Bakslag í skuldaviðræðum Grikkja: Tillögur ESB og AGS öfgafullar

For­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, Alexis Tsipras, kynnir innan tíðar fyrir gríska þing­inu fram­vindu skulda­við­ræðna Grikkja við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, Seðla­banka Evrópu og Evr­ópu­sam­bandið. Vaxandi óánægja hefur verið með samn­inga­við­ræð­urnar hjá grískum þing­mönnum, ekki síst innan Syriza, stjórn­ar­flokks­ins í land­inu. Búist er við því að umræð­urnar í þing­inu muni standa langt fram á kvöld.

Tsipras hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu sem ætti að gefa nokkra mynd af því sem hann mun segja við þingið. Hann segir þar að lán­ar­drottnar Grikk­lands hafi lagt fram til­lögur á mið­viku­dag sem ekki sé hægt að ganga að og þær séu öfga­fullar. Stofn­an­irnar þrjár hafi sýnt lít­inn vilja til mála­miðl­ana og setja megi spurn­inga­merki við það hvort þeir vilji í raun ná ein­hverju sam­komu­lagi.

Þá segir hann að til­lögur Grikkja á lausn vand­ans séu ekki í sam­ræmi við upp­haf­legar áætl­anir þeirra heldur séu þær mála­miðl­anir. Hins vegar verði sam­komu­lag ekki gert nema lofað sé að setja upp góða fjár­fest­ing­ar­á­ætlun, rík­is­skuldir verði end­ur­skipu­lagðar, gerð verði krafa um lít­inn afgang af fjár­lögum og engar frek­ari skerð­ingar verði gerðar á launum og líf­eyri.

Það virð­ist því lítið miða áfram í átt að lausn máls­ins, en aðilar þess þurfa að koma sér saman um umbætur í Grikk­landi áður en AGS og ESB leysa út 7,2 millj­arða evra sem Grikkir þurfa nauð­syn­lega á að halda.

Grikk­land átti að greiða til baka 300 millj­ónir evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins í dag en gerði það ekki. Stjórn­völd segj­ast hafa átt pen­ing­ana til en hafi ákveðið að borga ekki nú heldur sam­eina allar fjórar end­ur­greiðslur júní-mán­aðar í einu í lok mán­að­ar­ins. George Stathakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, sagði við fjöl­miðla fyrr í dag að ekki væri hægt að ganga að kröf­unum sem nú eru uppi um umbætur á gríska kerf­inu. Þrátt fyrir það ætl­uðu Grikkir sér ekki að fara út úr evru­sam­starf­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár