það gæti þró­ast. Þegar breyt­ingar verða á sjónum við Grænland vegna lofts­lags­breyt­inga sem þegar eru farnar að eiga sér stað gæti það haft áhrif á hringrás­ina í Norður-Atl­ants­hafi.

Eitt af því sem vís­inda­menn hafa áhyggjur af er að hægt gæti á haf­straumunum í fram­tíð­inni vegna hita­breyt­inga. Þá mun Golfstraum­ur­inn kólna og lofts­lag á áhrifa­svæðum hans sömu­leiðis. Semper segir í sam­tali við NRK að til að spá fyrir um þróun loft­lags á jörð­inni verði að taka haf­straumana með inn í mynd­ina. „Ég held að við viljum getað spáð fyrir um hvernig fram­tíðin mun líta út og þess vegna verðum við að vita meira um haf­straumana.“

Hún bendir á að enn sé þó margt á huldu varð­andi hafið og því sé mikil þörf á frek­ari rann­sóknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár