Sjö kónar Trumps

Fyrr­ver­andi und­ir­menn Trump Banda­ríkja­for­seta virð­ast hafa ein­stakt lag á því að kom­ast í kast við lögin. Í síð­ustu viku var Steve Bannon hand­tek­inn og bætt­ist þar með í hóp fyrr­ver­andi Trump-liða sem ýmist hafa verið ákærðir eða dæmdir fyrir glæpi.

Donald Trump hefur verið með þónokkra menn í kringum sig undanfarin ár sem síðan hafa á einn eða annan hátt lent í löngum faðmi laganna.
Donald Trump hefur verið með þónokkra menn í kringum sig und­an­farin ár sem síðan hafa á einn eða annan hátt lent í löngum faðmi lag­anna. Mynd: EPA

Nokkrir menn með náin tengsl við Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta hafa kom­ist í kast við lögin á síð­ustu árum. Sumir þeirra hafa játað brot, verið dæmdir og afplánað fang­els­is­dóma, á meðan að aðrir neita sök, hafa fengið dóm sinni mild­aðan af for­set­anum sjálfum eða bíða þess að mál þeirra verði til lykta leidd.

„Þetta er leitt, þetta er mjög leitt,“ sagði Trump á blaða­manna­fundi fyrir helgi, spurður um nýjasta dæmið um fyrr­ver­andi sam­starfs­mann sem lent hefur í klóm rétt­vís­innar og er ákærður fyrir lög­brot.

Þá var hann að sjálf­sögðu að tala um mál Steve Bannons, en sá var hand­tek­inn síð­asta fimmtu­dag og er ákærður fyrir að hafa fjár­magnað lystisemda­líf sitt með því að fóðra eigin vasa með frjálsum fram­lögum almenn­ings sem safnað var á net­inu. Hann og fleiri sam­verka­menn sögðu að féð ætti að renna óskipt í að byggja hluta múrs­ins á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó.

Bannon var kosn­inga­stjóri Trumps árið 2016 og starf­aði náið með honum fyrstu mán­uð­ina sem hann sat í emb­ætti. Hann hefur stundum verið kall­aður heil­inn á bak við her­ferð hans sem skil­aði kosn­inga­sigrinum árið 2016, en nú gengur hann laus gegn því skil­yrði að hann útvegi 5 milljón dala trygg­ingu fyrir 3. sept­em­ber.

Banda­rískir fjöl­miðlar hafa greint frá því að hann hafi verið hand­tek­inn í sam­starfs­verk­efni strand­gæsl­unnar og rann­sókn­ar­deild banda­rísku póst­þjón­ust­unnar, þar sem hann var um borð í skútu kín­versks aukýð­fings.

Mál Bannon er ekki eins­dæmi, heldur hafa að minnsta kosti sex menn til við­bótar sem haft hafa sterk tengsl við Trump, ýmist áður eða eftir að hann tók við emb­ætti, sem hafa verið dæmdir fyrir eða játað brot sín. Kjarninn rifj­aði upp hvaða menn þetta eru og hvað þeir hafa gert.

Michael Flynn

Michael Flynn var ráð­gjafi Trumps í kosn­inga­bar­átt­unni árið 2016 og starf­aði svo sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Banda­ríkj­anna fyrstu 22 dag­ana af stjórn­ar­tíð for­set­ans. Þá þurfti hann að segja af sér fyrir að hafa sagt Mike Pence vara­for­seta ósatt um sam­skipti sín við rúss­neska sendi­herr­ann í Banda­ríkj­unum.

Hann ját­aði svo í des­em­ber árið 2017 að hafa logið að banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni FBI um sama efni.

Flynn sam­þykkti á sama tíma um að hjálpa Robert Mueller, sér­stökum sak­sókn­ara, við rann­sókn hans á tengslum fram­boðs Trumps við rúss­nesk stjórn­völd. Snemma á þessu ári dró hann þó játn­ingu sína til baka og segir stjórn­völd hafa brotið gegn skil­málum samn­ings­ins sem hann gerði í skiptum fyrir játn­ingu sína.

Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið gaf það svo út í maí að það ætl­aði sér að fella niður málið sem hafði verið í bígerð á hendur Flynn. Demókratar sök­uðu Bill Barr dóms­mála­ráð­herra í kjöl­farið um að haga rétt­læt­inu eftir því sem hent­aði Trump-stjórn­inni best, en dóms­mála­ráðu­neytið sagði ekk­ert benda til þess að Flynn hefði framið glæp, þrátt fyrir að hann hefði játað glæp­inn, sem var sem áður segir að ljúga að alrík­is­lög­regl­unni.

Þessi ákvörðun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er þó enn ekki orðin end­an­leg, en áfrýj­un­ar­dóm­stóll í Washington hefur ákveðið að taka mál hans til með­ferðar.

Paul Manafort

Paul Manafort, sem hafði ára­tugum saman verið ráð­gjafi innan Repúblikana­flokks­ins og stýrði fram­boði Trumps um tíma fyrir kosn­ing­arnar árið 2016, hefur verið dæmdur fyrir skatt­svik og fjár­svik og afplánar nú sjö og hálfs árs langan dóm fyrir glæpi sína. Hann sat í fang­elsi frá júní 2018 og fram í maí á þessu ári, en þá var honum veitt leyfi til þess að afplána heima vegna hættu á COVID-19 smiti í fang­els­inu sem hann dvaldi í.

Glæpir Mana­forts komu í ljós, eins og svo mörg önnur brot sem fyrr­ver­andi sam­starfs­menn Trumps hafa orðið upp­vísir að, vegna rann­sóknar Muellers á áhrifum Rúss­lands á gang mála í for­seta­kosn­ing­unum árið 2016, án þess að tengj­ast störfum fyrir fram­boðið beint.

En það var þó orðið ljóst strax fyrir kosn­ing­arnar árið 2016 að sitt­hvað væri bogið við starfs­hætti Manafort. Hann sagði sig frá störfum sínum fyrir fram­boð Trumps í ágúst­mán­uði fyrir kosn­ingar, eftir að New York Times varp­aði ljósi á að hann hefði fengið háar fjár­greiðslur fyrir störf sín í þágu Viktor Janúkó­vits, fyrr­ver­andi for­seta Úkraínu og stjórn­mála­flokka þar í landi.. Störf hans þar eru einnig lög­brot, þar sem hann gaf það ekki upp í Banda­ríkj­unum að hefði staðið í hags­muna­gæslu fyrir erlent ríki, eins og skylt er að gera lögum sam­kvæmt.

Rick Gates

Rick Gates starf­aði náið með Manafort bæði fyrir og á meðan hann var kosn­inga­stjóri Trumps og hélt síðan áfram störfum fyrir fram­boð Trumps eftir að Manafort sagði af sér.

Síðar kom upp úr krafs­inu að hann hafði verið hægri hönd Mana­forts í störfum hans í Úkraínu og hafði, ekki frekar en Manafort, gefið þá hags­muni sína upp, en þær háu greiðslur sem þeir félagar fengu frá aðilum Úkraínu voru vand­lega faldar með slóð skúffu­fé­laga sem Gates sá um að setja upp og ekki nema að afar tak­mörk­uðu leyti gefnar upp til skatts.

Gates ját­aði á sig brot sín og gerð­ist afar sam­starfs­fús í Mueller-rann­sókn­inni, en hann bar vitni gegn Manafort og Roger Stone auk ann­arra, áður en hann sjálfur var í des­em­ber síð­ast­liðnum dæmdur í 45 daga fang­elsi, skil­orðs­bundið til þriggja ára.

Roger Stone

Roger Stone er gam­all vinur Banda­ríkja­for­seta og hefur verið áhrifa­maður í Repúblikana­flokknum ára­tugum saman. Skömmu fyrir alda­mót, þegar Stone starf­aði sem lobbí­isti fyrir spila­víti Trumps í Washingon, var fjallað um það að hann hefði hvatt Trump til að gefa kost á sér í for­vali flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar árið 2000, en Trump ekki haft áhuga þá.

Hann hafði lengi starfað með áður­nefndum Paul Manafort, en þeir stofn­uðu saman hags­muna­gæslu­fyr­ir­tæki í Wahsington á níunda ára­tugnum.

Stone var í form­legu ráð­gjafa­hlut­verki þegar fram­boð Trumps fór af stað árið 2015, en síðan rak Trump hann reyndar og sagð­ist ekki hafa nein not fyrir hann í fram­boð­inu lengur. Hann sagð­ist ekki vilja hafa menn í sínu fram­boði sem væru sjálfir að leita sér að athygli.

En Stone átti þó eftir að koma meira við sögu og hélt áfram að styðja við alda­vin sinn. Hann hefur verið sak­aður um að hafa verið í tengslum við upp­ljóstr­un­ar­síð­una WikiLeaks í aðdrag­anda þess að síðan birti þús­undir stol­inna tölvu­pósta úr tölvu­póst­kerfum Demókra­ta­flokks­ins skömmu fyrir kosn­ing­arnar árið 2016.

Hann var svo sak­felldur í nóv­em­ber í fyrra fyrir að ljúga um það mál frammi fyrir þing­nefnd og einnig fyrir að reyna að hindra fram­gang rétt­vís­innar. Hann fékk ein­ungis þriggja ára dóm, þrátt fyrir að sak­sókn­arar sem fóru með málið hafi talið sjö til níu ára fang­elsi hæfi­lega refs­ingu fyrir brot hans.

Trump var ákaf­lega ósáttur við dóm­inn yfir Stone. Fyrr í sumar, ein­ungis nokkrum dögum áður en Stone átti að hefja afplánun, not­aði for­set­inn svo vald sitttil þess að milda dóm­inn sem Stone fékk. Hann er ekki í fang­elsi í dag, en er þó dæmdur maður og hyggst ekki áfrýja dómi sínum.

George Papadopoulos

George Papadopoulos starf­aði fyrir fram­boð Trumps í aðdrag­anda kosn­ing­anna árið 2016, sem ráð­gjafi í utan­rík­is­málum. Hann var sá fyrsti sem ját­aði á sig glæp í tengslum við Mueller-rann­sókn­ina og afplán­aði tólf daga í fang­elsi árið 2018, fyrir að hafa sagt alrík­is­lög­regl­unni ósatt um að hann hefði vitað til þess að rúss­neskir aðilar byggju yfir þús­undum tölvu­pósta frá fram­boði Hillary Clinton, áður en þeir litu dags­ins ljós.

Hann gaf út bók í fyrra þar sem hann hélt því fram að hann teldi að hann, og raunar fram­boð Trumps í heild sinni, hefðu orðið fyrir barð­inu á sam­særi leyni­þjón­ustu­stofn­ana sem miðað hafi að því að njósna um fram­boðið undir því falska yfir­skini að það hefði tengsl við Rússland. Þessi kenn­ing er stundum kölluð Spygate.

Michael Cohen

Michael Cohen, per­sónu­legur lög­maður Trumps frá 2006 til 2018, var dæmdur í þriggja ára fang­elsi í lok árs 2018 eftir að hafa, í tengslum við Mueller-rann­sókn­ina, játað á sig bæði skatt­svik og fjár­svik.

Hann hefur lýst því yfir að hann hafi farið á svig við lögin og greitt tveimur konum fjár­muni að beiðni Trumps til þess að tryggja að þær myndu ekki tjá sig opin­ber­lega um sam­bönd sín við Trump.

Cohen fær, sam­kvæmt nýlegum fréttum, að afplána það sem eftir er af fang­els­is­dómnum heima hjá sér í New York með ökkla­band vegna hættu á COVID-19 smiti í fang­els­inu þar sem hann var.

Hann mun á næst­unni gefa út bók um störf sín fyrir for­set­ann, sem mun bera tit­il­inn „Disloyal“. Þar seg­ist hann meðal ann­ars ætla að færa sönnur á að Trump hafi svindlað í kosn­ing­unum árið 2016 og lýsa því hvernig hann starf­aði, sem einn margra kóna í kringum for­set­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár